Prentarinn - 01.04.2005, Blaðsíða 6
efélag
bókagerðar-
manna
2004-2005
Boöaö er til aðalfundar
Félags bókageröarmanna
laugardaginn 9. apríl 2005
kl. 10.00 á Grand Hótel,
Reykjavík.
Um aðalfund félagsins segir
m.a.: Aðalfund skal halda í
mars- eða aprílmánuði ár hvert
og skal stjórn félagsins boða til
hans með minnst viku fyrirvara
í fjölmiðlum og á vinnustöðum
félagsmanna. Greina skal
skýrlega í fundarboði dagskrá
fundarins og skal einkum geta
lagabreytinga ef fyrirhugaðar eru.
Aðalfundur fer með æðsta vald í
málefnum félagsins, nema gerð
sé lögleg undantekning þar á.
Aðalfundur er löglegur sé
löglega til hans boðað og hann
sitja eigi færri en 35 félagsmenn,
þar af meirihluti stjórnar. Verði
aðalfundur ekki löglegur vegna
fámennis, skal boða til nýs
fundar á sama hátt, með þriggja
daga fyrirvara og er sá fundur
lögmætur hversu fáir sem sækja
hann.
Ollum félagsmönnum má vera
ljóst að á aðalfundi eru teknar
stefnumarkandi ákvarðanir fyrir
félagið. Það er því mikilvægt
að mæta. Þeir félagsmenn
sem ekki mæta fela öðrum
ákvörðunarvaldið.
STJÓRN
Eins og lög félagsins mæla
fyrir um sér stjórnin um rekstur
félagsins milli aðalfunda. Eftir
síðasta aðalfund skipti stjóm
þannig með sér verkum að
varaformaður var Georg Páll
Skúlason, ritari Pétur Agústsson,
gjaldkeri Bragi Guðmundsson
og meðstjórnendur þeir Páll R.
Pálsson, Stefán Ólafsson og
Þorkell S. Hilmarsson. Varastjórn:
Anna S. Helgadóttir, Björk
Harðardóttir, Harpa Grímsdóttir,
Hrefna Stefánsdóttir, María
H. Kristinsdóttir og Sigurður
Valgeirsson. Formaður er
Sæmundur Amason.
í stjóm FGT deildar eru:
Kalman le Sage de Fontenay,
Hrefna Stefánsdóttir og Emil
Valgeirsson.
Formaður FGT, Kalman le Sage
de Fontenay, hefur einnig setið
stjómarfundi FBM.
Frá síðasta aðalfundi hefur
stjórnin haldið 21 stjórnarfund
þar sem tekin hafa verið fyrir
ijölmörg mál og málaflokkar.
Eins og nærri má geta er hér
um að ræða mál sem þarfnast
mismikillar umfjöllunar, allt frá
því að vera einfold afgreiðslumál
til stærri og viðameiri mála, sem
þá gjarnan eru tekin fyrir á fleiri
en einum fundi sem er æskilegt og
nauðsynlegt þegar um mikilvæg
og vandmeðfarin mál er að ræða.
STJÓRNARKOSNING
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs
2005 rann út þann 15. febrúar.
Uppástungur bárust um 3
félagsmenn til setu í aðalstjórn
ÁRITUN STJÓRNAR
Stjórn Félags bókagerðarmanna staðfestir hér með ársreikning félagsins fyrir árið 2004 með
undirritun sinni.
Reykjavík, 14. mars 2005.
Stjórn:
6 ■ PRENTARINN