Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 13
Ráðstefna um menntunarmál og
endurmenntun prentiðnaðarmanna
- haldin á vegum NGU í Óðinsvéum í Danmörku
Til þessarar ráðstefnu var boðað til
þess að norrænu félögin gætu borið
saman stöðu grunnmenntunar og end-
urmenntunar í prentiðnaði á Norður-
löndum. Ráðstefnan var sett af Sture
Björnquist starfsmanni NGU.
Hugmyndin er að reyna að vinna að
sameiginlegum eða sem líkustum
grunni og samræma grunn og endur-
menntun. Þannig að menntun prent-
ara innan NGU sé byggð upp
á sama hátt og gerðar sömu
kröfur til að prentiðnaðurinn
geti uppfyllt þær kröfur sem
gerðar eru til hans hvar sem er
á Norðurlöndum og í Evrópu,
m.a. vegna sameiginlegs evr-
ópsks vinnumarkaðar. Niður-
staða ráðstefnunnar verður
síðan lögð fyrir stjórn NGU,
sem stefnir að fundi með at-
vinnurekendasamtökum Norð-
urlanda. Ef samstarf og sam-
eiginleg niðurstaða næst innan
Norðurlanda, fer slík ákvörð-
un síðar fyrir EGF og Inprinta
(samtök atvinnurekenda innan
EB). Komist þau að líkri nið-
urstöðu, þá er framtíðarhug-
sjón evrópskra prentara, að
sama menntun liggi að baki
námi allra prentara í Evrópu
til þess að allir geti unnið inn-
an nýrrar Evrópu á frjálsu
vinnusvæði og uppfyllt sömu
gæðakröfur innan iðnaðarins
hvar sem er.
Malte Erikson, varaformað-
ur G.F. ræddi þær gæðakröfur sem
gerðar eru til prentara og hvers vegna
endur- og símenntun er nauðsynleg,
svo að prentarar dagi ekki uppi sem
nátttröll með gamla þekkingu í hrað-
fleygri tækni nútímans. Einnig kom
hann inná það hvernig félögin eiga í
sífellt meiri erfiðleikum með að prent-
arar fái sanngjarna greiðslu fyrir
aukna menntun og enn hefur ekki
tekist að festa í sessi greiðslur fyrir
auknar gæðakröfur. Þó er það svo, að
fyrirtæki eru viljug til að greiða hæfi-
leikafólki yfirborganir, en án samn-
inga við stéttarfélögin. Því verðum við
að leita nýrra leiða, en hverra? Hans
hugmynd er m.a. að stéttarfélög verði
að vera viljug að gera sérkjarasamn-
inga við hópa og fyrirtæki, „vinnu-
staðasamninga“.
Síðar sama dag var fagskólinn í Oð-
insvéum skoðaður og Danir útskýrðu
hvernig þeir vinna að menntunarmál-
um m.a. skýrðu þeir frá nýjum skóla
sem þeir eru að undirbúa til að
mennta Flexoprentara og tekur hann
til starfa á þessu ári. Þar fékk ég
ákveðið loforð um pláss fyrir Islend-
inga og bind ég við það miklar vonir.
Einnig útskýrðu þeir námsáætlun sem
unnið er að vegna endurmenntunar í
umbúðaprentun.
Á öðrum degi voru fluttar og rædd-
ar skýrslur annarra Norðurlanda og
yfirlit um fyrirhuguð námskeið. í
stuttu máli má segja að öll Norður-
löndin séu á mjög svipuðum stað hvað
varðar grunn og endurmenntun, sem
er raunar ekki ólíklegt vegna þess að
á þeim árum sem NGU hefur starfað,
hafa fulltrúar þessara félaga rætt þessi
mál í sameiningu.
Á þriðja degi var unnið að sameig-
inlegri skýrslu til NGU sem er í 9 lið-
um og svohljóðandi:
1. Grunnnám - Mismunandi
breidd er nú í grunnnámi en
stefna ber að aukinni starfs-
þjálfun.
2. Endurmenntun - Sífellt þarf
að halda námskeið í nýrri
tækni.
3. Framhaldsnám - Setja þarf
saman námskeið fyrir kenn-
ara, leiðbeinendur og verk-
stjóra, þar sem ekki er minni
þörf að mennta þá sem
stjórna.
4. Stöðupróf - Setja skal á stöð-
upróf, sem lýkur með þekk-
ingarprófi.
5. Nýjar starfsgreinar - Nýjar
starfsgreinar eru í vinnslu í
flestum löndum.
6. Fjarkennsla - Fjarkennslu er
verið að byggja upp í N-Nor-
egi og N-Svíþjóð.
7. Fjármögnun - Samvinna fag-
félaga, atvinnurekenda og
ríkis.
8. Menntun atvinnulausra -
Danir hafa sett upp setningartæki á
skrifstofum félagsins til æfinga fyrir
atvinnulausa.
9. Alþjóðleg kennsla - Nauðsynlegt
er að félögin styrki félagsmenn til
náms í fagskólum annarra landa.
Síðari hluta þessa dags flaug hver til
síns heima ríkari af reynslu og þekk-
ingu en þessu starfi er ekki þar með
lokið, þetta var bara fyrsti áfangi í
starfi sem aldrei lýkur .S.Á.
PRENTARINN 1.13.'93
13