Prentarinn - 01.04.2005, Qupperneq 13
FRÆÐSLUSJÓÐUR BÓKAGERÐARMANNA
EFNAHAGSREIKNINGUR 31. EIGNIR : DESEMBER 2004
Skýr. 2004 2003
Eignir:
Bundnar bankainnstæður. 3 13.752.632 13.678.271
Viðskiptareikningur FBM.. 89.452 117.206
Eignir samtals EIGIÐ FÉ : 13.842.084 13.795.477
Eigið fé :
Höfuðstóll 12 13.842.084 13.795.477
Eigið fé samtals 13.842.084 13.795.477
við, svo og launafólk í helstu
nágrannalöndum.
FjÖLMIÐLASAMBANDIÐ
Blaðamannafélag íslands,
Félag bókagerðarmanna,
Rafiðnaðarsamband
íslands, Starfsmannasamtök
Ríkisútvarpsins og
Verslunarmannafélag
Reykjavíkur eru aðilar að
Fjölmiðlasambandinu.
Filutverk sambandsins er
að vinna að sameiginlegum
hagsmunamálum þeirra
sem starfa með einum eða
öðrum hætti við fjölmiðla
eða fjölmiðlun. Georg
Páll Skúlason er gjaldkeri
Fjölmiðlasambandsins og
Sæmundur Amason í varastjórn.
BÓKASAMBAND ÍSLANDS
Félag bókagerðarmanna er
aðili að Bókasambandinu
en innan þess eru félög sem
eiga hagsmuna að gæta í
bókaútgáfu og atvinnustarfsemi
henni tengdri. Auk FBM
eru Samtök iðnaðarins,
Rithöfundasambandið,
Bókavarðafélagið, Hagþenkir,
Bókaútgefendur og Samtök
bóka- og ritfangaverslana aðilar
að sambandinu. Bókasambandið
hefur undanfarin ár gengist fyrir
átaki á degi bókarinnar 23. apríl,
til að vekja athygli á bókaútgáfu
og bóklestri. I desember birti
Bókasambandið upplýsingar um
prentstað íslenskra bóka er komu
út fyrir síðustu jól og var skýrslan
birt í Prentaranum. Fulltrúi FBM
í stjórn Bókasambandsins er
Bragi Guðmundsson.
MENNT
FBM er eitt af stofnfélögum
Menntar sem er samstarfsvett-
vangur aðila vinnumarkaðarins,
sveitarfélaga og skóla á
ffamhalds- og háskólastigi.
Meginhlutverkið er að annast
söfnun og miðlun upplýsinga og
stuðla að gagnkvæmri yfirfærslu
þekkingar og færni. Einnig
sér Mennt um framkvæmd á
verkefnum er tengjast menntun
og fræðslu ásamt því að vera
vettvangur samræðna og
samstarfs aðila vinnumarkaðarins
og skóla. Með inngöngu
félagsins í ASÍ og þar sem við
erum eignaraðili að PTS sem er
eitt af aðildarfélögum Menntar,
teljum við að óþarft sé að vera
með sjálfstæða aðild að Mennt.
Því hefur FBM ákveðið að segja
upp aðild sinni að Mennt.
ÚTGÁFUMÁL
Frá síðasta aðalfundi hefur
ritnefnd Prentarans unnið ötullega
að útgáfu blaðsins. Komið hafa
út tvö blöð með íjölbreyttu efni.
Mikil áhersla hefur verið lögð
á að kynna söguna ásamt öðru
fjölbreyttu efni og frásögnum úr
félagslífinu. Fréttabréfið, með
stuttum og afmörkuðum fréttum
og auglýsingum úr félagsstarfinu,
var gefið út þrisvar sinnum á
starfsárinu. Þá gaf félagið út
dagbók er allir félagsmenn fengu
senda. Heimasíða félagsins er nú
orðin vel virk og eru félagsmenn
i síauknum mæli famir að nýta
sér hana.
FRÆÐSLUSjÓÐUR
BÓKAGERÐARMANNA
Sjóðurinn styrkir m.a. námskeið
sem félagsmenn sækja hjá
Tómstundaskólanum um 50%
eða allt að kr. 12.000. Einnig
hafa almenn tungumálanámskeið
verið styrkt. Sjóðurinn stendur
straum af kostnaði námskeiða
hjá Prenttæknistofnun fyrir
atvinnulausa félagsmenn.
Felst það í því að greiða
Asgeir Guðmundsson í Bókavirkinu
Rögnvaldur Bjarnason hjá
Stafrcenni
námskeiðsgjöld og greiðslu
iðgjalda fyrir atvinnulausa
félagsmenn í Prenttæknisjóð.
Einnig styrkir hann félaga til
náms erlendis. Alls vom veittir
120 styrkir. 55 til tómstunda eða
kr. 472,491. 54 styrkir til lengra
náms kr. 1.952.878, 2 styrkir
vegna atvinnulausra, 5 styrkir
kr. 325.000 til náms erlendis á
stutt námskeið og 4 styrkir vom
veittir til lengra náms erlendis, að
upphæð kr. 535.000.
Kristinn Hólm Haraldsson i
Bókavirkinu
PRENTARINN ■ 13