Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 24

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 24
Lífeyrissjóður bókagerðarmanna Ársreikningur Lífeyrissjóðs bókagerðarmanna 1992 Áritun endurskoðenda ViÖ höfiim endurskoðaö ársreikning Lífeyrissjóös bókageröarmaxma fyrir áriÖ 1992. Ársreikningurinn hefur aÖ geyma yfirlit um breytingar á hreinni eign, efnahagsreikning, qóöstreymi, ásamt skýringum og sundur- liöunum nr. 1-24. Viö framkvœmd endurskoÖunarinnar voru gerðar þær kannanir á bókhaldi og bókhaldsgögnum sem viö töldura nauösynlegar. Þaö er álit okkar að ársreikningurinn sé geröur ( samræmi viö lög og góða reikningsskilavenju og gefi glögga mynd af rekstri Lífeyrissjóðs bókagerðarmanna á árinu 1992, fjárhagsstöðu hans 31. desember 1992 og breytingu á handbæru fé áriÖ 1992. Reykjavík, 15. mars 1993. Endurskoðunarskrifstofan hf. Löggiltir endurskoðendur (júm< tjlÞm------------- GunAar M. Erlingsson Áritun kjörinna endurskoðenda ViÖ imdirritaÖir, kjörnir endurskoðendur Lífeyrissjóðs bókageröarmanna, höfum yfirfariö ársreikning sjóösins fyrir áriö 1992. Viö vísum til áritunar Gunnars M. Erlingssonar, löggilts endurskoöanda, og leggjum til aö ársreikningurinn verði samþykktur. Reykjavík, 15. mars 1993. Ársskýrsla og áritun stjómar iðgjaldatekjur á árinu 1992 námu 158,4 millj. kr., sem er 1,8% aukning frá fyrra ári. Alls greiddu 112 fyrir- tæki til sjóðsins á árinu 1992, en þar af eni 24 sem ekki eru í prentiðnaÖi. Lffeyrisgreiöslur námu 43,1 millj. kr., sem er 25,3% aukning frá fyrra ári. Fjöldi lífeyrisþega var í árslok 201. Fjðldi virkra sjóöfélaga var í árslok 1218. Rekstrargjöld námu 7,6 millj.kr., sem er 4,8% af iðgjaldatekjum ársins. Af heildareign sjóðsins sem var í árslok 1.928,8 millj. kr. eru skuldabréf og hlutabréf 1.825,7 millj. kr., eöa 94,7%. Á árinu var fjárfest í skuldabréfum fyrir 321,9 millj. kr. Keypt skuldabréf hjá Byggingarsjóði ríkisins og húsbréf námu 164 millj. kr., eöa um 52% af heildar skuldabréfakaupum. Hrein eign sjóðsins í árslok var 1.928,8 millj. kr. og hækkaði frá fyrra ári um 267,8 millj. kr., eða 16,1 %. Raunávöxtun á eignum sjóðsins á árinu 1992 er um 7,3%. Stjóm Lffeyrissjóðs bókagerðarmanna staöfestir hér með ársreikning sjóösins fyrir áriö 1992 meö undir- ritim sinni. Reykjavík, 19. mars 1993. Stjóm: Forstöðumaöur: Starfsemi Iffeyrissjóðsins Fulltrúar FBM í stjórn Lífeyrissjóðs bókagerðarmanna eru Grétar Sigurðs- son, gjaldkeri og Þórir Guðjónsson, meðstjórnandi. Varamenn eru Snorri Pálmason og Ólafur Björnsson. Frá FIP eru Guðmundur Kristjáns- son, ritari og Örn Jóhannsson, með- stjórnandi. Varamaður er Sigurjón Vikarsson. Oddamaður er Guðjón Hansen en hann er jafnframt formaður sjóð- stjórnar. Endurskoðendur eru Svanur Jóhannesson frá FBM og Einar Egils- son frá FÍP. - Fundir stjórnar voru 13 árið 1992. Árið 1992 voru lífeyrisþegar í Líf- eyrissjóði bókagerðarmanna 201, flest- ir með ellilífeyri en einnig er greiddur örorkulífeyrir, makalífeyrir og barna- lífeyrir. Vegna hækkunar á grundvallarlaun- um sjóðsins hækkuðu lífeyrisfjárhæðir 1. maí 1992. Að undanförnu hafa grundvallar- laun við útreikning lífeyris verið hækkuð í samræmi við taxtabreyting- ar. Þannig eru grundvallarlaun nú kr. 49.710 miðað við 1. maí 1992. Það fer svo eftir stigafjölda hvers einstaklings hvaða hlutfalli hann nær af grundvall- arlaunum. Um réttindavinnslu og útreikning lífeyris Réttindi sem menn ávinna sér í Líf- eyrissjóði bókagerðarmanna eru reiknuð í stigum og eru stig reiknuð fyrir hvert almanaksár sem sjóðsfélagi hefur greitt iðgjöld til sjóðsins. Við útreikning stiga er notuð reiknitala, svonefnd grundvallarlaun, sem á að vera mælikvarði á launa- breytingar hjá sjóðfélögum almennt. Til ársloka 1986 var í þessu skyni not- aður tiltekinn kauptaxti bókagerðar- 24 PRENTARINN 2.13.’93

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.