Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 16

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 16
Vinnustaðafundur í Ásprent, Akureyri. byggingu náms í prentiðnaði." í nefndinni áttu sæti fulltrúar ráðuneyt- is og atvinnulífs, frá ráðuneyti Ólafur Arnarson aðstoðamaður menntamála- ráðherra og Hörður Lárusson deildar- stjóri framhaldsskóladeildar og frá Prenttæknistofnun Guðbrandur Magnússon. Nefndin skilaði áliti til mennta- málaráðherra 6. nóvember 1992 ásamt tillögu um breytingu á framhalds- skólalögum sem hún taldi nauðsynlegt að gera til að hugmyndir um endur- bætur mættu ná fram að ganga. Menntamálaráðherra samþykkti til- lögu nefndarinnar og lagði fram eftir- farandi frumvarp á Alþingi í samræmi við tillögu nefndarinnar: „Mennta- másaráðherra er heimilt að efna til til- raunastarfs í starfsnámi og víkja þá frá ákvæðum þessara laga ef nauðsyn krefur. Slíkt tilraunastarf skal að jafn- aði ekki skilgreint til lengri tíma en tveggja ára í senn og skal hafa fulll samráð við fulltrúa atvinnurekenda og launþega í viðkomandi starfsgrein um skipulagningu tilraunarinnar.“ í at- hugasemdum með frumvarpinu segir m.a.: „Að undanförnu hafa komið fram nýjar hugmyndir um uppbygg- ingu og skipan náms í framhaldsskól- um, einkum verklegs náms og hafa fulltrúar nokkurra iðngreina rætt þann möguleika við ráðuneytið að gerðar verði breytingar á núverandi fyrirkomulagi. Þessar hugmyndir fela í sér aukna ábyrgð atvinnulífs, bæði faglega og fjárhagslega, og beina þátt- töku aðila vinnumarkaðarins í fram- kvæmd skólahalds og eftirliti með því. Verknám er þess eðlis að mikilvægt er að nýjar hugmyndir um stjórnun og skipan náms nái skjótt fram að ganga. Tæknibreytingar eru hraðar og eiga upptök sín úti í atvinnulífinu og þess vegna þarf að búa þannig um hnútana í skipulagi iðnnámsins að áhrif at- vinnulífsins séu tryggð og menn þar hafi aðstöðu til að fylgja eftir breyt- ingum í tækni og viðskiptum með skil- virkum hætti í menntakerfinu og beri ábyrgð í samræmi við áhrif. Núverandi stjórnunarform fram- haldsskóla, einkum þegar um er að ræða sérnám á afmörkuðum brautum, hefur nokkra vankanta sem nauðsyn- legt er að losna við. Nokkuð hefur borið á samskiptaörðugleikum sem trúlega mætti lagfæra með því að stytta boðleiðir og flytja stjórnunar- valdið í auknum mæli til atvinnulífs- ins. Hver iðngrein þarf að búa við sem mest sjálfstæði hvað þetta varðar. Er hér um það að ræða að koma á raun- verulegum og beinum tengslum milli skóla og atvinnulífs.“ Nefnd um mótun menntastefnu sem ráðherra skipaði tók undir flest af því sem Prenttæknistofnun hefur lagt til iðnfræðslumálanna og mælir eindregið með því að heimild verði veitt til þess tilraunastarfs sem lagabreytingin felur í sér. Þegar þessar línur eru settar á blað er ekki ljóst urn framvindu frumvarps- ins á Alþingi, en verði það samþykkt gefst menntamálaráðherra kostur á að skipa sérstakan starfshóp til að undir- búa tilraunastarf við bókiðnadeild Iðnskólans og fylgja eftir breytingum á námsfyrirkomulagi og nýjum nám- skrám. Látnir félagar Frá síðasta aðalfundi hafa níu félags- menn látist, þeir eru: Kristjón Isaks- son, Þórarinn Loftsson, Rögnvaldur Sigurðsson, Sigríður Björnsdóttir, Ólafur Jakobsson, Ari Gíslason, Guð- laug Erlingsdóttir, Jón Ágústsson og Helgi Kr. Jónsson. Við minnumst þessara félaga allra með virðingu og þökkum fyrir samstarfið. Félagaskrá Á árinu 1992 voru samþykktar 105 inntökubeiðnir. Hér er að langstærst- um hluta um að ræða fólk sem hafði unnið mánuðum og jafnvel árum sam- an á okkar starfssviði en hafði trassað að senda inntökubeiðnina til félagsins. Ursögn var 1, miðað við almanaksár- ið. Skráðir félagar nú eru 992, þar af eru 61 ellilífeyrisþegi og 16 öryrkjar sem hættir eru störfum. Skiptingin er að öðru leyti þannig: Meðtaldir þeir sem ekki greiða gjöld: Iðnlærðir eru 600; starfsþjálfunarnemar eru 47; ófaglærðir félagar (innskrift, aðstoðar- fólk í bókbandi og prentun) eru 345. Útgáfumálin - Prentarinn Á síðasta ári voru gefin út þrjú tölu- blöð af Prentaranum. Eitt tölublað kom svo út í janúar á þessu ári og þetta er því annað tölublað þessa árs. Á síðasta aðalfundi lá fyrir tillaga um að kjósa í ritnefnd þau Elínu Sig- urðardóttur, Georg Pál Skúlason og Þorstein Veturliðason. Tillagan var samþykkt samhljóða. Þrátt fyrir að til staðar sé ritstjóri og ritnefnd skal enn árétta þau tilmæli til félagsmanna að skrifa greinar í blaðið um hvað sem er en þó helst um mál- efni er snerta fagið og félagsmálin. Það er væntanlega flestum félags- mönnum ljóst að til þess að auka út- gáfutíðnina og fjölbreytni í efni blaðs- ins er mjög mikilvægt að félagarnir verði við þessum óskum. Kjaramálin Þegar við vorum hér á aðalfundi fé- lagsins fyrir réttu ári þá höfðu kjara- samningar okkar verið lausir í rúm- lega sex mánuði. Auðvitað erum við öll mjög ósátt við það að slíkur drátt- ur verði. En staðreynd er að þegar „aðilar vinnumarkaðarins“ eru að freista þess að ná einhverskonar heildarlaunum í samningamálum og verkalýðsfélögin upp til hópa ákveða í raun að aðhafast ekkert þá er okkar staða auðvitað mjög veik. Gamla kraf- an um „samning í samning“ er að 16 PRENTARINN 2.13.'93

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.