Prentarinn - 01.04.2005, Page 7
ARITUN ENDURSKOÐENDA
Við höfum endurskoðað ársreikning Félags bókagerðarmanna og sjóði í vörslu þess fyrir árið 2004.
Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikninga, efnahagsreikninga og sjóðstreymi ásamt skýring-
um og sundurliðunum nr. 1 - 31.
Endurskoðað var í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Samkvæmt því ber okkur að skipuleggja
og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn sé í aðalatriðum
án annmarka. Endurskoðunin felur í sér athuganir á gögnum með úrtakskönnunum til að sannreyna
fjárhæðir og upplýsingar sem koma fram í ársreikningnum. Endurskoðunin felur einnig í sér athugun
á þeim reikningsskilaaðferðum og matsreglum sem notaðar eru við gerð ársreikningsins og mat á
framsetningu hans í heild. Við teljum að endurskoðunin sé nægjanlega traustur grunnur til að byggja
álit okkar á.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstri félagsins og sjóða þess á árinu 2004,
efnahag 31. desember 2004 og breytingu á handbæru fé á árinu 2004 í samræmi við lög félagsins og
góða reikningsskilavenju.
Reykjavík, 14. mars 2005.
DFK Endurskoðun
Gunnar M. ErlingsWi,
löggiltur endurskoðandi.
ÁRITUN FÉLAGSKJÖRINNA SKOÐUNARMANNA
Við undirritaðir, félagskjörnir skoðunarmenn Félags bókagerðarmanna, höfum yfirfarið ársreikning
félagsins fyrir árið 2004 og leggjum til að hann verði samþykktur.
og 3 til varastjórnar. í framboði
til aðalstjórnar voru: Bragi
Guðmundsson, Stefán Olafsson
og Þorkell S. Hilmarsson.
Til varastjórnar: Hrafnhildur
Olafsdóttir, Reynir S. Hreinsson
og Björk Harðardóttir.
Þar sem aðeins einn listi var
fram borirrn er að þessu sinni
sjálfkjörið í stjóm FBM.
TRÚNAÐARRÁÐ
Framboðsfrestur til trúnaðarráðs
rann út 12. október 2004. Einn
listi barst og var því sjálfkjörið.
Trúnaðarráð FBM frá 1.
nóvember 2004 til 31. október
2006 er því skipað eftirtöldum
félagsmönnum.
Aðalmenn: Emil H.
Valgeirsson, Hallgrímur
Helgason, Helgi Jón Jónsson,
Hinrik Stefánsson, Hrafnhildur
Olafsdóttir, Hrefna Stefánsdóttir,
Kristín Helgadóttir, Kristján
S. Kristjánsson, Marsveinn
Lúðvíksson, Oddgeir Þór
Gunnarsson, Oskar Jakobsson,
Páll Heimir Pálsson, Pétur
Marel Gestsson, Reynir
Már Samúelsson, Reynir S.
Hreinsson, Sigrún Karlsdóttir,
Sigurður Valgeirsson, Þórgunnur
Siguijónsdóttir.
Varamenn: Gunnar
R. Guðjónsson, Halldór
Þorkelsson, Elín Sigurðardóttir,
Olafur Sigurjónsson, Trausti
Finnbogason, Snæbjörn
Þórðarson.
Frá síðasta aðalfundi hafa verið
haldnir 6 fundir í trúnaðarráði þar
sem fjallað hefur verið urn ýmis
mál félagsins.
TRÚNAÐARMENN
Þann 15. október 2004 hófst
nýtt tveggja ára kjörtímabili
trúnaðarmanna á vinnustöðum.
Að þessu sinni hefur gengið
vel að fá félagsmenn til starfa
og höfúm við nú skipað 21
trúnaðarmann á vinnustöðum.
En ljóst er að félagið þarf að
leggja mikla rækt við starf
trúnaðarmannsins og nú eftir
inngöngu félagsins í ASÍ höfum
við beint okkar trúnaðar- og
öryggistrúnaðarmönnum á
námskeið MFA.
FÉLAGSSTARFIÐ
A starfsárinu höfum við haldið
fjölda vinnustaðafunda auk
félagsfunda m.a. við mótun
kröfugerðar.
Þá hefúr félagið að venju
staðið að árlegum viðburðum
sem hafa unnið sér fastan
sess í starfsemi þess en það
eru: briddsmót, skákmót,
knattspyrnumót og golfmót,
jólatrésskemmtun fyrir börn
félagsmanna, einnig jólakaffi
og árleg sumarferð fyrir eldri
félagsmenn.
KjARAMÁL
Viðræður um nýjan kjarasamning
hófúst 4. mars 2004 og haldnir
voru yfir 20 bókaðir fúndir auk
annarra fúnda. En kjarakröfúr
félagsins voru mótaðar á fjölda
vinnustaðafúnda auk félagsfunda.
Drög að nýjum kjarasamningi voru
síðan lögð fyrir og samþykkt á
fúndi í trúnaðarráði þann 26. maí.
Kjarasamningur á milli Félags
bókagerðarmanna og Samtaka
atvinnulífsins var undirritaður 27.
maí 2004 með gildistíma ffá 17.
maí 2004 til 31. desember 2007.
Kynning á kjarasamningnum var
síðan á félagsfúndi þann 8. júní.
Jafnframt var ákveðið að viðhöfð
yrði allsheijaratkvæðagreiðsla
um nýjan kjarasamning á meðal
félagsmanna.
Niðurstaðan í atkvæðagreiðslu
um nýjan kjarasamning FBM
varð eftirfarandi: Á kjörskrá voru
1189. Atkvæði greiddu 294 eða
24,75% félagsntanna. Atkvæðin
skiptust þannig að 223 sögðu já
eða 76%. Nei sögðu 63 eða 21%.
Auðir og ógildir voru 8 eða 2%.
Kjarasamningurinn var því
samþykktur með 76% atkvæða
þeirra er neyttu atkvæðisréttar
síns.
Kjarasamningur FGT-deildar
FBM viö SÍA
Nýr kjarasamningur Félags
grafiskra teiknara við Samband
íslenskra auglýsingastofa var
undirritaður þann 13. janúar en
þá höfðu samningaumleitanir
staðið yfir frá því í mars 2004.
PRENTARINN ■ 7