Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 7

Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 7
Ivan Grooters starfsmaður CBP í Antwerpen t.h. að ræða við einn af félögunum í prentsmiðjunni ALBE. leiðsla eru bæklingar, vörulistar, möppur, dagatöl, auglýsingaefni o.þ.h. Útflutningur er u.þ.b. 36% af fram- leiðslunni. Gæðastýrikerfið ISO 9002 er í notk- un hjá fyrirtækinu. Athyglisvert var hjá Albe hvernig tekið var á málefn- um eigenda. Framkvæmdastjórarnir eru eins og áður sagði tveir, hvor úr sinni fjölskyldunni, og ráða þeir alltaf a.m.k. 51% hlutafjár í fyrirtækinu. Fólk úr fjölskyldunum getur fengið vinnu í fyrirtækinu, þ.e. á gólfinu. Enginn úr fjölskyldunni kemst í stjórnunarstöðu nema að hafa sannað sig hjá öðrum fyrirtækjum. Febelgra Féderation belge des industries grap- hiques eru systursamtök FÍP í Belgíu. Fram kom í máli framkvæmdastjóra FEBELGRA að í gangi sé útflutn- ingsátak og sé þar sérstaklega beint sjónum að Skandinavíu. Nýlega hafi verið haldin kaupstefna í Stokkhólmi þar sem um 40 belgísk prentfyrirtæki sýndu hvað þau hafa að bjóða. Fram kom að framleiðni væri mikil í grein- inni og því gætu þeir náð góðum ár- angri í útflutningi. U.þ.b. 40% af framleiðslu prentiðnaðar í Belgíu er útflutningur. Mikil áhersla væri lögð á að afgreiða á réttum tíma, væri það vel metið af viðskiptavinum og einn af hornsteinum þess að fyrirtækin lifðu áfram. Ennfremur kom fram að kostnaður skiptist í grófum dráttum þannig að launakostnaður væri u.þ.b. 40%, hráefni um 30%, afskriftir o.fl. 15% og brúttóhagnaður 10%, en nettóhagnaður minni en 5%. í Belgíu eru rúmlega 2000 prentfyr- irtæki og starfsmenn um 30.000. CBP Central der Bock- en Papirenijverheid eru systursamtök FBM í Belgíu. Rætl var við fulltrúa samtakanna í Ant- werpen. Fram kom m.a. hjá honum að lágmarkslaun prentara á 4-lita prent- vél voru 17.735,90 belgískir frankar á viku eða miðað við gengi 6. október kr. 33.060,00. Lágmarkslaun ófag- lærðra eru á bilinu BFR. 10.914,90 - 12.863,00 eða kr. 20.083,00 - 23.668,00 á viku og aðstoðarmenn á 4-lita vél hafa á bilinu BFR 14.220,80 - 15.649,20 eða kr. 26.166,00 - 28.795,00 á viku. Dagvinnutími er 37 stundir á viku. Annar launakostnaður svo sem vegna greiddra frídaga, sumarfría o.þ.h. er rúmlega 88%, sem er sam- kvæmt upplýsingum frá Intergraf næst hæsta hlutfall í Evrópu, aðeins á Ítalíu er það hærra. Menntun starfsfólks í Belgíu og Hollandi er með svipuðu sniði. Menntunarstig eru tvö, þ.e. tveggja og þriggja ára nám. Eftirmenntun sjá iðnskólar um og fer hún fram seinni hluta dags og á kvöldin. Menntun er stjórnað af fulltrúum atvinnulífsins. Starfsmenn eiga rétt á fríi á launum fari þeir á eftirmenntunarnámskeið. Fyrirtækið fær síðan launin endur- greidd frá atvinnumálaráðuneyti. Kerfið er fjármagnað með því að at- vinnurekendur greiða 0,4% af öllum launum. Hvað varðar námskeiðin sjálf þá greiða þátttakendur sjálfir nám- skeiðsgjöld. Niðurstöður Ferð þessi sýndi okkur fram á að PRENTARINN 1.13.'93 7

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.