Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 16

Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 16
Framtíð bókagerðar Fjölmiðla- og tölvuútgáfur ógna nú hefðbundnum aðferðum í bókagerð. Caryl Hollander vegur og metur þá tækni sem er tiltæk fyrir bókagerðarfólk og kemst að því, að sveigjanleiki er lykilorð þeirra sem vilja halda velli. Bókagerðarmenn og útgefendur verða sífellt áhyggjufyllri vegna þeirra áhrifa sem tölvuútgáfa hefur á viðskipti þeirra. Pessa stundina eru þó ekki fyr- irsjáanlegar neinar gagngerar breyt- ingar; CD-Rom hafa einungis náð að stinga sér niður á fáum stöðum og það lítur út fyrir að allt tal um vinsældir annarra tegunda fjölmiðlunar séu frekar auglýsingaskrum, heldur en raunverulegt ástand í viðskiptaheim- inum. í raun er litið á þessa miðla sem viðbót við venjuleg- ar bækur frekar en staðgengla þeirra. Þessar aðstæður gætu þó breyst í tengslum við mikla framþróun á tæknisviðinu. Sí- fellt fleiri örtölvur eru búnar CD-drifi og möguleikum á staf- rænum merkjasendingum fyrir myndir og hljóð. Eitt atriði í söluáróðri fyrir þessi tæki eru niðurstöður úr könnunum sem gerðar voru í Bandaríkjunum. Þar sýndu niðurstöður að fólk man einungis 25% af því sem það heyrir, 45% af því sem það sér, en það getur munað allt að 75% af því sem það bæði sér og heyrir á sama tíma. Þegar rætt er um nýja tækni þá eru önnur atriði líklega meira áríðandi fyrir hinn hefðbundna bókagerðar- mann. Það eru skyndiprentaðar bækur (on-demand) og bækur sem notendur hanna og útbúa sjálfir (custom publis- hing), en þær eru framleiddar á pappír og prentaðar með rafeindatækni beint af tölvuskrám. Þó að þetta sé ekki ný hugmynd, þá hefur hún verið í mikilli framþróun undanfarin ár. Þessi þróun byggir að miklu leyti á tilkomu ódýr- ari og fljótvirkari rafeindaprentara; verð á slíku kerfi hefur lækkað um helming á undanförnum fimm árum. Önnur mikilvæg atriði eru einnig ódýr gagnageymsla, hraðvirkari rasta myndgjörvi og tilkoma PostScript (PS> Áþreifanleg sönnun fyrir miklum vinnsluhraða þessara tækja fékkst ný- lega þegar Ann Kritziger frá BOOKS- print setti nýtt heimsmet, er hún fram- leiddi 1000 eintök af 116 blaðsíðna myndskreyttri bók á 12 klukkustund- um og 24 mínútum og notaði við það þrjá Kodak 1570 copier duplicatora. Hún hefði jafnvel náð skemmri tíma ef hún hefði ekki tafist í þrjár klukku- stundir vegna skorts á myndefni. Auk hraðans, býður þessi tækni fjárhagslega séð upp á þann mögu- leika að keyra út lítið upplag og jafn- framt gefst tækifæri á að laga innihald bókarinnar að þörfum viðskiptavinar- ins. I tilraunaverkefni í Bandaríkjun- um nota útgefendurnir McGraw-Hill sérstaklega hannaðan hugbúnað til að velja afrit af gagnagrunni PS-skjala. Hægt er að setja bæði ljósmyndaefni og stafræn gögn í bækur og prenta allt verkið með RR Donnelley, aðallega í Kodak 1392 vélum. Á næsta ári verða stærri upplög (100-750 eintök) keyrð á AM Graphics Electrobook prentvél. McGraw-Hill, RR Donnelley og AM Graphics eru í sameiningu að þróa þá vél og er hún ný útfærsla á AM Electropress hugmyndinni sem notar 300dpi vökvatóntækni (liquid toner technology) og merkir með sama vinnsluhraða og rúlluvél. Hún hefur getu til að prenta 250 fet á mín- útu á allt að 500 mm breiðan prentpappír. Hún getur með öðrum orðum prentað 500 blaðsíður á mín., á báðar hliðar, með því að nota PS gögn og skilar af sér umbrotnum örk- um tilbúnum til innbindingar. Þetta er sambærilegt við 92 síð- ur á mín., sem er hámarkshraði Kodak 1392 og 135 síður á mín. sem er hraði Xerox DocuTech. Fjöldi véla sem er fær um slíka vinnu fer stöðugt vaxandi. I Bandaríkjunum er nú verið að reyna DEC-hannað kerfi og Siemens Nixdorf Printing Syst- ems kynnir Print-On-Demand Publisher, sem byggir á því að rastinn keyri margar prentvélar og um leið kynnir SNPS hug- búnað til að sjá um ferlið. Á sama tíma hefur Xerox endurbætt DocuTech með kynningu á Media og Network Servers. Þau gera notendum kleift að meðhöndla skjöl sem hafa verið sniðin í PS Level 1 og 2, Xerox Interpress og Hewlett Pack- ard PCL síðulýsingarmálum. Endurbætt úrvinnsla Á Bretlandi var fyrsti Media Server- inn tekinn í notkun hjá Basingstoke Press sem hefur yfir að ráða sex DocuTech útgáfukerfum, sem sjá um fjórðung af vinnu fyrirtækisins. Nýi serverinn er sagður hafa bætt gæði úr- vinnslunnar og geri það jafnframt Byggt á PC: Amicus setning hjá Megron. 16 PRENTARINN 1.13.'93

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.