Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 19
Eldri félagar njóta
veðurblíðunnar í Miðdal.
Samrit til: Félagsmála-, fjármála-, iðn-
aðar- og menntamálaráðherra.
Meðfylgjandi eru undirskriftir rúm-
lega 700 félagsmanna.“
Þá fengu nokkrir ráðherrar og al-
þingismenn svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 1. október 1992.
Varðar tillögu ríkisstjórnarinnar um
afnám endurgreiðslu innskatts af að-
föngum til bóka-, blaða- og tímarita-
gerðar.
Ágæti ráðherra. (þingmaður)
Þessar línur rita ég þér til að freista
þess að útskýra hverjar afleiðingar Fé-
lag bókagerðarmanna telur að af þess-
ari tillögu muni hljótast verði hún
samþykkt.
Hvað okkur varðar þá höfum við
vissulega mestar áhyggjur af atvinnu-
málaþætti þessa máls, þótt menningar-
legi þátturinn vegi hér vissulega einn-
ig mjög mikið og er þjóðinni örugg-
lega mikilvægari en nokkrir tugir
starfa.
Það er svo að til margra ára hafa ís-
lenskar prentsmiðjur verið í harðvít-
ugri samkeppni við erlendar prent-
smiðjur hér á innanlandsmarkaði.
Staðreynd er að sífellt fleiri verkefni,
bæði stór og smá, eru prentuð erlend-
is. Verði svo frá þessu máli gengið að
möguleikar íslenskra útgáfufyrirtækja
verði þrengdir þá er með því verið að
vísa fyrirtækjunum með útgáfu sína úr
landi, auk mikils samdráttar vegna
hækkaðs útsöluverðs á því sem prent-
að yrði hér á landi.
Sem dæmi má nefna útgáfufyrirtæki
hér í borg sem áformar að gefa út u.þ.b.
75 bókatitla nú í haust af þeim munu
um 36 verða prentaðir erlendis með til-
heyrandi afleiðingum fyrir íslenska
bókagerðarmenn og prentfyrirtæki.
Þetta er auðvitað skelfileg þróun, um
það hljóta allir að vera sammála.
Nái þessi tillaga fram að ganga þá
teljum við fullvíst að:
- bókaútgáfufyrirtæki munu í enn rík-
ara mæli láta vinna bækurnar erlendis,
geyma upplögin í tollvörugeymslu og
leysa þaðan út eftir þörfum
- bókaklúbbar fara mjög sennilega
allir með útgáfu sína utan (nú þegar
er allur kiljuklúbbur MogM prentaður
í Skotlandi) og láta senda bækurnar
þaðan beint til kaupenda
- tímaritaútgáfan mun vafalaust að
talsverðu leyti fara sömu leið og bóka-
klúbbarnir.
Hér er alls ekki verið að mála
skrattann á vegginn, né heldur að slá
fram einhverju sem ekki mun af leiða,
því miður.
Áætlað er að ríkissjóður spari um
170 millj. kr. með því að hætta endur-
greiðslum vegna bóka. Þá er væntan-
lega miðað við hvað endurgreitt var
vegna bóka á s.l. ári. Ef reiknimeistar-
ar áætla að samþykkt tillögunnar hafi
engin áhrif, þ.e. geri ráð fyrir að jafn-
mikil framleiðsla og sala verði hér
innanlands á næsta ári og var 91, þá
eru það forsendur sem alls ekki munu
standast. Það er alveg ljóst að prentun
bóka, blaða og tímarita hér innan-
lands mun dragast verulega saman.
Það þýðir lægri skattgreiðslur ein-
staklinga og fyrirtækja - en aukin út-
gjöld til Atvinnuleysistryggingasjóðs
og ábyrgðarsjóðs vegna gjaldþrota
fyrirtækja sem af myndi leiða. Ef öll
áhrifin af þessari boðuðu breytingu
yrðu tekin saman trúi ég að sparnaður
ríkissjóðs mundi verða mjög óveruleg-
ur. Er forsvaranlegt að taka jafn af-
drifaríka áhættu, atvinnu- og menn-
ingarlega og hér er stefnt að, fyrir
mjög óverulegan ávinning? Atvinnu-
leysi í okkar röðum hefur verið við-
varandi frá árinu 1988. Það hefur þó
aldrei verið eins mikið og á þessu ári,
var um 4,7% á vormánuðum en er
núna, þegar aðalvertíðin er komin í
gang, 4% eða 35 félagar. Við áætlum
- og teljum það alls ekki ofmetið - að
samþykkt tillögunnar myndi hafa í för
með sér að atvinnuleysi bókagerðar-
manna færi í 11-12% eða 95-105
manns. Þá gerum við ekki ráð fyrir því
að nokkurl fyrirtæki færi á hausinn af
þessum sökum - trúlega er það alltof
mikil bjartsýni og óskhyggja að gera
ekki ráð fyrir einhverjum gjaldþrot-
um.
Þetta er sú alvarlega mynd sem við
okkur blasir og við verðum að koma í
veg fyrir að verði að veruleika.
Ég bið þig að vinna málstað okkar
fylgis og leggjast gegn þessari tillögu
sem og öðrum tillögum sem fram
kunna að koma og hafa myndu svip-
aðar afleiðingar.
Virðingarfyllst
f.h. Félags bókagerðarmanna
Þórir Guðjónsson
formaður"
Félagið hefur reynt að koma til
móts við óskir og þarfir atvinnulausra
félaga t.d. með því að greiða að fullu
námskeiðsgjöld hjá Prenttæknistofnun
og sömuleiðis aðgangskort að líkams-
ræktarstöðinni Mætti. Þá eiga okkar
atvinnulausu félagar að sjálfsögðu að-
gang að námskeiðum þeim hjá MFA
sem ætluð eru atvinnulausum.
Starfsmenn félagsins leggja sig sér-
staklega fram við að útvega atvinnu-
lausum félögum vinnu. Margoft hafa
kjarasamningsákvæðin um ráðningu
starfsfólks verið ítrekuð bæði við ein-
staka atvinnurekendur og samtök
þeirra. Hvað þessi mál snertir er mjög
mikilvægt að trúnaðarmenn okkar á
vinnustöðunum fylgist sérstaklega vel
með öllum breytingum á starfsmanna-
haldi og láti starfsmenn félagsins taf-
arlaust vita um allar breytingar.
Vinnustaöafundir
Á liðnu starfsári voru að venju haldnir
vinnustaðafundir. Samningsákvæði
PRENTARINN 2.13/93
19