Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 13

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 13
Félagsfundur í febrúar sl. unnið að gerð orðabókar prentiðnað- arins og er markmið Prenttæknistofn- unar að hún komi út í lok þessa árs. Umsjón með þýðingum og orðabókar- smíðinni hefur Karl Emil Gunnarsson. Verkefnið er unnið með styrk úr Starfsmenntasjóði ríkisins. Rekstur Prenttæknistofnunar er kostaður með framlagi sem er 1% af launum allra starfsmanna með aðild að FBM. Framlagið er ekki dregið beint af launum starfsfólks, heldur er launataxti 0,5% lægri en annars væri og atvinnurekendur bæta við 0,5%. Auk þess borga félagsmenn FBM 2.000 króna námskeiðsgjald. Þar að auki hefur Starfsmenntasjóður ríkisins veitt talsverðu fé til stofnunarinnar; haustið 1992 tveimur milljónum til námsgagnagerðar og þýðinga fyrst og fremst og svo aftur nú í vetur um einni milljón til greiðslu stofnkostnað- ar vegna tveggja námskeiða. Talsverðar umræður urðu í vetur í stjórn Prenttæknistofnunar og víðar um að gefa almenningi kost á að sækja námskeið sem Prenttæknistofn- un heldur sem lauk með því að stjórn stofnunarinnar ákvað að nokkur nám- skeið skyldu opin almenningi. Strax í upphafi þegar FÍP og FBM gerðu samning um Prenttæknistofnun var ákvæði í þeim samningi sem hljóðar svo: „Námskeið skulu haldin fyrir starfs- fólk í prentiðnaði. Einnig er stjórn stofnunarinnar heimilt að selja nám- skeið til annarra. Þeir aðilar sem ekki eiga aðild að Prenttæknistofnun, en sækja námskeið þar, greiða viðbótar- gjald eftir nánari ákvörðun stjórnar Prenttæknistofnunar.“ Það lá því fyrir frá upphafi að mögulegt yrði að hafa einhver nám- skeið opin almenningi. Akvörðun stjórnarinnar felur það í sér að starfs- fólk í prentiðnaði hefur forgang að þessum námskeiðum fram að ákveð- inni dagsetningu fyrir námskeið. Jafn- SKÝRINGAR MEÐ ÁRSREIKNINGI (frh.) Gjöld: Réttindagreiðslur......................................................................... 544.512 Ritstörf v/prentiðnaðarsögu............................................................... 524.270 Rekstur fasteignar...................................................................... 1.603.210 Vaxtagjöld og verðbætur.................................................................... 24.723 Reiknuð gjöld vegna verðlagsbreytinga..................................................... 471.185 3.167.900 Tekjuafgangur Styrktar- og tryggingasjóös.............................................. 5.651.016 Orlofssjóður: Tekjur : 3% af félagsgjöldum (skv. aðalfundarsamþykkt)............................................. 491.207 Leiga orlofsheimila..................................................................... 1.403.500 Orlofsheimilasjóðsgjald................................................................. 3.875.092 5.769.799 Gjöld: Rekstur orlofsheimila................................................................... 6.848.157 Tekjutap Orlofssjóðs.................................................................. (1.078.358) Félagssjóöur : Tekjur : 65% af félagsgjöldum (skv. aðalfundarsamþykkt)..................................... 10.642.825 Dráttarvaxtatekjur.................................................................... 1.224.394 11.867.219 Gjöld : Kostnaöur............................................................................ 12.453.195 Tekjutap Félagssjóðs................................................................. (585.976) Samandregið : Styktar- og tryggingasjóður...................................................... 5.651.016 Orlofssjóöur..................................................................... (1.078.358) Félagssjóður....................................................................... (585.976) 3.986.682 6. Óinnheimt iögjöld í árslok 1992 nema 7,4 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Mat þeirra byggist á reynslu liðinna ára og er stuðst við gögn sem fyrir liggja um skil eftir lok reikningsárs. Langtímakröfur : 7. Handhafaskuldabréf i eigu Sjúkrasjóðs eru að nafnverði kr. 220 þús kr., en með áföllnum verðbótura og vöxtura 1,9 millj. kr. Bréfin eru í vanskiium. 8. Gjaldfallnar og næsta árs afborganir af verðbréfaeign eru færðar meðal veltufjármuna. PRENTARINN 2.13/93 13

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.