Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 4
Yfirlit yfir starfsemi
FBM 1992-1993
Nú er boðað til aðalfundar Félags
bókagerðarmanna fimmtudaginn 29.
apríl n.k. kl. 17.00 að hótel Holiday
Inn við Sigtún. Svo sem félagsmenn
vita þá er aðalfundurinn okkar mikil-
vægasti fundur, a.m.k. hvað varðar allt
okkar innra starf, um uppbyggingu og
stefnumörkun. Því eru félagsmenn
eindregið hvattir til að mæta vel og
stundvíslega á aðalfundinn og taka
þar þátt í umfjöllun og afgreiðslu mál-
efna félagsins.
Um aðalfund félagsins segir m.a.
svo í lögum þess:
9.1. Aðalfund skal halda í apríl eða
maí ár hvert, og skal stjórn félagsins
boða til hans með minnst viku fyrir-
vara í tveimur fjölmiðlum hið fæsta og
á vinnustöðum félagsmanna. Greina
skal skýrlega í fundarboði dagskrá
fundarins og skal einkum geta laga-
breytinga ef fyrirhugaðar eru.
9.2. Aðalfundur fer með æðsta vald
í málefnum félagsins, nema gerð sé
lögleg undantekning þar á.
9.3. Dagskrá aðalfundar skal vera: 1.
Starfsskýrsla stjórnar og nefnda fyrir
liðið starfsár flutt. 2. Lagt fram yfirlit
yfir reikninga félagsins og sjóði þess
til samþykktar. 3. Lagabreytingar ef
fyrir liggja. 4. Stjórnarskipti. 5. Kosn-
ing tveggja endurskoðenda og tveggja
til vara. 6. Kosning sex manna í iðn-
réttindanefnd. 7. Kosning ritstjóra. 8.
Kosning í stjórn Lífeyrissjóðs bóka-
gerðarmanna. 9. Nefndakosningar. 10.
Önnur mál.
9.4. Aðalfundur er löglegur sé lög-
lega til hans boðað og hann sitji eigi
færri en 35 félagsmenn, þar af meiri-
hluti stjórnar. Verði aðalfundur ekki
löglegur vegna fámennis, skal boða til
nýs aðalfundar á sama hátt með 3
daga fyrirvara og er sá fundur lögmæt-
ur hversu fáir sem sækja hann.
Út frá þessum lagagreinum hlýtur
öllum félagsmönnum að vera ljóst að
á aðalfundinum, öðrum fundum frem-
ur, er hægt að taka stefnumarkandi
Ársreikningar FBM
og sjóða í vörslu þess árið 1992
Áritun endurskoðenda
Við höftnn endurskoðað ársreikning Félags bókageröarmanna og sjóöi í vörslu þess fyrir áriö 1992.
Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikninga, efhahagsreikninga, sjóðstreymi og skýringar nr. 1 - 14.
Við framkvæmd endurskoðunarinnar voru geröar þær kannanir á bókhaldi og bókhaldsgögnum sem
við töldum nauðsynlegar.
Pað er álit okkar að ársreikningurinn sé gerður í samræmi við lög félagsins og góða reikningsskilavenju
og gefi glögga mynd af rekstri félagsins og sjóöanna á árinu 1992, fjárhagsstöðu 31. desember 1992 og
breytingu á handbæru fé árið 1992.
Reykjavík, 18. mars 1993.
ENDURSKOÐUNARSKRIFSTOFAN HF.
Löggiltir endurskoðendur
annar M. Erlingsson
Gunnar M. Erlingsson
Áritun kjörinna endurskoðenda
Við undirritaöir, kjörnir endurskoðendur Félags bókagerðarmanna, höfiim yfirfarið ársreikning féiagsins
og sjóði í vörslu þess fyrir árið 1992. Viö vísum til áritunar Gunnars M. Erlingssonar, löggilts endurskoðanda,
og leggjum til að ársreikningurinn verði samþykktur.
Reykjavík, 18. mars 1993.
Aritun stjórnar
Stjóm Félags bókagerðarmanna staðfestir hér með ársreikning félagsins fyrir árið 1992 með undirritun sinni.
Reykjavík, 22. mars 1993.
Stjóm :
/
4
PRENTARINN 2.13.’93