Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 17
CD-ROM: Bækur á disklingum.
mögulegt að einstök verkefni séu
prentuð út í heild sinni fremur en í
hlutum, sem þarfnast svo samanburð-
ar. DocuTech hefur einnig gert Bas-
ingstoke Press kleift, að taka að sér
smærri verkefni og þegar netserverinn
hefur verið tengdur, er orðið mögu-
legt að bjóða upp á bein ytri tengsl til
viðskiptavina. Þetta er möguleiki sem
nokkrir af stærstu viðskiptavinum fyr-
irtækisins eru að skoða, t.d. British
Airways, Racal og IBM.
Annar bókaframleiðandi, sem varð
til að setja upp DocuTech kerfið, er
BP Integraphics sem er hluti af Bath
Press Group, eða BPMG eins og það
er nú nefnt. Undir nafninu Docuprint
býður fyrirtækið upp á skyndiprentun
og stuttkeyrsluþjónustu í bókafram-
leiðslu, ásamt innbindingu. Fyrirtækið
segir að lengd keyrslu sé meginþáttur-
inn varðandi ákvörðun um það hvort
bókin verði framleidd í DocuTech eða
á venjubundinn hátt, en stundum sé
farið eftir tímaáætlun. Setningakerfi
Integraphics getur keyrt út venjulegt
efni eða sent gögn gegnum disk til
DocuTech Docuprint. Talið er að
seinna á þessu ári verði geymslurými á
DocuTech aukið. Integraphics vonast
Methafi: Ann Kritzinger.
til að verða meðal hinna fyrstu með
þessa þróun og fylgist einnig með
áætlunum Xerox varðandi litavinnslu.
BP Integraphics hefur, líkt og marg-
ir bókagerðarmenn á Bretlandi, fylgst
með töluvert aukinni eftirspurn á let-
ursetningu síðastliðin tvö ár, þar sem
sífellt stærri hluti efnis berst á disk-
lingum. Af þeim sökum er unnið við
endurbætur á front-end kerfum til að
geta meðhöndlað þessi inntaksgögn.
BPCC er t.d. að setja upp studíó sem
býður upp á gagnameðhöndlun fyrir
þá sem gefa út lista og skrár, jafnframt
því sem þeir eru að setja upp front-
end kerfi í Aylesbury til að með-
höndla minni keyrslur og vinna að
styttingu afgreiðslutíma. William
Clowes er núna með tvær Data Gen-
eral MV35000 tölvur sem móðurtölv-
ur fyrir net með 24 PC-tölvum og
tveimur Unix verkstöðvum (work-
stations) í Penta front-end kerfi. JW
Arrowsmith í Bristol hefur aukið fjár-
festingar sínar, í letursetningardeild, í
£300.000.- síðastliðna 18 mánuði. Þess-
ar fjárfestingar liggja helst í kaupum á
Sun Sparcserver 2, Sparc ELC verk-
stöð og sex Miles 33 J300 letursetning-
artækjum.
Framleiðendur framangreindra
kerfa vinna einnig við endurbætur á
þeim. Endurútgáfa 9 af Miles 33 hug-
búnaði inniheldur t.d. möguleika á að
frysta blaðsíðu, auk þess að geta nýtt
sér blettun og dauf litabrigði í fram-
leiðslulitum. Það er einnig álitið að
fyrirtækið sé að breyta hugbúnaði sín-
um þannig að hægt sé að keyra hann í
X Windows, sem gerir kleift að birta
samþjappaðar PS grafíkskrár á skjám.
Power Paginator er nýjung frá Para-
gon Publishing Systems (áður Bed-
ford Computer Corp). Þetta er sjálf-
virkt umbrotsforrit, sem sameinar
runu- og heildarúrvinnslu, sem hægt
er að laga að þörfum viðskiptavinar-
ins. Paragon hefur sett upp búnað hjá
Datapage International (írskættað
gagnavinnslufyrirtæki sem sérhæfir sig
i útgáfu tæknilegs efnis) sem byggir á
því að tengja PC við Datapage Met-
eor kerfi.
PC úrlausnir
Þegar örtölvur eru farnar að nálgast
getu einkaleyfiskerfa, þá er áríðandi
fyrir neytendur að gera sér grein fyrir
eiginleikum hinna ýmsu kerfa. Am-
icus Systems prófaði nýlega Megron
(letursetjara af Cardiff gerð) en í það
var sett PC kerfi síðastliðið ár. Megr-
on, sem er sérhæft í gerð akademískra
bóka, lagði fram óunnin gögn sem
voru sett í þremur mismunandi kerf-
um. Verkið samanstóð af níu texta-
skjölum, alls 190 síðum, 40 pica djúp-
um. í einkaleyfiskerfi með 280Mb
skrármiðlara, tók umbrot og jöfnun
að meðaltali 16,29 sek. á síðu. Með því
að nota hybrid form með 386 SX PC
til að keyra umbrotið, sem var tengt
við skrármiðlara úr einkaleyfiskerfi,
þá var tíminn 13,15 sek. á síðu. Með
PC-formi var setningartíminn lækkað-
ur um 6,25 sek. á síðu - sem er rúm-
lega tvöfalt hraðari setning.
Svipaður árangur hefur náðst í fjölda
örtölvukerfa, sem búa yfir sjálfvirku
PRENTARINN 1.13.'93
17