Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 20
Eldri félagar á ferö í
Miðdal sl. sumar.
okkar um þessa fundi veita okkur rétt
til að halda tvo slíka á ári hjá hverju
fyrirtæki. Til þeirra má verja einni
klst. af dagvinnutíma í hvort sinn.
Sú venja hefur skapast að starfs-
menn félagsins hafa oftar en ekki haft
forgöngu um að halda þessa fundi en
æskilegt er að trúnaðarmenn fari í
auknum mæli fram á að vinnustaða-
fundir séu haldnir. Þetta eru alla jafna
góðir fundir því á þeim fá viðstaddir
stjórnarmenn nokkuð glögga mynd af
því sem efst er í hugum félagsmanna
um málefni félagsins. Að sjálfsögðu
eru allir stjórnarmenn tilbúnir til að
mæta á vinnustaðafundi komi fram
ósk þar um.
Hversu fjölmennir og gagnlegir sem
vinnustaðafundir annars eru geta þeir
aldrei komið í stað, oft miklu fámenn-
ari, almennra félagsfunda. Mjög mikil-
vægt er að félagsmenn geri sér grein
fyrir þessu og mæti vel á aðal- og fé-
lagsfundi.
Orlofssvæði
Eins og undanfarin ár var aðaláhersl-
an lögð á uppbyggingu orlofslandsins
okkar í Miðdal. Einnig er unnið mark-
visst að uppbyggingu á orlofssvæðun-
um í Ölfusborgum og Illugastöðum.
Að mörgu þarf að huga og hér að
neðan er það helsta talið sem unnið
hefur verið í undanfarið orlofsár.
í Miðdal var unnið að því að bæta
aðstöðu til útivistar fyrir börn og leik-
tæki sett upp. Við tjaldsvæðið var
einnig þjónustan bætt, hellulagt var
fyrir framan þjónustumiðstöðina og
íþróttavöllur malbikaður. Tveir um-
sjónarmenn voru í Miðdal á aðalanna-
tímanum eða frá byrjun júlí og fram í
miðjan ágúst. Aðsókn félagsmanna
hefur aukisl til muna eftir að tjald-
svæðið og þjónustumiðstöðin voru
tekin í notkun. Sannast hefur að mikil
þörf er fyrir hvorutveggja.
I byrjun sumars var farin ferð til
gróðursetningar í Miðdal. Gróðursett-
ar voru um 300 plöntur. U.þ.b. 40 fé-
lagar og fylgifólk sá um gróðursetn-
inguna. Gróðursett var í vesturenda
tjaldsvæðisins og austan við hjólhýsa-
svæðið. Gott veður var til gróðursetn-
ingar í Miðdal þennan júnídag sem
endaði með glampandi sól í grillveisl-
unni sem var kærkomin eftir erfiði
dagsins. Það er greinilegt að félagar
láta sér umhugað um orlofslandið og
vilja félagslega uppbyggingu þar sem
mesta. Fyrirhugað er að fara aðra
gróðursetningarferð á komandi sumri.
FBM hefur í samstarfi við Miðdals-
félagið unnið að vegaframkvæmdum
og öðru sameiginlegu í Miðdal. Um
þessar mundir er verið að setja ný hlið
í efra- og neðrahverfið til að auka ör-
yggi á svæðinu. Fyrirhugað er að laga
brýr sem eru orðnar lélegar.
Nú er aðeins eitt ár þar til jörðin er
laus úr ábúð og því er farið að huga
að hvað gera skuli við landið. Hug-
myndir eru uppi um að athuga með
golfaðstöðu á túnunum en það er að-
alhugmyndin sem fram hefur komið á
aðalfundum undanfarin ár þegar um
þetta landsvæði hefur verið rætt. Á
þessum aðalfundi þarf að kjósa nefnd
sem fær það verkefni að setja niður
tillögur um framtíðarnýtingu jarðar-
innar og húsanna sem á henni eru.
Stefnt skal að því að tillögur nefndar-
innar verði teknar til umræðu og af-
greiðslu á félagsfundi síðar á þessu ári.
Orlofshúsin í Miðdal voru í næstum
fullri nýtingu frá byrjun maí og fram í
september. Fjöldi manns kom einnig á
tjaldsvæðið sem er eingöngu ætlað fé-
lagsmönnum.
í Ölfusborgum tóku félagar mjög
vel við sér og nýttu hinn nýja og end-
urbætta bústað mjög vel og hefur mik-
ið verið sótt þangað einnig í vetur. Fé-
lagar sækja mikið norður og eru 111-
ugastaðir mjög vinsæll staður. Full
nýting var þar og á Akureyri.
Stjórn félagsins hefur ákveðið að
skipta við Iðju á Akureyri á bústað í
Miðdal og Illugastöðum frá miðjum
júlí og allan ágúst. FBM hefur því tvo
bústaði að Illugastöðum hálft sumarið
en einum færri í Miðdal á sama tíma. í
Furulundi á Akureyri hefur verið
unnið að endurbótum á íbúðinni sem
hefur verið í leigu á almennum mark-
aði undanfarna mánuði. Búið er að
leggja parketlíki á alla íbúðina sem
kemur mjög vel út.
Samkvæmt tillögu á síðasta aðal-
fundi var ákveðið að athuga þörf fyrir
orlofsíbúð í Reykjvík. Trúnaðar-
mannaráð ákvað að Helgi Hólm
Tryggvason, Svanur Jóhannesson og
Georg Páll Skúlason skyldu vinna að
málinu. Nefndin kom með tillögu um
að FBM reyndi að finna samstarfsfé-
lag til að kaupa eða nýta íbúð með og
sjá hvernig það kæmi út. Það var sam-
þykkt og verið er að vinna að því nú.
Það er ánægjulegt að sjá hvað fé-
lagar eru áhugasamir um orlofsmál fé-
lagsins og hve mikið þeir sækja í or-
lofshúsin. Samstilltir félagsmenn ná
góðum árangri í uppbyggingu orlofs-
landsins og njóta sumarfrísins í yndis-
legu umhverfi.
Erlend samskipti
Á liðnu starfsári var samstarf okkar
við erlend stéttarsystkini og félög með
sama hætti og fyrr. FBM er aðili að
þremur samböndum þ.e. Nordisk
Grafisk Union (NGU), Evrópusam-
bandi bókagerðarmanna (EGF) og
Alþjóðasambandi bókagerðarmanna
(IGF).
I gegnum árin hefur samstarf okkar
verið mest við NGU. Einn fastur ár-
legur fundur er nú á þess vegum þ.e.
aðalfundurinn. Á þessum fundi eigum
við þrjá fulltrúa. Þá stendur NGU, yf-
irleitt á tveggja ára fresti, oftar ef
ástæða þykir til, fyrir sérráðstefnu um
eitthvert afmarkað mál sem efst er á
baugi hverju sinni.
Annar fastur liður í erlendu sam-
skiptunum er að sækja þing aðildarfé-
laga NGU. Algengast er að félögin
haldi þing sín á þriggja ára fresti og þá
20
PRENTARINN 2.13.'93