Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 22

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 22
Frá ársfundi NGU 1992. Skýrsla bókasafnsnefndar Árið 1992 skipuðu bókasafnsnefnd Jón Ágústsson, Svanur Jóhannesson og Bergljót Stefánsdóttir. Nefndin kom saman nokkrum sinnum á árinu til að ráðstafa fjármunum þeim sem hún hafði yfir að ráða. Jón Ágústsson lést 1. mars s.l. en hann átti sæti í bókasafnsnefnd um árabil og vann að málefnum bóka- safnsins af þeirri trúmennsku sem ein- kenndi öll hans störf fyrir prentara- samtökin. Ýmsar bækur voru keyptar og má þar nefna bók Brynju Baldursdóttur en hún fékk nýverið viðurkenningu frá FÍP fyrir frumlega útfærslu á rúna- ljóðum. Einnig voru nokkrar eldri bækur í eigu safnsins bundnar inn. Bókasafnið fékk afhent skjöl frá Byggingarsamvinnufélagi prentara og er unnið við að flokka og skrá þau skjöl. Unnið er að endurbótum á kjallar- anum þar sem hluli bókasafnsins er geymdur og hefur herbergi í suðvest- urhorninu verið málað og nýjar hillur settar upp. Verður Prentaranum kom- ið þar fyrir á aðgengilegan hátt ásamt öðrum eigum bókasafnsins. Bókasafnið á efri hæðinni er orðið yfirfullt og verður eldra efni flutt í kjallarann þegar aðalherbergið þar hefur verið tekið í gegn. Bætt var við myndasafn bókasafns- ins m.a. keypt myndbönd um líkams- beitingu við vinnu, leysiefni og fleiri kennslumyndbönd fyrir Macintosh- notendur. Mikið starf er óunnið við flokkun og skráningu á myndum í eigu félags- ins og er tímabært að gera stórátak á því sviði. Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér hvað Bókasafn FBM hefur að geyma geta haft samband við Svan á skrifstofu FBM eða Bergljótu hjá Lífeyrissjóði bókagerðarmanna á skrifstofutíma. Flestar bækur í eigu safnsins svo og myndbönd eru til útláns fyrir félags- menn Félags bókagerðarmanna. ARSREIKNINGUR BÖKASAFNS FBM 1992 Tekiur: Tekjuafgangur 1991 . Kr. 63.774 Framlag FBM 1992 . " 250.000 Innkomið fyrir "Bðkagerðarmenn" . " 1.500 Innkomið fyrir "Hugvekjur Hallbjarnar" . " 1.400 Innkomnir vextir á tékkareikningi . " 306 Kr. 316.981 Gjöld: Askrift, innlend tímarit Kr. 15.541 Askrift, erlend tímarit " 10.683 Bækur M 94 525 Hillur I bókasafn " 1.882 Myndbönd , M 67 411 Bókband Tímaritapakkar í orlofshús " 13.923 Vinna við skjalasafn o.fl " 58.000 Kr. 288.765 Tekjuafgangur " 28.216 Kr. 316.981 Tekjuafgangur: Tékkareikningur nr. 50046 Kr. 2.816 Sjóður " 25.400 Kr. 28.216 4. april 1993 22 PRENTARINN 2.13.'93

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.