Dagfari - 01.07.1962, Page 3
RAGNAR ARNALDS:
BOÐAÐ
TIL
LANDS-
FUNDAR
DAGFARI
Blað um þjóðfrelsis- og menningarmál
3. tbl. júlí-ágúst 1962 2. árg.
Útgefandi: Samtök hernámsandstæðinga.
Ritstjóri: Sverrir Bergmann (ábm.).
Afgreiðsla Mjóstræti 3. Símar 23647 og 24701. Verð
25 kr. — árg. 100 kr. — Prentað í Steindórsprenti h.f.
Samtök hemámsandstæðinga eru samstarfsvettvangur manna úr ýms-
um ólíkum stjómmálaflokkum. I starfsreglum samtakanna er sérstak-
lega tekið fram, að samtökin taki ekki þátt í pólitískum kosningum en
leitist við að vinna menn úr öllum stjómmálaflokkum til starfs fyrir
stefnu hemámsandstæðinga. Enda þótt þannig sé fyrir það girt, að
samtökin hafi áhrif á kosningabaráttu flokkanna, er þó ekkert því
til fyrirstöðu, að hið gagnstæða eigi sér stað: kosningabaráttan hafi
áhrif á störf samtakanna. Einmitt þetta átti sér stað nú í vor í fyrstu
flokkspólitísku kosningunum, sem fram fóru eftir að Samtök hemáms-
andstæðinga voru stofnuð. Starfsemi samtakanna raskaðist allverulega
og var talið nauðsynlegt að gera mánaðarhlé á störfum, enda var rúm-
ur þriðjungur miðnefndarmanna (12 af 14) og helmingur framkvæmda-
nefndar (6 af 10), þar með taldir starfsmenn, á framboðslistum hinna
ýmsu flokka, en margir aðrir áhrifamenn samtakanna tóku þátt í kosn-
ingabaráttunni eins og vænta mátti með ræðuhöldum og skrifum, hver
fyrir sinn flokk.
Nú em kosningar gengnar um garð og starfsemi samtakanna hefur
aftur færst í eðlilegt horf. Mótmælaganga hemámsandstæðinga úr Hval-
firði tókst með miklum ágætum. Hásumarið er að vísu ekki heppi-
legur tími til fjöldafunda í Reykjavík, því að stór hluti bæjarbúa er
í sumarleyfi eða helgarferðum, en einmitt þess vegna var athyglis-
vert hve gangan hlaut glæsilegar undirtektir; um tvö hundmð manns
gengu alla leiðina frá Hvítanesi og þúsundir Reykvikinga bættust í hóp-
inn seinasta spölinn og breyttu litlum göngumannahópi í feiknarlegt
mannhaf á leið um götur borgarinnar. Hvalf jarðargangan var fyrsti þátt-
ur sumarstarfsins, öflug hvatning til hemámsandstæðinga um land allt
að hefja starfið á ný og vinna vel að undirbúningi landsfundar sam-
takanna í haust.
Tvö ár eru liðin síðan lagður var gmndvöllur að skipulögðu starfi
hemámsandstæðinga með fyrstu Keflavíkurgönguxmi, fundarhöldum,
stofnun héraðsnefnda og Þingvallafundi haustið 1960. Fyrsti landsfund-
ur samtakanna sem nú er ákveðið að halda í Reykjavík 14.—16. sept-
ember n.k. mun taka til meðferðar starfsemi samtakanna undanfarin
tvö ár og jafnframt marka stefnuna í baráttu hemámsandstæðinga næstu
árin. Helzta verkefni sumarsins er því undirbúningur fyrsta landsfundar-
ins. Ákveðið er að efna til funda víða um land í ágúst og byrjun sept-
ember og héraðsnefndir allar verða endurskipulagðar eins og gert er ráð
fyrir í reglum samtakanna. Fjárhagur samtakanna hefur fram að þessu
byggzt á frjálsum samskotum og sölu happdrættismiða, en stefnt verður
að því að koma fjáröflun samtakanna í fast horf með kerfi styrktar-
manna og áskrifendasöfnun að Dagfara.
Liðinn er rúmur hálfur annar áratugur síðan Bandaríkjamenn tóku
að ásælast land okkar undir hernaðarmannvirki. Þaxm tíma allan hafa
íslenzkir hemámsandstæðingar staðið í vöm í baráttu sinni gegn er-
lendri ásælni. Það er vissulega þreytandi að heyja vamarbaráttu ára-
tugiun saman. Þátttaka tugþúsunda Islendinga í starfi hemámsand-
stæðinga um land allt undanfarin ár hefur þó sýnt og sannað, að hvorki
skortir þolinmæði né þrautsegju, þótt seint gangi; það er ljóst orðið
að flestir Islendingar hafa staðfastan vilja til að berjast áfram gegn
hverskonar erlendri ásælni og þeim er kleyft að breyta vamarbaráttu
í sókn. Aldrei fyrr hefur þó verið unnið jafn skipulega og markvisst
að því eins og einmitt nú að reyra landsmenn í efnahags- og hemaðar-
fjötra erlenda stórvelda. Við skulum því minnast þess, öll sem lesum
þessar línur, að sérhvert okkar hefur ábyrgð að bera, — í sameiningu
ráðum við úrslitum þessa máls.
DAGFARI 3