Prentarinn - 01.09.2002, Qupperneq 3

Prentarinn - 01.09.2002, Qupperneq 3
Leiðari B félag bókagerðar- manna FELAG GRAFISKRA TEIKNARA Samkvæmt ákvörðun aðalfundar 2002 ber stjóm og trúnaðarráði félagsins að gera tvær skoðana- kannanir á meðal félagsmanna, þ.e. hvort Félag bókagerðar- manna eigi að sækja um aðild að Alþýðusambandi íslands og hvort rétt sé að gefa FBM nýtt nafn. Hvað sem félagsmönnum finnst persónulega um þessar ályktanir aðalfimdar ber okkur að vinna samkvæmt þeim og vera með niðurstöður tilbúnar íyrir aðalfund 2003. Það eru nú bráðum 22 ár síðan við í FBM ákváðum að hætta að- ild að ASÍ og var það gert með allsherjar atkvæðagreiðslu. Sú saga er öll skráð í sögu félagsins og þeirn sem hefðu áhuga á að kynna sér hana er bent á Sögu bókagerðarmanna í 100 ár. Síðan hafa verið tvær allsherj- ar atkvæðagreiðslur meðal fé- lagsmanna með sömu niðurstöðu: Ekki vera í ASÍ. Eftir að sú breyting var gerð á lögum Al- þýðusambandsins að heimila landssamböndum að sækja um aðild, var enn á ný felld tillaga um aðild á aðalfundi árið 2000. Því kom það óneitanlega á óvart að tillaga um að kanna enn á ný afstöðu félagsmanna til Alþýðu- sambandsins skyldi vera sam- þykkt á síðasta aðalfundi. Það er ekki spurning í mínum huga að FBM á að sækja um inn- göngu og vera eitt af aðildarfé- lögum ASÍ. Það er besta leiðin fyrir félagið og félagsmenn, með tilliti til nýrrar tækni og þróunar í grafísku umhverfi. Það er brýn nauðsyn fyrir okkur að eiga sam- leið með öðrum verkalýðsfélög- um, ekki síst nú, þar sem vinnu- veitendur eru sameinaðir í eitt fé- lag og við ásamt öðrum erum að semja við sömu viðsemjendur. Einnig má geta þess að með inn- göngu eigum við aðgang að allri starfsemi ASÍ sem og námskeið- um fyrir trúnaðarmenn og mörgu fleiru. Nú stendur það upp á stjórn félagsins og trúnaðarráð að vinna í vetur samkvæmt ákvörð- un aðalfundar og leggja niður- stöðuna fyrir næsta aðalfund. Ályktunin um nýtt nafn á fé- lagið er annars eðlis, en komið hefur í ljós að nýir félagsmenn og þeir sem vinna við hönnun og margmiðlun finna ekki samsvör- un í nafninu Bókagerðarmenn og vilja því fá nafn sem höfðar betur til nútímans og nafn félagsins á ensku er Graphical Union of Iceland. Þegar núverandi nafn var samþykkt 1980 munaði einu at- kvæði á næsta nafni er var Grafíska stéttarfélagið. Nú er í gangi á heimasíðu fbm.is for- könnun og spurningin er „Viltu breyta um nafn á félaginu?" Verður fróðlegt að sjá hvað kem- ur út úr henni. Þetta mál þarf einnig að liggja fyrir á aðalfundi. Eftir ævintýrið með Margmiðl- unarskólann, sem lauk með fjár- hagslegu þroti hans, stendur Prenttæknistofnun nú á vissum tímamótum. í framhaldi afþví var samþykkt í stjórn PTS að flytja starfsemina á Hallveigar- stíg 1, en ekki var áhugi fyrir því hjá S1 að þekkjast boð FBM um að hún flyttist á Hverfisgötuna. Er nú verið að endurskipuleggja alla starfsemina að nýju m.a. með samvinnu við Iðnskólann, en þar verður sett upp Margmiðl- unarbraut sem hugsuð er sem framhald af Upplýsinga- og fjöl- miðlabraut. Einnig verður hægt að sækja nám í margmiðlun á listnámsbraut við Borgarholts- skóla. Þá verður samstarf við aðra tölvuskóla um námskeið fyrir félagsmenn og í samvinnu við Iðnskólann verða endur- menntunarnámskeið í bókbandi, prentsmíð og prentun. Einnig verða námskeið í grafískri hönn- un. Það sem verður nýtt í starfsemi Prenttæknistofnunar er að hún mun hætta þeim áhætturekstri sem rekstur tölvuskóla er. Eitt af verkefnum haustsins er að kjósa í trúnaðarráð en nýtt kjörtímabil þess hefst 1. nóvem- ber og einnig þarf að skipa að nýju trúnaðarmenn á okkar vinnustaði, en nýtt kjörtímabil trúnaðarmanna hefst 15. október. Mjög mikilvægt er fyrir okkur að vera með virkt trúnaðarkerfi því trúnaðarmaðurinn er tengiliður á milli stjórnar og félaganna á vinnustaðnum. September 2002. Sœmundur Arnason. prentnrinn ■ MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA Ritnefnd Prentarans: Georg Páll Skúlason, ritstjóri og ábyrgðarmaður. Bragi Guðmundsson Jakob Viðar Guðmundsson Ester Þorsteinsdóttir Sævar Hólm Pétursson Ábendingar og óskir lesenda um efni í blaðið eru vel þegnar. Leturgerbir í Prentaranum eru: Helvitica Ultra Compress, Stone, Times, Garamond o.fl Blaðið er prentað á 135 g Ikonofix silk. Prentvinnsla: Filmuútkeyrsla: Scitex Prentvél: Heidelberg Speedmaster 4ra lita. Svansprent ehf. Forsíðan Ágúst Schmídt prentsmiður hjá GuðjónÓ er hönnuður torsíðunnar. Forsíðan var framlag hans í forsíðukeppni Prentarans haustið 2001 og var meðal þriggja verka sem valin voru af dómnefnd til birtingar. PRENTARINN ■ 3 I

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.