Dagfari - 01.11.2007, Side 18
Frá Síerra Leóne (mynd: UNICEF/Pirozzi)
„Ég sneri mér í áttina að mýr- í gikkinn, og ég drap mann.
inni þar sem vopnaðir menn Skyndilega tók allur hrylling-
hlupu og freistuðu þess að urinn sem ég hafði orðið vitni
komastundan.Andlitiðámér, að síðan ég komstfyrst í kast
hendurnar,stuttermaskyrtan við stríðið að leiftra fyrir
ogbyssanvaralltsamanblóði hugskotssjónum mínum...í(
drifið. Ég lyfti rifflinum, tók - Ishmael Beah.
Ishmael Beah var aðeins þrettán
ára þegar hann gekk til liðs við
her stjórnvalda í Síerra Leóne.
Tólf ára gamall hafði hann orðið
viðskila við ijölskyldu sína eftir
að uppreisnarmenn réðust til atlögu
í sveitaþorpinu þar sem hann bjó.
Hann átti því ekki margra kosta völ til
þess að halda lífi, aðra en að taka þátt
í stríðinu sem hermaður.
Ólíkt mörgum félögum sínum lifði
hann stríðið af. Um reynslu sína af
stríðinu hefur hann ritað bókina Um
langan veg - saga herdrengs, en þess
má geta að hann var staddur á íslandi
fyrir skemmstu og áritaði þá þessa
bók. Frásögnin er dapurleg og hroll-
vekjandi og bregður ljósi á aðstæður
fjöldamargra barna; Amnesty Int-
ernational telur að yfir hálf milljón
barna undir átján ára aldri taki virkan
þátt í hernaðarátökum. Flest eru á
aldrinum fjórtán til átján ára, en dæmi
eru um að börn allt undir tíu ára aldri
þurfi að berjast í stríði.
18
Börn af báðum kynjum eru rænd
æskunni til þess að taka þátt í
stríðsátökum víða um heim, þó að
vandamálið sé stærst í Afríku. Raunar
taka stúlkur meiri þátt í hernaði en
Böm í hring-
y y iðu átaka
verða vitni
að og þurfa að
sýna gríðarlega
grimmd...
ætla mætti; samtökin Save the Chil-
dren telja stúlkur allt að 40% herbarna
á heimsvísu. Hlutskipti herstúlkna er
auðvitað ekki betra en strákanna því
auk þess að standa vaktina þeim við
hlið í fremstu víglínu er stúlkunum
oftar nauðgað eða haldið sem kynlífs-
þrælum fullorðinna hermanna.
Börn í hernaðarátökum þurfa auðvit-
að að horfa upp á ólýsanlegar hörm-
ungar og eru jafnvel fengin til þess að
beita ofbeldi gegn eigin ijölskyldum
og samfélögum. Þeirra hlutverk eru
margskonar og hersveitirnar sem þau
tilheyra líka - eða allt frá herliði á
vegum stjórnvalda til vopnaðra hópa
af öllum stærðum og gerðum.
Oft eru börn einnig látin sinna störf-
um utan vígvallarins. Þau njósna um
óvini, eru sendiboðar, elda og þjóna til
borðs og annað þaðan af verra eins og
að sinna kynferðisþjónustu og hreinsa
upp jarðsprengjusvæði. Þau eru jafn-
vel látin gera sjálfsmorðsárásir.
Börn í hringiðu hernaðarátaka verða
vitni að og þurfa að sýna gríðarlega
grimmd auk þess að þola ólýsanleg-
an ótta. Börnin hafa auðvitað engar
Dagfari • nóvember 2007