blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 2
M Pípulagningarmenn Vegna aukinna verkefna óskar JB Byggin- gafélag eftir aö ráða pípulagningarmenn í mælingu. Upplýsingar gefur Hannes Helgason í síma 693-7012 Einnig er hægt aö sækja um á fieimasíöu félagsins www.jbb.is Hjá JB Byggingafélagi er boðið er uppá góöa starfsaðstöðu og liflegt starfsmannafélag. JB Byggingafélag, Bæjarlind 4, s: 544-5333 Flugstoðir ohf. óska eftir að ráða forritara í kerfisdeiid flugumferðarsviðs Starfssvið Helstu verkefni felast m.a. í forritun kerfa og hafa eftirlit með tölvukerfum í flugstjórnarmiðstöð og kerfisdeild. í starfinu felst einnig fyrirbyggjandi viðhald, greining bilana og ákvörðun viðbragða við þeim. Viðkomandi mun einnig koma að forritun vegna viðhalds kerfa í notkun, þarfagreiningu vegna nýrra verkefna, gerð kerfislýsinga vegna áætlanagerðar og mati á umfangi verkefna, uppsetningu og prófunar á hugbúnaði Störfin eru ýmist unnin á vöktum eöa í dagvinnu. Hæfniskröfur Gerð er krafa um háskólapróf í tölvunarfræði eða sambærilega menntun. Reynsla af UNIX, TCP/IP, X - windows og forritun í “C" er æskileg. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á . íslenskri og enskri tungu. Einnig er nauðsynlegt að viðkomandi hafi frumkvæði í starfi, hafa góða samskiptahæfileika, sé skipulagður í verkum sínum og geti unnið undir álagi. Umsóknir Frekari upplýsingar um störfin veitir Sigurður Hauksson, deildarstjóri og Ingunn Ólafsdóttir síma 424-4100. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist starfsmannahaldi Flugstoða ohf. fyrir 5 febrúar 2007. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu Flugstoöa ohf., www.flugstodir.is Umsóknir berist starfsmannahaldi Flugstoða ohf, Turninum, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík, fyrir 5 febrúar 2007 Öllum umsóknum verður svarað. Flugstoðir ohf. er opinbert hlutafélag sem tók yfir þjónustuverkefni Flugmálastjórnar Islands þann 1. janúar 2007. Hjá Flugstoðum ohf. starfa um 220 starfsmenn. Helstu verkefni fyrirtækisins eru að sjá um uppbyggingu og rekstur flugvalla og veita fiugumferðar - og flugleiðsöguþjónustu fýrir innanlandsflug og alþjóðlegt flug yfir Norður - Atlantshafi. Flugstoðir ohf. leggja áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa. «1 FLUGSTOÐIR Til leigu íbúðir og einbýlishús á Spáni Barcelona - Costa Brava - Menorca - Medina del Campo -Valladolid M í i Helen Jónsson, GSM 899 863 www.helenjonsson.ws Auglýsing um fasteignagjöld í Reykjavík áríð 2007 Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2007 verða sendir út næstu daga sem og greiðsluseðlar fyrstu greiðslu. Reykjavíkurborg sér um innheimtu gjaldanna. Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald, vatnsgjald og sorphirðugjald. Fjármálasvið framkvæmir breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi elli- og örorkulífeyrisþega eftir yfirferð skattframtala. Þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári, fá að óbreyttum aðstæðum einnig lækkun á árinu 2007, að teknu tilliti til tekju- og eignaviömiðunar. Skilyrði lækkunar eru að viökomandi elli- eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í Reykjavík og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Borgarráð hefur ákveöiö að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2007 hækki um 20°/o á milli ára og verði eftirfarandi miðað við tekjur liðins árs: 100°/o lækkun: Einstaklingar með tekjur allt að kr. 1.870.000. Fljón með tekjur allt að kr. 2.620.000. 80°/o lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.870.000- til kr. 2.150.000. Fljón með tekjur á bilinu kr. 2.620.000- til kr. 2.930.000. 50% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.150.000 til kr. 2.500.000. Fljón með tekjur á bilinu kr. 2.930.000 til kr. 3.490.000. Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2005. Þegar álagning vegna ársins 2006 liggur fyrir í ágúst á þessu ári, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 411 8500. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið sorphirda@reykjavik.is. • Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, veitir upplýsingar sem snerta álagningu og breytingar á vatnsgjaldi í síma 516 6000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is. Fjármálasvið Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi Reykjavíkur, veitir upplýsingar um álagningu annarra fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 411 3636. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is. Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 25.000 fyrir árið 2007 eru: 1. febrúar, l.mars, 1. apríl, 1. maí, l.júníog l.ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 25.000 og gjalda þeirra gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna er 1. maí. Flægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar. www.reykjavik.is Reykjavík, 20. janúar 2007 Borgarstjórinn í Reykjavík

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.