Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 21

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 21
Nýju leiktækin í Miðdal er jafnan boðið einum fulltrúa frá FBM. Á síðasta ári sóttu fulltrúar félags- ins ársfund NGU og auk þess tvær sérráðstefnur sem haldnar voru á þess vegum. Þá var fulltrúi okkar á 90 ára afmælisþingi AGK í Oslo og einnig á þingi Dansk Trypograf Forbund í Kaupmannahöfn. Á vegum EGF var haldin ráðstefna um vaktavinnumál og þangað sendum við einn fulltrúa, þá var einnig fundur í stjórnarnefnd EGF þar sem fulltrúi okkar mætti, enda á hann sæti í stjórnarnefnd Evr- ópusamtakanna. Nordisk Grafisk Union ákvað að halda ársfund sinn á íslandi í ár og verður hann 22.-26. maí n.k. Áformað er að gera þeim fundi sérstaklega góð skil hér í Prentaranum. Öryggisnefnd Öryggisnefnd prentiðnaðarins er skip- uð eftirtöldum mönnum: Svani Jó- hannessyni og Þóri Guðjónssyni frá Félagi bókagerðarmanna en frá Félagi ísl. prentiðnaðarins eru þeir Örn Jó- hannsson og Steindór Hálfdánarson í nefndinni. Á árinu 1992 var haldinn kynning- arfundur á vegum Félagsmálaráðu- neytisins um vinnuverndarár Evrópu sem byrjaði 1. mars 1992 og stóð til 1. mars 1993. Hólmfríður Gunnarsdóttir frá Vinnueftirliti ríkisins var skipuð verkefnisstjóri. Á þessurn fundi kom fram að Öryggisnefnd prentiðnaðarins væri eina virka öryggisnefnd sérgreina (skv. 1. nr. 46, ll.gr.). Frá Vinnueftirlitinu var sent út bréf þar sem boðið var upp á faglega ráð- gjöf til þeirra sem áhuga hafa á vinnu- vernd, ennfremur tilkynnti Hólmfríð- ur að veitt yrði nokkurt fjármagn til þess að styrkja samtök og áhugahópa til átaka á þessu sviði. Til dæmis til funda, ráðstefna, kannana, mynd- bandsgerðar o.þ.h. Öryggisnefndin hélt fund snemma sumars og ákvað að sækja um styrk til myndbandsgerðar um öryggismál í prentiðnaði. - Tilkynning barst síðan frá Vinnueftirlitinu 22. september um að veittar hafi verið kr. 200.000 til þessa verkefnis og styrkurinn greiðist út gegn framvísun reikninga þegar verkefninu er lokið. Nefndin hélt nokkra fundi um mál- ið og ákvað svo að bjóða verkið út. Seint á árinu var sent út bréf til 11 kvikmyndafyrirtækja og leitað eftir til- boði í 10 mínútna langt myndband. Tilboðsfrestur var til 15. jan. 93. Til- boð bárust frá 8 fyrirtækjum. Farið var yfir tilboðin og þau rædd. Litið var á nokkur sýnishorn af mynd- um frá þeim aðilum sem sendu inn til- boð með umsögn um getu sína. Ákveðið var að ræða nánar við Sagafilm hf. þó án nokkurra skuld- bindinga en tilboð þeirra þótti koma mest til greina. Einnig var ákveðið að ræða við þá um gerð handrits að myndinni ef til kæmi. Loks var samið við Sagafilm um gerð myndbandsins og verður það tilbúið í sumar. Þá var rætt um það í öryggisnefnd- inni að leita til fyrirtækja sem tengd- ust prentiðnaðinum til að fjármagna verkefnið. Var skrifað til 25 fyrirtækja í þessu skyni. Ennþá hefur ekkert komið út úr þessu en vonandi verða einhversstaðar jákvæð viðbrögð. Sjúkrasjóðurinn Sjúkrasjóðurinn okkar hefur sem fyrr reynst traustur bakhjarl þeim félögum sem til hans hafa þurft að leita. Á síðasta ári voru sjúkradagpening- ar greiddir úr sjóðnum til 27 félags- manna. Að sjálfsögðu er það algerlega einstaklingsbundið hversu lengi hver félagi þarf á sjúkradagpeningum að halda. Fer það eftir því hversu lengi hann er frá störfum eftir að samnings- bundnum greiðslum atvinnurekenda lýkur. Þannig vara sjúkradagpeninga- greiðslur frá nokkrum dögum og allt að heilu ári. Víst er að sjóðurinn veitir þeim er fyrir langvarandi veikindum verða mikið fjárhagslegt öryggi enda er það hans aðalhlutverk. Þá veitti sjóðurinn eins og reglugerð hans kveður á um, útfararstyrki vegna þeirra félaga er létust á árinu. f samræmi við annan aðaltilgang sjóðsins, þ.e. að stuðla að fyrirbyggj- andi heilsuvernd, þá voru námskeið hjá líkamsræktarstöðinni Mætti veru- lega niðurgreidd. Einnig hafa hliðstæð námskeið verið niðurgreidd hjá lfk- amsræktarstöðvum á Akureyri fyrir félagsmenn þar búsetta. Ánægjulegt er til þess að vita að margir félags- menn hafa nýtt sér þessa fyrirgreiðslu. Þá hafa nokkrir félagar er gengist hafa undir hjartaaðgerðir fengið styrk til að standa straum af kostnaði vegna endurhæfingar. Einnig hefur sjóður- inn greitt 50% af hlut félagsmanns í sjúkranuddi, enda sé í það farið að til- vísun læknis. Alls fengu 136 félagar styrk af þess- um toga á liðnu starfsári. Fræðslusjóður bókagerðarmanna Á liðnu ári markaðist starf fræðslu- sjóðsins einkum af tvennu. í fyrsta lagi styrkveitingum til náms lengri og skemmri utanferða og í öðru lagi að- stoð og styrkveitingu til Prenttækni- stofnunar. Hvað varðar styrkveitingu til náms erlendis skiptust þær svo: 7 félagar fóru á námskeið hjá Heidelberg, 2 fóru til Polar Mohr, 1 til Stahl GmbH og 1 til Roland. Öll þessi námskeið stóðu fjóra til fimm daga. Þá veitti sjóðurinn 2 styrki til félagsmanna vegna lengra náms. í fyrra veitti fræðslusjóðurinn styrk til Prenttæknistofnunar að fjárhæð kr. 930.000. Styrkur þessi var veittur til að útbúa námsefni og kennslugögn fyrir nemendur hjá stofnuninni, námsefni sem einnig ætti að geta nýst bókiðna- deild Iðnskólans. PRENTARINN 2.13.'93 21

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.