Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 3

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 3
Kjarasamningar Þegar þetta er ritað er algjör kyrrstaða í kjarasamn- ingaviðræðunum. Fyrir páska hafði fólk það á tilfinn- ingunni að saman væri að ganga í þríhliða viðræð- um ASÍ-VSÍ og ríkisstjórnarinnar en svo fór ekki. Kröfurnar sem settar eru fram af verkalýðshreyfing- unni eru svo hógværar og af þeim toga að erfitt er að átta sig á tregðu atvinnurekenda og ríkisstjórnar á að ganga tafarlaust til samninga. Kröfurnar sem fram voru settar og snúa að at- vinnurekendum eru þessar helstar: Sérstakar launabæturtil þeirra lægstlaunuðu verði hækkaðar og viðmiðunarlaunin sömuleiðis, einnig er gerð krafa um að þessar launabætur verði festar í samningum þannig að ekki þurfi að taka þetta atriði upp við hverja samningsgerð. Krafa um að eingreiðslurnar í júlí og desember verði hækkaðar. Fáist viðunandi niðurstaða í málunum sem snúa að ríkisstjórninni, þá er þetta allt og sumt sem krafist er af okkar viðsemjendum. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar á undanförnum vikum og mánuðum hafa leitt til hækkana á vörum og þjón- ustu og þar með rýrt kaupmátt launanna. Þetta kem- ur til viðbótar við stórfellt atvinnuleysi sem því miður dregur nánast ekkert úr. Með kröfunum sem beint er til ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að takast megi að ná sama kaupmætti og var að loknum síðustu samningum og að auka atvinnu í landinu. Þessar kröfur eru af þeim toga að ætlast verður til þess að ríkisstjórnin kom þar mjög til móts. Þessar kröfur eru helstar: Lækkun virðisaukaskatts á matvæli úr 24,5% í 14%; lækkun vaxta; að auknum fjármunum verði varið til atvinnuskapandi verkefna. í því sam- bandi er rætt um 2-3 milljarða króna á þessu og næsta ári. Við gerðum okkur Ijóst við undirbúning kröfugerð- arinnar í vetur að ekki væri staða til að setja fram neinar sérkröfur. Þess þá heldur er ætlast til þess ásættanleg niðurstaða náist sem allra fyrst. Evrópusamband verkalýðsfélaga Samtök launafólks víðs vegar um Evrópu efndu til aðgerða 2. apríl sl. til að leggja áherslu á sameigin- legar kröfur um úrbætur í atvinnumálum og félags- legar umbætur. Slagorð dagsins var: Evrópa - aukið lýðræði - félagslegar umbætur. Nokkur atriði úr ávarpi framkvæmdanefndar ETUC fara hér á eftir: í Ijósi gífurlegs atvinnuleysis sem eykur félagsleg vandamál og fátækt launafólks og fjölskyldna þeirra: Þegar haft er í huga hversu mjög félagsleg málefni hafa setið á hakanum í Evrópu og hve mikil hætta er á félagslegum undirboðum þrátt fyrir það að innri markaðurinn hefur verið við lýði frá því í ársbyrjun 1993: Þegar við blasir óþolandi aukning útlendinga- og kynþáttahaturs: Skorar framkvæmdastjórn Evrópusambands verkalýðsfélaga á allt launafólk í álfunni að taka höndum saman 2. apríl og lýsa yfir vilja til að byggja upp Evrópu sem einkennist af efnahagslegum og fé- lagslegum framförum, samheldni og umburðarlyndi og aukinni þátttöku og áhrifum verkalýðshreyfingar- innar. í öllum löndum álfunnar verður launafólk að grípa til sinna ráða, allt eftir því hvað hentar á hverjum stað, og koma á framfæri við ríkisstjórnir sínar, at- vinnurekendur, EFTA og EB kröfum um: Efnahagslega endurreisn sem byggist á sameigin- legu átaki til að auka hagvöxt og atvinnu. Til að þessi endurreisn verði að veruleika þurfa opinberar fjárfestingar að koma til bæði á landsvísu og með fjölþjóðasamvinnu. í þessu sambandi verði lögð áhersla á framkvæmdir sem taka til evrópskra sam- gangna og samgöngukerfa, umhverfisverndar og opinberrar þjónustu. Markmiðið með þessu endur- reisnarstarfi verði að stuðla að bættum félagslegum efnahag og félagslegri samheldni. Til að þetta takist verður fólk að ganga að því með opnum hug að hrinda áætlunum í framkvæmd sem hafa samhæf- ingu að leiðarljósi. Slíkar áætlanir taki mið af ríkjandi efnahagsástandi, varði veginn í átt til efnahagsbata og séu þannig úr garði gerðar að um þær takist þjóðfélagsleg sátt. 20/4 1993 Þ.G. prentariim ■ MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA PRENTARINN - málgagn Félags bókagerðarmanna • Útgefandi FBM Hverfisgötu 21 P.O. Box 349 121 Reykjavfk • Ritstjóri: Þórir Guðjóns- son. Ritnefnd: Elín Sigurðardóttir, Georg Páll Skúlason, Þorsteinn Vet- urliðason • Prentsmíð, prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. • Letur: Times og Helvetica • PRENTARINN 2.13/93 3

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.