Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 19

Prentarinn - 07.01.1993, Blaðsíða 19
Yfir hundrað: Uppsetning Timson T32 bókaprentvéla. aukið við töluna frá því. Þar á meðal aðra vél fyrir Bath Press. Nýjustu T32 vélarnar eru fullkomnari en fyrri gerð- irnar, þar sem nýjasta viðbótin er Programmable Logic Control (PLC). Þar með er hægt að greina galla, stað- setja prentsílindra sjálfkrafa, ásamt því að aftengja aðaldrifið frá matara og umbroti á sjálfvirkan hátt þegar vélin stoppar. Aðrar nýjungar liggja í læsingarkerfi plötu, fjarstýrðri hliðar- stillingu á prentsílindrum og vél- væddri, nákvæmri stillingu fyrir tveggja lita prentvélar. Önnur góð bókaprentvél, sem nýtir sér nýjustu rafeindatækni, er Strachan Henshaw Machiner (SHM) Variquik. Þær hafa nú verið settar upp í Bret- landi, Frakklandi, Þýskalandi og Nor- egi og fyrsta pöntunin frá Bandaríkj- unum hefur verið staðfest. Þessi vél er nær eingöngu ætluð fyrir minni upp- lög. Kosel GmbH, í suður Þýskalandi, hefur t.d. komist að þeirri niðurstöðu að keyrsla geti verið á bilinu frá 1.500 - 30.000 eintök, þrátt fyrir að á 16 klukkustundum hafi verið skipt 45 sinnum um plötur. Breytingar annaö veifiö SHM hefur sett á markaðinn Meridi- an prentvél fyrir þau fyrirtæki sem hafa áhuga á lengri keyrslu. Eins og Variquik hefur vélin lóðrétta niður- röðun á rúllum og svipaða staðsetn- ingu sílindra, en hún er ekki tölvu- keyrð. Hins vegar hefur hún breiðari rúllu og keyrsluhraðinn er nálægt því tvöfalt meiri. SHM lítur svo á að besti kosturinn væri sá að keyra þessar tvær prentvélar hlið við hlið þannig að við- skiptavinurinn hafi eitt auka hylki fyr- ir Meridian vélina og breytti stærðinni 3-4 sinnum á ári, frá því að prenta royal stóra framleiðslu fyrir bóka- markaðinn niður í A5/A4 skýrslur og reikninga eða skrár. Hins vegar er, eins og með litabæk- ur, ekki hægt að vinna allar einlita bækur á rúlluvélar. Margir stórir per- fectorar hafa verið pantaðir/settir upp, þar á meðal Crabtree Series 900 hjá Bell og Bain í Glasgow og eru þessar prentvélar því orðnar fjórar hjá þessu fyrirtæki síðan 1978. Bresku umboðsaðilarnir fyrir JM Printa X prentvélarnar, Soag Machin- ery, hafa einnig náð góðum árangri í sölu á japönskum „blanket-to-blank- et“ perfectora til Staples Printers, Rochester (56in model og 50in model) og JW Arrowsmith (56in prentvél). Hraðari frágangur Meginstefna á sviði bókbands er auk- inn framleiðsluhraði. James Burn Int- ernational hefur t.d. þróað tölvuvætt færiband (book line), sem byggir á þeim götunar- og bókbandseiningum sem þegar eru notaðar. Með því að tengja BB32/37CD eða BB43 við sjálf- virka EXM43 götunareiningu er hægt að sníða bók allt upp í 43 x 43cm og tommu að þykkt og binda hana sjálf- krafa á miklum hraða. Smyth Europea Industrie hefur tek- ið upp book line tæknina með modul- ar færibandakerfi. Hægt er að auka sjálfvirkni jafnt og þétt, m.t.t. þess sem á undan er komið og öllu kerfinu er stýrt af einni aðaltölvu. Fyrirtækið leggur til að fyrsta skrefið í þróuninni verði að setja upp hliðarfæriband til að auka hleðslugetu skammtarans fyr- ir saumavélina. Því næst er hægt að bæta við manipulator og flæðilínu færiböndum. (Manipulator er sjálf- stýrð vél sem færir samansafnaðar arkir af flæðilínunni á hliðarfæriband sem flytur þær í saumavélina.) Síðasta skrefið er að bæta við færibandi sem flytur uppsafnaðar bækur, um aðflutn- ingsfæriband, í saumavélarnar. Saumavélarnar sjálfar hafa verið end- urbættar þannig að þær geta unnið 180 arkir á mínútu. Einnig er hægt að auka framleiðsluna með því að tölvuvæða tilréttingu. Það hefur verið gert í Kolbus Co-pilot kerfinu, sem nú er fáanlegt með end- urbættum Da-Strato casemaker og einnig í Muller Martini Inventa, með nýrri innbyggðri bókaaðgreiningu, sem gerir kleift að fullgera kjöl bóka, án þess að höndin þurfi að koma þar nálægt. Aðaláherslan varðandi saumavél- arnar er að bæta hraða þeirra. Grafo- tec hefur t.d. nýlega kynnt Aster 2000. Hún fer 200 hringi á mín. og þar með hægar en nýja saumavélin frá Kolbus, sem reyndar er ekki enn komin á markað. Aster saumavélin er útbúin nýju cam keyrslukerfi sem gerir vinn- una jafna og hljóðláta, einnig þegar hún er keyrð á fullum hraða. Aðrir eiginleikar hennar eru tölvustýrð upp- setning og möguleiki á að vinna arkir frá 150 x 75mm upp í 420 x 320mm stórar. Slíkar vélar hafa þegar verið settar upp í Frakklandi, Þýskalandi og á It- alíu. Bath Press var fyrsta breska fyr- irtækið til að panta slíka vél og GHE, umboðsaðili fyrir þessar vélar á Bret- landi, segir mikla eftirspurn eftir þess- um vélum og hafa þær verið settar upp hjá Hartnolls, Jarrold, Butler & Tanner, Biddles, Balding & Mansell, Henry Ling og Sherrats. Þetta bendir til þess að sú hefð að gefa fyrst út inn- bundnar bækur, áður en þær eru gefn- ar út á kiljuformi, sé enn ríkjandi. Hvað sem öðru líður þá er bóka- gerð enn ekki komin á lygnan sjó og á eftir að takast á við mjög erfiðar ákvarðanir hvað varðar fjárfestingar á komandi árum. PRENTARINN 1.13/93 19

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.