Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 15

Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 15
Bókagerðarmenn ríða á vaðið Atvinnulausir bókagerðarmenn ákváðu að taka málið í sínar hendur á fjölmörgum stöðum í landinu. Mennt- un, aukin þekking var svarið í stað þess að sitja með hendur í skauti. . . Lýður bíð ei lausnarans, leys þig sjálfur. . kvað Stefán G. Hér í sveit- inni gengum við þrír bókagerðarmenn á fund yfirvalda atvinnumála og reif- uðum hugmyndir okkar um menntun fyrir atvinnulausa bókagerðarmenn og óskuðum eftir fjármagni þar að lút- andi. Hugmyndin fólst í því að atvinnu- lausum bókagerðarmönnum gæfist kostur á 15 vikna almennri menntun í stærðfræði, sænsku, ensku, tölvunotk- un og fræðslu um Efnahagsbandalag Evrópu. Að því loknu hæfist síðan 13 vikna nám í faginu, forvinnslu prent- gripa til að byrja með. Þeir sem færu í þetta nám fengju samsvarandi greiðsl- ur og þeir fá frá atvinnuleysissjóðnum og að námið eins og vinna í jafnlangan tíma endurnýjaði rétt fólks til atvinnu- leysisbóta, en sá réttur er 300 dagar. Þetta var 1. stig hugmyndarinnar. 2. stig hugmyndarinnar var að faglega menntunin héldi áfram og að þeim sem hafa vinnu gæfist kostur á að sækja endurmenntun og þá mundu þeir sem eru atvinnulausir hlaupa í skarðið á meðan. Ef hugmyndin verð- ur að veruleika, sem allt bendir til þýðir það í raun að atvinnuleysi bóka- gerðarmanna yrði útrýmt í sveitinni. Yfirvaldið féll fyrir þessari hugmynd eftir nokkra umhugsun og komst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að hér væri dýrt fyrirtæki á ferðinni væri það mun ódýrara og hagkvæmara fyrir hið opinbera en að hafa fólk atvinnulaust. Þessari hugmynd bókagerðarmanna hefur nú verið hrint í framkvæmd á nokkrum stöðum í landinu með örlítið mismunandi hætti. Reynslan er góð og hér er á ferðinni alvöru menntun bæði hvað snertir almenna námið í byrjun sem og faglega námið. Faglega námið er skipulagt í samvinnu við Grafom- edia (Prenttæknistofnun sænskra) og notast er við þau tæki sem eru best á markaðnum hverju sinni. Sá þáttur stóð einna lengst í yfirvöldum en þetta er a.m.k. hér í sveitinni gert í sam- vinnu við prentdeild fjölbrautaskólans og mun í raun þýða að samtímis er sú deild byggð upp og gerð hæfari til að þjóna grunnmenntun nýrra bókagerð- armanna og verður jafnframt endur- menntunarmiðstöð bókagerðar- rnanna. Auðvitað hafði það áhrif á jákvæð viðbrögð yfirvalda við þessari hug- mynd að atvinnuleysisbætur eru á þann veg hér, að hægt er að lifa af þeim en hins vegar eru hin félagslegu áhrif atvinnuleysisins svo hrikaleg fyr- ir einstaklinginn og þjóðfélagið í heild að það hlýtur að vera keppikefli fyrir alla að finna lausnir á þeim vanda. í þessu ljósi er það mun hagkvæmari lausn fyrir þjóðfélagið að greiða fólki laun fyrir að mennta sig en að greiða því atvinnuleysisbætur þar sem menntunin leysir mörg vandamál sem fólk á við að etja í atvinnuleysi og kosta þjóðfélagið ómælt fjármagn. Á morgun. . . Já félagar. Hér keppast stjórnmála- menn og atvinnurekendur við að telja okkur trú um að framtíðarlausnin fyr- ir allt og alla felist í því að Svíþjóð gerist aðili að Efnahagsbandalagi Evr- ópu. Því er ég ekki sammála og það nrá mikið vera ef þetta bandalag aur- anna leysist ekki upp í núverandi mynd. Þetta sjónarmið stjórnmála- manna er svo almennt í þeirra röðum að það er líkast því að þeir væru allir í einum og sama flokkinum. Hug- myndafræði og markmið eru út í hafs- auga, lausnir sjá þeir engar í landi og þjóð, heldur er miðstýringarvaldi, þýsku, frönsku og ensku ofríki ætlað að leysa allan vanda. Ef þetta er ekki að gefast upp og leggjast flatur, þá veit ég ekki hvað er að leggjast flatur. Það má vera ljóst hverjum manni sem vill skoða þessi mál niður í kjöl- inn að smáríki norðursins munu enda sem þjónustuaðilar og hráefnafram- leiðendur og endanlega glata efna- hagslegu sjálfstæði sínu gangi þau í þetta bandalag. Að glata efnahagslegu sjálfstæði sínu, jafngildir frelsissvipt- ingu og því er skammsýni stjórnmála- manna með ólíkindum eða þeir eru svo latir og ófrjóir í andanum að þeim er um megn að sinna þeim störfum sem þeir þó sóttust eftir og var falið. Vonandi ber Svíum gæfa til að hafna aðild í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram á að fara um málið. Gæfa til að hafna því að einangra sig frá öðr- um löndum og þjóðum heims í hálf evrópsku aurabandalagi. Félagar, á morgun er nýr dagur með nýjar vonir og möguleika. Beri okkur gæfu til að standa saman er engu að kvíða. Standa saman um jöfn- uð og réttlæti í samfélaginu, standa saman um tungu okkar og menningu, standa saman um verndun náttúrunn- ar. Nú, nú. Ég kveð ykkur að sinni með vonum mínum um velgengni stéttar- innar og atvinnuöryggi. - Baráttukveðjur í október mes PRENTARINN 1.13.'93 15

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.