Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 29

Prentarinn - 20.04.1993, Blaðsíða 29
sem hjá FBM hefur farið fram at- kvæðagreiðsla um aðildarumsókn að ASÍ hef ég að sjálfsögðu greitt at- kvæði með því og mun gera það við komandi atkvæðagreiðslu, vegna þess að ég tel að það sé nauðsynlegt fyrir verkalýðsfélag, hvað sem það heitir og hversu fjölmennt sem það er, að það skipi sér í raðir heildarsamtakanna. Ég skora á fundarmenn sem hér eru að beita sér fyrir samþykkt aðildar á sfnum vinnustöðum.“ Ekki varð Jóni, frekar en mörgum öðrum félögum, að þessari ósk. Mér finnst það lýsa Jóni ákaflega vel hvernig hann brást við veikindum sínum. Hinar gömlu og fullgildu hug- sjónir jafnaðar og réttsýni í íslensku samfélagi voru honum efst í huga til hinstu stundar sem og nauðsyn þess að verkalýðshreyfingin mætti í órofa samstöðu, ná fram því markmiði að engum væri ætlað að sjá sér farborða við kjör sem engan veginn dygðu til. Með öllum tiltækum ráðum yrði að koma málum svo fyrir að verkafólk hefði trygga afkomu, bæði efnahags- og félagslega, annað væri engan veg- inn sæmandi í íslensku samfélagi. I mörg ár átti Jón heimili sitt hér á Hverfisgötu 21. Það var ekki fyrr en veikindi hans voru orðin svo alvarleg að hann átti orðið erfitt með stigana upp í risið og yfir höfuð að annast sig sjálfur að hann fluttist árið 1991 til dóttur sinnar, tengdasonar og barna- barna í Langagerðið. Margoft kom Jón við hér á skrifstofu Félags bóka- gerðarmanna eftir að hann flutti. Þá var jafnan setið yfir kaffibolla og rætt um verkalýðsmálin, misréttið og pólit- íkina og töluðu menn ævinlega hreint út og sögðu sína meiningu umbúða- laust. Auðvitað voru skiptar skoðanir um ýmis mál og það var allt í lagi og þannig átti það að vera. Ég tel á engan hallað þó fullyrt sé að Jón Ágústsson hafi verið einn okk- ar allra mikilsvirtasti og hæfasti for- ystumaður. Öll hans störf fyrir Hið ís- lenzka prentarafélag og Félag bóka- gerðarmanna vann hann af alúð og samviskusemi með hagsmuni heildar- innar að leiðarljósi. Fyrir öll hin ágætu störf er Jón vann fyrir samtök bókagerðarmanna og þar með um leið íslenska verkalýðshreyf- ingu þökkum við nú og sendum börn- um hans og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur. Þ. G. Viö gróðursetningu í Miödal. Hjá Menningar- og fræðslusambandi alþýöu viö afhendingu Stefánsstyrks 1. maí 1992. PRENTARINN 2.13/93 29

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.