Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 23

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 23
Urslit stjórnarkjörs 1993 Samkvæmt lögum félagsins lýkur nú á þessum aðalfundi kjörtímabili Fríðu B. Aðalsteinsdóttur, Sæmundar Árnasonar og Kristínar Helga- dóttur í aðalstjórn félagsins. Af þeim varastjórnarmönnum sem kosnir voru fyrir tveimur árum höfðu þau Georg Páll Skúlason og Kristín Helgadóttir komið inn í aðalstjórn en Sigurlaug Jakobsdóttir sagði sig úr varastjórn. í febrúar var send út auglýsing um framboðsfrest þar sem óskað var eftir tillögum um þrjá menn í aðalstjórn og þrjá menn í varastjórn. Sam- kvæmt auglýsingunni bar að skila tillögum inn til skrifstofu félagsins fyrir kl. 17.00 föstudaginn 5. mars 1993. í auglýsingunni var jafnframt greint að Kristín Helgadóttir gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Þegar framboðsfrestur rann út höfðu tveir listar borist til félagsins þar sem stungið var uppá til aðalstjórnar: Fríðu B. Aðalsteinsdóttur, Sæmundi Árnasyni, Tryggva Þór Agnarssyni, Auði Atladóttur og Þor- steini Veturliðasyni. Til varastjórnar: Pétri Ágústssyni, Margréti Frið- riksdóttur og Þorvaldi Eyjólfssyni. Venju samkvæmt voru kjörseðlar sendir til trúnaðarmanna okkar í fyrirtækjunum og skyldi seðlunum skilað inn til félagsins eigi síðar en kl. 17.00 fimmtudaginn 25. mars en þá um kvöldið fór fram talning at- kvæðanna. Alls greiddi 581 félagsmaður atkvæði, voru 43 seðlar auðir og 2 ógildir. Þetta er talsvert lakari kosningaþátttaka en tíðkast hefur hjá okkur og er ákaflega leitt til þess að hugsa hve margir félagsmenn virðast láta sér það í léttu rúmi liggja hverjir veljist í stjórn félagsins. Kosningu til aðalstjórnar hlutu: Fríða B. Aðalsteinsdóttir með 356 atkv., Sæmundur Árnason með 322 atkv. og Tryggvi Þór Agnarsson með 294 atkv. Varastjórn var sjálfkjörin þar sem tillögur um menn voru jafnmargar og sætin sem kjósa átti í. Varastjórn: Pétur Ágústsson, Margrét Friðriksdóttir og Þorvaldur Eyjólfsson. Við óskum nýkjörnum stjórnarmönnum til hamingju með kjörið og sömuleiðis velfarnaðar í þeim ábyrgðarmiklu störfum sem þau hafa verið kjörin til. Á þessum aðalfundi hverfur Kristín Helgadóttir úr að- alstjórn. Henni eru færðar bestu þakkir fyrir ágæt störf í félagsins þágu. Þ.G. Fríöa B. Aðalsteinsdóttir Sæmundur Árnason Tryggvi Þór Agnarsson Kristín Helgadóttir PRENTARINN 2.13.'93 23

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.