Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 18

Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 18
umbroti. Apple Mac pakki inniheldur Interset Quoin Interactive Pagination (QIP), sem frekar má kalla skjala- kerfi, heldur en síðukerfi og vinnur eftir stæðum af sjálfgildistöflum. MagnaBook hugbúnaðurinn er nýjung fyrir PC, hannaður af Magna Com- puter Systems. Þar er með sjálfvirkni hægt að útbúa neðanmálsgreinar, stemma af margföldunardálka á síð- ustu blaðsíðu kafla og velta myndum. Síðan í apríl, þegar þessi hugbúnaður var kynntur, hefur fyrirtækið hins veg- ar lagt upp laupana og stofnandi þess, Fred Rose, hefur fært starfsemina yfir í annað fyrirtæki sem heitir Fred Rose & Associates. Umboðsmenn Magna á Bretlandi, PageSet Systems, hefur tekið yfir þróun og markaðssetningu MagnaFile og PageComp. Beint á plötu Næsta rökrétta skrefið í hinni staf- rænu keðju, eftir sjálfvirkt umbrot, er að setja beint á plötu. Eitt félag bóka- gerðarmanna, Hartnolls, sem hefur sett upp Mitsubishi Silvermaster CP- Multi 1100V kerfi frá Litho Supplies, hefur þegar tekið upp þessa stefnu. Þessi útbúnaður kemur í stað Silver- master CP800 gjörvans, sem systurfyr- irtæki Hartnolls, Unwin Bros, notar núna samtengda Solna rúlluvél. Þetta kerfi hentar hins vegar ekki öllum gerðum bóka. Þess vegna kynnti Polychrome, IPS kerfið, sem gerir kleifa úrvinnslu á gögnum fyrir umbrotnar stafrænar blaðsíður í hin- um ýmsu kerfum. A þessari stundu er um að ræða OptiCopy Imposer II, ProStep (step-and-repeat) vélina og IPM 5000 projection kerfið. Síðasta nýjungin hjá Polychrome er Synard- ica-170 leysiplötuvél sem gerir mögu- legt að nota PS í fullum lit og mun það einnig verða mögulegt í úr- vinnslugögnum IPS í náinni framtíð. Sveigjanleiki með úrvinnslugögn verður sífellt mikilvægari á öllum svið- um bókagerðar. Af þeim sökum eru sífellt fleiri arkavélar notaðar við prentun bóka. Akiyama lítur t.d. á bókagerðarfólk sem væntanlega kaup- endur á nýrri Bestech 44in prentvél. Prentvélin getur tekið allt frá 44 x 32,25in pappír, niður í 60 micron. í ljósi minnkandi prentupplags bóka hverju sinni þá er annar kostur þessar- ar vélar að prentplötur raðast upp samhliða, sem auðveldar mjög skipt- ingu milli verka. Hálfsjálfvirkt plötuskiptakerfi er ein af þeim ástæðum að St. Ives hefur pantað fjögurralita Komori Lithrone 428 prentvél fyrir Clays í Bungury, Suffolk. Aðrar nýlegar pantanir/upp- setningar frá Bretlandi eru fjögurra- lita Heidleberg arkavélar fyrir The University Press, Courier Internation- al og Cambridge University Press. Korta- og atlasframleiðendurnir Phil- ip Print (áður George Philip) hafa pantað Nebiolo Colora size 7B, fjög- urralita prentvél. Það er litið á fram- angreint sem skref upp á við fyrir fyr- irtækin og skref í þá átt að geta, auk þess að prenta bækur í litum, prentað á carton. Önnur þróun í bókaiðnaðinum er að laga sig að margbreytileika mark- aðarins. BPMG hefur t.d. eftir að þeir komust yfir Redwood Press og arka- litprentara Eagle Books (núna gefið út sem Bath Press Colourbooks), farið út í blandaða útgáfu bóka og tímarita. Redwood hefur yfir að ráða fjórum Harris 850 samstæðum og fimm Rot- oman samstæðum og Bath Colour- books lét setja upp aðra Roland 800 size 7B prentvél á síðasta ári og er að þreifa fyrir sér með þann möguleika að geta prentað littímarit í allt að 20.000 eintaka upplagi. Fyrirtækið hefur einnig verið að gera prófanir, í samvinnu við Grafitec, á Plate Co- ordinator skráningarkerfi. Frank Miles, hópráðgjafi, bindur miklar vonir við þessar prófanir: „Við erum með nýtt klemmukerfi, sem tryggir það að plöturnar lenda rétt á prentflötinn. Með því að nota síðan venjulegt tölvulyklaborð getum við slegið inn leiðbeiningar til að aðlaga möndul- og hliðarstillingar og stilling- arnar koma inn sjálfkrafa. Við höfum því í raun fullkomlega sjálfvirkt tilrétt- ingarkerfi, sem einnig er hægt að nota sem heildar stjórnkerfi fyrir prentvél- ina“. Litur í rúlluvélina Miles segir að sama skapi enga fyrir- stöðu við það að hægt sé að framleiða bækur í lit á rúlluvélar. Hann segir: „Þær hafa þann kost að þær setja blekið mjög fast og kirfilega, þannig að gæðin verða betri á lággæðapappír. Það fylgir því einnig sparnaður að nota rúllur frekar en arkir, fyrir utan þann kost að prentvélin skilar frá sér umbrotnum örkum, auk þess sem til- réttingin tekur svipaðan tíma“. Þrátt fyrir að um 70% hágæða lit- prentaðra bóka séu núna framleiddar í stórum arkavélum, þá eru sífellt fleiri bókagerðarmenn farnir að snúa sér að litprentun í rúlluvélum. Rockwell hefur t.d. fengið pöntun frá Jarrold Printing á átta eininga, tveggja rúllna, 64-page G16, á meðan Mohndruck hefur fest kaup á 16-page KBA Compacta 214, sem þeir ætla að nota við arkavinnu litbóka með miðl- ungs upplag í huga. Það er greinilega ekki skortur á vél- um til að vinna þessi verk. Bæði MAN Roland og Rockwell hafa bent á nýja 16-page rúlluvél, á meðan Heidelberg Harris heldur því fram að 16-page M600, sem verður sett á opinberan markað í þessum mánuði, sé afar hæf til bókagerðar þar sem áherslan sé á hraðvirka tilréttingu frekar en mikinn keyrsluhraða. Rúlluprentun á einlita bókum er vitanlega ekki óalgeng. Timson fagn- aði uppsetningu hundruðustu T32 rúlluvélarinnar á síðasta ári og hefur 18 PRENTARINN 1.13.'93

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.