Dagfari - 01.07.1962, Blaðsíða 5
SIGRIÐUR EIRIKSDOTTIR
ERU iSLENDINGAR ÞJÚÐRÆKNARI
EN AÐRAR ÞJÖÐIR?
Eg hefi undanfarið verið að lesa fróð-
lega og skemmtilega bók, sem fjallar um
danskt athafna- og menntafólk. Þeir, sem
að bókinni standa, segja í stuttum köflum
frá orsök og aðdraganda þess lífsstarfs,
sem síðar var valið, enda ber bókin heit-
ið: Hversvegna valdi ég lifsstarf mitt?
Allt er þetta fólk komið yfir miðjan ald-
ur, og vegna þess efnis, sem skrifa átti um
er því tíðrætt um minningar og áhrif frá
æsku- og uppvaxtarárum sínum. Á meðal
höfunda eru nokkrir ættaðir frá Suður-
Jótlandi, eða frá þeim hluta sem Þjóð-
verjar hertóku í styrjöldinni við Dani árið
1864. Lýsingarnar á því ástandi, sem ríkti
í byrjun þessarar aldar í þesu danska
landi, sem hafði þá verið undir menningar-
áhrifum erlendrar stórþjóðar í nærfellt 4
áratugi, virðist mér vera tilefni til alvar-
legrar umhugsunar, ekki sízt fyrir Islend-
inga, sem hafa dregizt undir áhrifavald
eins mesta stórveldis heimsins, og þar með
verið neyddir til þess að varpa dýrmætu
hlutleysi sínu fyrir borð og gerast um leið
meðvirkir i hinu kalda stríði, sem getur
auðvitað ekki staðið eilíflega, en líklegt er
að því lengur sem það varir, því erfiðara
verði að leysa vandamálin og afleiðingarn-
ar verði að lokum háskalegri.
Margir munu segja að hér sé ólíku sam-
an að jafna, þar sem Þjóðverjar tóku
Slésvík með vopnavaldi, en hinn erlendi her
á íslandi sé hér með meirihlutasamþykki
á Alþingi Islendinga. Að mlnu áliti stafar
okkur þó margfalt meiri hætta af hinni
,,frimsamlegu“ hersetu með öllum þeim
blekkingum og ósinnindavaðli sem henni
fylgja, og ætti andstaðan þó að vera auð-
veldari hér en hjá smáþjóð, sem á landa-
mæri upp að ágengum og mörgum sinnum
stei'kari aðilja.
Lítum nú svolítið á þær tvær aðstæður,
sem hér eru gerðar að umtalsefni. Þegar
Þjóðvei-jar höfðu náð Slésvík imdir sitt
vald, hófu þeir strax að prússneskum sið
að koma hinni dönsku þjóð, sem þar bjó,
undir þýzkt áhrifavald. Það gerðist bezt
með því að gera skólakerfið og kirkjulífið
þýzkt. Þeir dönsku vinir mínir, sem hér
segja frá, höfðu allir gengið i þýzka ríkis-
skóla með dönskunám 2 stundir á viku.
Heimili þeirra var hinsvegar aldanskt, og
segir einn þeirra frá því, að algengt hafi
verið, að einungis 5% nemenda, sem hófu
nám í barnaskóla, hafi skilið eitthvað í
þýzku, enda hafi einskonar málleysingja-
aðferðir verið notaðar í byi'jun kennslunn-
ar.
Allt var þetta fólk mjög trúað og kirkju-
rækið, en gat ekki sótt kirkju nema sjald-
an, vegna þess, að hvorki skildu foreldrarn-
ir þýzku né gátu hugsað sér að samþykkja
þannig óbeinlínis ofbeldið og sækja þær
kirkjur, sem danskir sálusorgarar þeirra
höfðu verið reknir frá. Þannig myndaðist
leynisöfnuður í Suðui'jótlandi fyrstu árin
eftir hertökuna. Málsmetandi danskir prest-
ar og annað menntafólk héldu uppi leyni-
legu skólahaldi í móðurmálskennslu og öðr-
um þeim námsgreinum, sem stefndu að því
að styrkja böndin við föðurlandið. Árið
1870, þegar Þjóðverjar herjuðu á Frakka,
voru danskir Suðurjótar herskildir með
Þjóðverjum, og höfðu sumir farið í það
sti-íð jafnvel af fúsum vilja í þeirri full-
vissu, að Frakkar yrðu sigurvegarar og
þeir myndu þá endui'heimta hinn danska
rétt sinn. En það fór á annan veg, með
stórsigri Þjóðverja í þeim hildarleik. Svona
geta örlögin stundum leikið grátt þá, sem
telja sig hafa vinninginn sin megin.
•
Þrátt fyrir þi-otlausa vinnu danslura ætt-
jarðarvina, bæði í heimalandinu og á hinu
hersetna landsvæði, varð hið danska þjóð-
erni smátt og smátt að þoka fyrir ofurefl-
inu, og átti það sér margar orsakir. Þjóð-
vei'jar búsettu sig unnvörpum í þessu fi’jó-
sama landi og áttu þýzku ríkisskólarnir og
kirkjan auðvitað drjúgan þátt í þeii'ri þró-
un. Gömlu ættjarðarvinirnir, sem mundu
styrjöldina, týndu tölunni, og áróðrinum
var hellt yfir ungu kynsslóðina. Þegar
heimsstyi'jöldin fyrri skall á, var hin
danska þjóðerniskennd samt sem áður svo
sterk, að sagt var að danskættaðir menn
undir þýzkri stjórn hafi farið mjög nauðug-
ir í styrjöldina með Þjóðverjum, minnugir
atbui'ðanna 1870. En hörð herskylda hvíldi
þá sem fyrr á Þjóðverjum. I þetta sinn
varð atburðarásin önnur. Þjóðverjar töp-
uðu leiknum og misstu þá hið gamla her-
fang sitt frá 1864. Danir gátu aftur sam-
einast, og það hefur sagt mér góð vinkona
mín, formaður danska hjúkrunarkvenna-
félagsins, ser er ein þeirra er í framan-
greinda bók ritar, og alin upp norðan
Flensborgarfjarðar, að aldrei á æfi sinni
hafi hún upplifað aðra eins tignarstund og
þegar Kristján X. reið á hvítum hesti sín-
um yfir landamærin hinn 10. júlí 1920, til
hins gamla endurheimta ríkishluta, sem þó
ekki vannst allur til baka.
Suðurjótlandsmálið er enn mikið sárs-
aukaefni fyrir Dani, því að þrátt fyrir
ætt.jarðarást og tryggð við móðurlandið,
höfðu hin þýzku áróðursöfl náð miklum
árangi’i. Mikill fjöldi Þjóðverja er nú bú-
settur í þessum landshluta, og áhrifanna
gætir í hvívetna á hina dönsku íbúa. Þvi
hefur t. d. verið haldið fram, að hvergi
innan dönsku þjóðarinnar hafi danskir
nazistar verið eins fjölmennir í síðustu
styrjöld og einmitt á Suðui'jótlandi, enda
héldu Þjóðvei'jar þar alla tíð uppi skólum
og áróðri. Þetta er auðvitað ekki óeðlilegt.
Á landamærasvæðum skarar hver eld að
sinnar þjóðar hugðarefnum, og mætti þar
lengra fara og vitna í hinar stöðugu landa-
mærakröfur og erjur í landshlutum Áust-
urríkis og Italíu.
Snúum okkur nú augnablik að okkur
sjálfum, sem erum þó svo lánsöm að eiga
hvorki í landamærastreitu né tungumála-
þrasi, og athugum, að þessum hugleiðing-
um loknum, hvort við gætum ekki lært eitt-
hvað af því, sem sagt hefur verið, og i
fullri einlægni viðurkennt, að við erum
sennilega ekkert siðferðislega eða þjóðern-
islega sterkari en t. d. Danir. Nú er talið
álitamál, hvort hinn hertekni hluti Slés-
víkur hefði þolað áratuga hersetu til við-
bótar, enda þykir mörgum líklegt, að þá
hefðu Danir í Slésvik verið orðnir miimi-
hlutabi'ot og smátt og smátt misst öll
áhrif á gang mála þar. Mörgum málsmet-
andi Dönum ber saman um, að sameining-
in mátti ekki seinni vera, ef ekki átti illa
að fara.
Island var hertekið gegn vilja sínum vor-
ið 1940. Þó óþai'ft sé að rekja þann atburð
hér, skal aðeins minnt á, að þá þegar komu
DAGFARI 5