Dagfari - 01.07.1962, Blaðsíða 18

Dagfari - 01.07.1962, Blaðsíða 18
BJðRN ÞORSTEINSSON, SAGNFR.: 1262-1662-1962 „Allt frá því að Islendingar fengu stjórn- arskrána 1874, hafa þeir deild ákaft um pólitik. Þeir eru hugsjónamenn, en oft of- stækishneigðir og geta ekki látið undan. Stundum hafa eindregin flokkssjónarmið veikt aðstöðu þeirra í samskiptum við aðr- ar þjóðir. tJr erlendri skýrslu um Island. Allt frá því að þjóðfrelsisvakningar tók að gæta hér snemma á 19. öld og fram til þessa dags, hafa ártölin 1262 og 1662 ver- ið tengd örlagaþungum óheillaatburðum í íslenzkri sögu. Árið 1262 afsöluðu Islendingar sér full- veldi og gerðu Gamla sáttmála við Noregs- konung. 1662 gerðist Danakonungur hér einvaldur með ofbeldi. Árið 1962 er ekki liðið, en á lofti eru ýmsar ískyggilegar blikur, sem gefa til kynna, að býsna skammsýn flokkssjónar- mið og pólitískt ofstæki ætli að stjóma gerðum þeirra, sem fara með völdin á þessu herrans ári. Islendingar gerðu samning við Noregs- konung 1262—’64 nær eingöngu af stjórn- málaástæðum og nauðungarlítið. Sú stjórn- skipan, sem hér var lögfest um 930, þegar íslenzka þjóðveldið var stofnað, var mjög úr skorðum gengin á 13. öld. Við tölum oft um forna íslenzka lýðveldið og lýðræð- ið. Lýðræðið hvíldi á þeirri forsendu, að ríkisvald náði ekki að festa hér rætur í upphafi landsbyggðar, og lýðveldið, sem réttara er að nefna þjóðveldi, hélzt við lýði, meðan ríkisvald helzta nágrannans eða Noregs var ekki fuilmótað tæki til yfir- drottnunar og útþenslu. Her, lögregla, dómstólar, fangelsi, löggjafarvald, trúar- brögð, áróður og embættismannalið — hafa löngum verið tæki í höndum einnar stétt. ar, dálítils hóps manna, sem hefur beitt þessu rikisvaldi sjálfum sér til framdrátt- ar. Seint á 9. öld tók Haraldur hárfagri sér fyrir hendur að stofna rikisvald yfirstétt- ar í Noregi, en í þeim sviptingum flýðu margir land, gerðust pólitískir flóttamenn og settust að á Islandi. Á ýmsu lék um norska ríkisvaldið fram á 13. öld. Sverrir konugur Sigurðsson (d. 1202) og Skúli jarl Bárðarson (d. 1240) áttu drjúgan þátt í því að fullkomna stjómtæki þess, og Há- koni konungi gamla tókst að sameina að- alinn, lærðan og leikan, um rikisvaldið undir forsæti konungs. Þegar svo var kom- iö, dróst íslenzka yfirstéttin inn I þetta 18 DAGFARI samfélag norskra stjórnenda, sem studdist við hálfguðfræðilegt kommgsvald. Hér heima höfðu höfðingjar eflzt að flokkum og ofríki og leitazt við að skapa sér ríkis- vald. Þeirri viðleitni voru þau takmörk sett, að Island gat hvorki orðið fullvalda konungs- né furstaveldi á ofanverðum mið- öldum; það stóð ekki undir yfirbygging- unni. Hér skorti æðstu stofnanir stéttar- greindra ríkja: erkistóí, dómklerkasam- kundu og þar með hinn kynborna og krýnda fursta. Furstaveldi Noregs stóðst ekki straum tímans, er árin liðu, og lenti undir Danmörku. Á ofanverðum miðöldum leiddi stjórnmálaþróun Vesturlanda til sameiningar ýmissa ríkja í stærri heimdir. Frakkland og Spánn urðu t. d. að ríkis- heildum, en þau höfðu áður deilzt í ríki, byggð fjarskyldari þjóðum en Norður- landamenn voru þá. Að lokum sameinuð- ust Norðurlönd 1 Kalmarsambandinu, en efnahagslega var sú ríkisheild ekki nægi- lega sterk til þess að standast til lengdar. Islendingar áttu lítilla hagsmuna að gæta innan þessa bandalags, og þeim varð það til happs að geta staðið að miklu leyti utan þess. Kalmarsambandið leystist upp á 16. öld, en Islendingar voru barðir með hervaldi undir efnahagsleg yfirráð dansk- þýzkra kaupmanna, og Island varð einok- uð nýlenda árið 1602, eins og illræmt er orðið. —O— Á Islandi varð rikisvaldið hálferlent eft- ir 1262, en Islendingum tókst fram undir miðja 16. öld að halda löggjafarvaldi og dómsvaldi að talsverðu leyti í sínum höndum og hamla gegn fjárdrætti úr landi. Með Gamla sáttmála reyndu Islendingar eftir föngum að tryggja sig gegn ágengni ríkisvaldsins, og alþingi varð vigi höfð- ingja og bændastéttarinnar gegn konungs- valdinu. Árið 1662 voru þeir neyddir með hervaldi til þess að afsala sér öllum þess- um réttindum, og konungur varð einvald- ur í landinu. Þessi skipan mála var hingað flutt á herskipun, en átti sér engar for- sendur í atburðarásinni hér heima. Dti 1 Evrópu var einveldið sprottið af sameigin- legum hugsmunum konungs, rikis („Ríkið, það er ég“, Lúðvík 14.), sem girntist meiri tekjur í rikiskassann, — og borgaranna, sem æsktu sterks ríkisvalds, sem gæti tryggt þeim vörumarkaði innanlands fyrir ágengni aðalsins og staðið £ið baki þeim I verzlunarstyrjöldum. Skyldra sjónarmiða gætir hjá borgarstétt Vesturlanda á vor- um dögum. Einbeittustu foringjar hennar æskja margir streks rikisvalds, sem getur tryggt þeim vinnumarkaðinn, þ. e. haldið verkalýðnum í skef jum (= kommúnistum) og beitt hervaldi til þess að halda göml- um mörkuðum og vinna nýja (skáka Sovétríkjunum). Þessar hvatir hlóðu undir þýzka nazistaveldið á sinum tíma og eru frumkrafturinn í Nato og Efnahagsbanda- laginu. Hér úti á Islandi má jafnvel heyra forystumenn borgaranna harma það, hve ríkisvaldið sé veikt, m. ö. o. að borgara- stéttinni hafi ekki tekizt að verða allsráð- andi í landinu. Menn segja, að sagan endurtaki sig. Hún gerir það ekki í venjulegum skilningi, því að atburðirnir hafa hamskipti, breyta um inntak, ef þeir eru leiknir upp aftur. Ein- veldið var samskiptatími, millibilsástand, þegar aðalsveldið hrundi, og þriðja stétt- in ruddi sér til rúms, en borgurunum var ekki enn vaxinn sá fiskur um hrygg, að þeir gætu gripið stjórnartaumana. Á 17. og 18. öld er einveldið víðast hvar jákvæð- ur áfangi á þróunarbraut stjórnskipunar- mála, og það varð að upplýstu einveldi um það er lauk. Hið borgaralega einveldi 20. aldar (fasisminn) er hins vegar furðuleg skop- stæling á einvaldsstjórnum enda bezt lýst af Chaplin í kvikmyndinni Einræðisherr- ann. Þessi einveldi hafa endað með ósköp- um, af því að þau voru og eru borin uppi af andspyrnu hrynjandi stétta gegn þróun málanna. Árið 1962 er það helzt á dag- skrá, að borgarstéttir Vestur-Evrópu sverj- ist í fóstbræðralag innan svonefnds Efna- hagsbandalags, en innan þess á að lög- festa stjómleysi hins óupplýsta auðvalds 1

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/967

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.