Prentarinn - 01.04.2002, Blaðsíða 30
Grafík - Gutenberg sameinaðir undir merkjum
Prentsmiðjunnar Gutenberg hf.
30 ■ PRENTARINN
Gutenberg
PRENTSMIÐJA
Ekki verður um prentsmiðjuna Gutenberg fjallað, einkum þegar umfjöllunin er í félagsblaði
bókagerðarmanna, án þess að minnst sé á aðdragandann að stofnun hennar fyrir nærri því
heilli öld svo náin voru þessi tengsl á milli stéttarfélagsins og stofnenda hennar. Prentsmiðj-
an Gutenberg var stofnuð 12. ágúst 1904 og starfsemi hófst 2. janúar 1905 þannig að nú
hefur prentsmiðjan starfað í nærri því öld samfellt. Þeir sem að stofnun prentsmiðjunnar
stóðu voru 20 prentarar, sem fram að þessum tímamótum störfuðu í hinum ýmsu prentsmiðjum hér í
borg. Prentsmiðjunni var skipuð þriggja manna stjórn og var formaður stjórnar framkvæmdastjóri
prentsmiðjunnar, þetta var Þorvarður Þorvarðsson, sem var jafnframt fyrsti formaður HÍP, ráku þeir
prentsmiðjuna til áramótanna
1929-1930 eða þar tilríkið
keypti reksturinn og rak hana
til 30. júní 1992, en þá keypti
Steindórsprent Prentsmiðjuna
Gutenberg. Þann 12. október
árið 2000 var fyrirtækið keypt
af Prentsmiðjunni Odda sem
fyrir átti prentsmiðjuna Grafík,
Það var svo á síðari hluta árs-
ins 2001 að ákveðið var að
sameina prentsmiðjurnar
Grafik og Gutenberg og átti sú
sameining sér stað um síðustu
áramót.
Ástæða sameiningarinnar nú er sú að eigendurnir vildu styrkja innviði fyrirtækjanna með bættri nýtingu
véla og tækja og jafnframt var unnt að losa um húsnæði og annað það sem aukreitis var í fyrirtækj-
unum hvoru fyrir sig.
Rekstrarumhverfi á íslenskum prentmarkaði hefur tekið miklum breytingum nú á síðari árum og því
ber brýna nauðsyn til að bregðast við því með aukinni hagræðingu í
rekstri, Samkeþpni er ekki einungis innlend á íslenskum prentmark-
aði heldur er prentun erlendis veruleg og voru um 30% íslenskra
bóka fyrir síðustu jól prentuð erlendis svo dæmi séu tekin, einnig er
mikil samkeppni frá öðrum miðlum.
Framtíðin hjá Gutenberg er björt ef rétt er að öllu staðið. Hér er
um að ræða fyrirtæki sem býður upp á góða þjónustu, öryggi í
afgreiöslum verkefna og skamman afgreiðslutíma þegar með
þarf. Vélakostur er mikill og starfsfólk er metnaðarfullt.
[ dag er verið að fara í gegnum það að samræma starfs-
mannastefnu fyrirtækisins og á næstu vikum verða komin sam-
ræmd markmið að því er varðar viðmót, starfsmannastefnu og
hvernig tekið verður á menntun/þjálfun starfsfólks í framtíðinni.
I Gutenberg starfa nú á milli 75 og 80 manns í þremur fram-
leiðsludeildum, þ.e. við prentundirbúning, prentun og bókband,
ásamt sölumönnum og skrifstofuhaldi. Þessi starfsmannafjöldi
er kjörstærð miðað við húsnæði og þá verkefnastöðu, sem fyrir
hendi er í dag.