Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 18

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 18
Frá skógræktardeginum í Miðdal. Vaxtamál - að ríkisstjórn og peninga- stofnanir sjái til þess að til komi veru- leg lækkun raunvaxta. Tillagan var svo samþykkt á félags- fundi hinn 25. febrúar s.l. í beinu framhaldi af því var óskað eftir fundi með atvinnurekendum um samninga- málin. Einn fundur hefur verið hald- inn þar sem við lögðum fram kröfurn- ar og fórum yfir þær og rökstuddum. Varla þarf að reikna með öðrum fundi fyrr en heildarsamtökin hafa samið eða a.m.k. komin svo langt að sjái fyr- ir endann á samningagerðinni. Við síðasta samning var sett niður nefnd til að vinna að tillögum um breytingar á vinnutímaákvæðum samningsins. I nefndinni hefur verið fundað nokkuð stíft undanfarnar vik- ur og málin orðin það ljós að gera má ráð fyrir að niðurstöðurnar liggi fyrir þegar við tökum afstöðu til nýs kjara- samnings, þannig að þá gætum við einnig tekið ákvörðun um hvort við viljum breyta vinnutímaákvæðunum, fyrir það sem fæst þar á móti. Atvinnumálin Þegar við vorum hér á aðalfundi í fyrra voru 27 félagar á atvinnuleysis- skrá. Frá þeim tíma hefur atvinnuleysi farið mjög vaxandi. Fjöldi atvinnu- lausra félaga varð mestur í janúar þessa árs en þá voru 68 félagar á bót- um. Frá því hefur heldur fækkað á at- vinnuleysisskránni og nú í byrjun apríl er staðan þessi: Atvinnulausir bók- bindarar eru 7; prentarar 8; prent- smiðir 13; starfsþjálfunarnemar 5; grafískir hönnuðir og textainnritarar 6; aðstoðarfólk úr bókbandi og prent- un 15. Þessu til viðbótar eru nú 5 ófag- lærðir félagar á svokölluðum biðtíma þ.e. þeir hafa lokið 52 vikna bótatíma- bili og falla þá út af atvinnuleysisbót- um næstu 16 vikurnar en eiga á þeim tíma rétt á bótum hjá Félagsmála- stofnun. Þá eru 6 ófaglærðir félagar í 50% starfi. Þar er ýmist um að ræða að vinna hefur dregist saman og fólkinu verið boðið hlutastarf eða félagar ráðnir af atvinnuleysisskrá. Þessir fé- lagar eru þá á hlutfallslegum bótum á móti hlutastarfinu. Á árinu 1992 fengu 102 einstakling- ar greiddar samtals rúmlega 16,7 millj- ónir króna í atvinnuleysisbætur. Fullar atvinnuleysisbætur eru nú kr. 10.703 á viku, auk 428 kr. með hverju barni undir 18 ára aldri. Starfsmenn félagsins reyna einnig að halda skrá yfir þá faglærðu félagsmenn sem fá vinnu í öðrum starfsgreinum. Núna eru 10 félagar á þeirri skrá. Samkvæmt framantöldu eru því 28 faglærðir félagar atvinnulausir, 5 starfsþjálfunarnemar og 26 ófaglærðir eða samtals 59 félagar sem er nálægt 7% vinnufærra félagsmanna. Þetta er auðvitað svo hrikalegur fjöldi að engu tali tekur. Sérstaklega með stöðu þessarra mála í huga skal litið til kröfugerðarinnar í yfirstandandi samningum. Trúnaðarmannaráð samþykkti á fundi sínum í september að fram skyldi fara undirskriftasöfnun meðal félagsmanna þar sem mótmælt yrði til- lögu í ríkisstjórn um að afnema endur- greiðslur virðisaukaskatts af útgáfu og menningarstarfsemi. Texti undir- skriftablaðsins var svohljóðandi: „Við undirritaðir, félagar í Félagi bókagerðarmanna, mótmælum harð- lega framkominni tillögu um að af- nema endurgreiðslur virðisaukaskatts af útgáfu- og menningarstarfsemi. Við teljum að verði tillaga þessi samþykkt muni ein afleiðing þess verða stórauk- ið atvinnuleysi í okkar röðum. Því verður að afstýra með því að koma í veg fyrir samþykkt tillögunnar." Rúmlega 700 félagar skrifuðu undir þessa áskorun á þeim tiltölulega fáu dögum sem undirskriftasöfnunin stóð yfir. Undirskriftalistarnir voru svo af- hentir forsætisráðherra með svohljóð- andi bréfi: „Reykjavík, 8. október 1992. Hæst- virti forsætisráðherra. Nú liggur fyrir ríkisstjórn þinni tillaga um að afnema endurgreiðslur virðisaukaskatts af út- gáfu- og menningarstarfsemi. Ef til- laga þessi verður samþykkt, eða önn- ur er hefði sambærilegar afleiðingar, þá munu bókagerðarmenn sjá á eftir enn stærri hluta prentverkefna til út- landa. Hjá Félagi bókagerðarmanna eru nú 35 félagar á atvinnuleysisskrá en það samsvarar rúmlega 4%. Verði gripið til íþyngjandi aðgerða fyrir út- gáfustarfsemina er alveg víst að af mun hljótast stóraukið atvinnuleysi. í athugun sem við höfum gert kem- ur í ljós að búast má við 60-70 félög- um til viðbótar á atvinnuleysisskrá á næstu mánuðum verði tillagan sam- þykkt. Þá verða 95-105 félagar at- vinnulausir eða 11-12%. I þessari at- hugun gerum við þó ráð fyrir að öll núverandi prentfyrirtæki verði áfram starfandi - sem vissulega er mjög óvarlegt að reikna með - hitt er mun sennilegra að einhver þeirra verði gjaldþrota. Þá mun ástandið auðvitað verða enn verra en að framan er lýst. Til viðbótar við stóraukið atvinnu- leysi munu aðrar beinar afleiðingar verða minni skatttekjur ríkis og sveitar- félaga - og stóraukin útgjöld Atvinnu- leysistryggingarsjóðs og trúlega einnig ábyrgðarsjóðs vegna gjaldþrota. Til að forðast þær afleiðingar sem að framan er lýst þá skorum við á þig, hæstvirtur forsætisráðherra, að falla al- gerlega frá áformum um frekari skatt- lagningu á íslenska útgáfustarfsemi. Virðingarfyllst f.h. Félags bókagerðarmanna Þórir Guðjónsson formaður 18 PRENTARINN 2.13.'93

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.