Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 11
vél- og hugbúnað eftir eigin vali. Auð-
vitað er hægt að kaupa þessa þjónustu
- og þeim fer fjölgandi sem hana
bjóða - en á endanum sitjum við sjálf
í súpunni. Þau fyrirtæki sem áður
seldu setningarkefi, textakerfi og lit-
greiningarkerfi eru nánast öll búin að
snúa sér að staðlaðri tækni, en selja
sig þess í stað sem byggingameistara
tölvukerfa og taka að sér að sérsníða
kerfin að okkar óskum.
Tölvusamskipti
Með aukinni tölvunotkun gerast þær
óskir háværari að hægt verði að senda
og taka á móti hvers kyns tölvuskrám.
Næst litmyndavinnslu er þetta sá akur
skjáborðsprentsmíðar, þar sem mest
er að gerast. Við höfum séð Adobe
kynna Carousel tæknina, sem ásamt
öðru á þessum vettvangi minnkar
hægt og sígandi þörfina fyrir prenlun.
Vegna þess að Carousel byggir á
PostScript má búast við því að þessi
tækni nái mikilli útbreiðslu, en með
henni getum við lesið upp á skjáinn
tölvuskjöl og prentað þau út án tillits
til þess vél- og hugbúnaðar sem not-
aður var við að búa þau til. Þessi þró-
un er rétt að hefjast og á næstu árum
mun trúlega mikið gerast. Ahugi á
staðlaða merkimálinu SGML hefur
aukist upp á síðkastið vegna þessarar
þróunar, en það er alþjóðlegur staðall
til lýsingar á skjölum með almennri
kótun, þar sem hver textaeining er
skilgreind eingöngu með tilliti til inni-
halds og merkt eftir eðli, s.s. fyrirsögn,
efnisgrein, neðanmálsgrein, tilvitnun
o.s.frv. SGML er óháð tungumálum,
kerfum og vélbúnaði og hentar fyrir
skjöl sem flutt eru á milli kerfa og
skjöl sem notuð eru á ólíku formi:
prentuð, á skjá, í gagnsöfnum o.s.frv.
Tveir leturstaðiar
Eftir að Adobe neyddist til að opin-
bera skilgreiningar sínar á PostScript
fontum fyrir fjórum árum er letur al-
veg aðskilið frá útkeyrslutækjunum.
Tvenns konar leturtækni keppir nú á
markaðnum, Adobe Type 1 og Tru-
eType, sem Apple og Microsoft komu
sér saman um. Vegna þeirrar sam-
keppni sem þar ríkir fáum við nú að
að sjá merkilegar nýjungar, sem auka
fjölhæfni og fegurð letursins, efst á
baugi eru Multiple Master fontamir frá
Adobe og TrueType betrumbætur sem
Apple byggir inn í QuickDraw GX .
Mjög stórum hluta helstu letur-
gerða hefur þegar verið breytt í
Adobe Font 1 sniðið. Þó eru enn mörg
letur sem ekki er búið að breyta í
Type 1 snið og TrueType safnið er
skiljanlega miklu minna í sniðum.
Því miður virðist sem leturfyrirtæk-
in geti ekki lengur réttlætt þá fjárfest-
ingu sem felst í breytingu letra í Type
1 og TrueType. Ef ekkert breytist
mun Type 1 safnið staðna eins og það
er nú og TrueType safnið aldrei verða
fullgert. Ástæðan er leturstuldur.
Haldið verður áfram að búa til ný
letur, sérstaklega til að nýta sér mögu-
leika Multiple Master eða QuickDraw
GX tækninnar, en það er ekki ljóst
hver á að borga brúsann.
Ef svo fer sem horfir munu þeir
fara verst út úr þessu sem vilja gæða-
letur. Þeir þurfa einfaldlega að kaupa
letrin á hærra verði.
Verst er ástandið í leturmálum í
Windows umhverfinu. Þar flæða nú
yfir hræbillegir fontapakkar af vafa-
sömum gæðum. Þeir sem bíta á agnið
kæra sig kollótta um gæði leturs eða
vita ekki annað en þetta sé allt í lagi.
Ástandið almennt í leturmál um er
þannig, að ég mæli eindregið með því
við þá sem vilja nota góð letur, að þeir
kaupi þau frá viðurkenndum aðilum
en hirði ekki allt sem þeir finna.
Það er e.t.v. rétt að skýra aðeins út
hvað þetta QuickDraw GX er. Eins
og þið e.t.v. vitið er QuickDraw
myndlíkanið sem stjórnar birtingu á
Macintosh skjá. Nýja GX myndlíkanið
kynnti Apple s.l. vor og er því ætlað
að koma Makkanum aftur í þá yfir-
burðastöðu sem hann hefur lengst af
verið gagnvart PC vélum. Þetta mun
þýða, ef allt gengur eftir, að grafísk
vinna á Macintosh fær aukna vídd, lit-
vinnsla verður betri, týpógrafían einn-
ig og svo mætti áfram telja. Vandinn
er í raun sá, að forskot Makkans verð-
ur svo mikið að það verður til vand-
ræða. Þeir sem búa til forrit fyrir
Macintosh vilja að sjálfsögðu nýta sér
þessa nýju möguleika en vegna þess
að svo mörg forrit eru einnig til fyrir
Windows gætu þeir þess vegna ákveð-
ið að gera það ekki.
Til að einfalda málið má segja að
tilgangurinn með Multiple Master og
TrueType GX sé sá sami, að búa til
gúmmíletur, sem er hægt að toga og
teygja í allar áttir án þess að hlutföll
leturdrátta raskist.
Prentun við pöntun
Þó þetta sé prentsmíðaþing er nú
komið að því að fjalla um prentun.
Hingað til hefur ekki verið litið á
leysiprentun sem prentaðferð, en héð-
an í frá verður ekki annað tekið í mál.
Þeir sem skoðuðu Xerox sýninguna í
síðasta mánuði eru allir sannfærðir
um það.
Prentun við pöntun gætum við kall-
að það, þegar við viljum geta breytt
tölvuskjölum okkar í bók eða annan
prentgrip á örskömmum tíma - á
meðan við bíðum. Markmið þeirra
sem þróa þessa prenttækni er að
prentunin eigi sér stað eins seint í ferl-
inu og mögulegt er og eins nálægt við-
takanda og hægt er. Prentun mun
áfram verða til staðar, það er alveg
víst, en hún verður einn af fleiri val-
kostum í fjölmiðlun efnis, sem stund-
um hentar betur og stundum síður.
Á Seybold sýningunni í San Francisco
var stærsta útkeyrslutækið sex tonna
ferlíki, fjögurra lita Heidelberg GTO-
DI prentvél, beinlínutengd nokkrum
PostScript rippum ýmissa tölvufyrir-
tækja. Hver hefði ímyndað sér fyrir
tveimur árum að slíkt tæki væri bein-
PRENTARINN 1.13.'93
11