Dagfari - 01.11.2007, Blaðsíða 36
máli. Hefðu þeir hernumið Argentínu,
þá hefðu Argentínumenn líka barist
á móti. Þú getur kallað hvern sem
er terrorista eða hryðjuverkamann.
Þetta er bara þín skilgreining. Þetta
breytir ekki staðreyndunum og því
ástandi sem búið er að vera þarna í 40
ár. Palestínumenn eru ríkislausir og
ríkisfangslausir og stjórnin í ísrael er
búin að vonast eftir því allan þennan
tíma að þeir sætti sig við þetta ástand.
En það gera þeir náttúrlega ekki.“
Eina lausnin í augum Toms er að
Palestínumenn fái sitt eigið ríki,
ísrael hveríi alfarið með her sinn frá
herteknu svæðunum og landnemarnir
fari þaðan burt með sitt hafurtask.
Hann telur litlar líkur á því á næst-
unni, enda skorti til þess pólitískan
vilja og meirihluti ísraelsku þjóðar-
innar hafi ekki viðurkennt þetta fyrir
sjálfum sér.
„Þótt sumir segist vilja frið,“ segir
hann, „þá vilja þeir ekki skila Pal-
estínumönnum herteknu svæðunum
eða hrekja landnemana í burt. Það
fellur ekki undir það að vilja frið. Það
er ekki hægt að biðja fólk um frið en
hernema jafnframt land þess og setja
þar einhverja vandræðagemsa eins
og landnemana sem valsa út um allt.
Það er ekki hægt að biðja fólk um frið
en senda um leið hermenn á vettvang
til að gæta þess að landnemabörnin
geti velt borðum á útimörkuðum og
grýtt Araba að vild. Þegar ástandið er
svona er ekki hægt að biðja fólk um
frið. Samt eru alveg ótrúlega margir
sem eru beinlínis á móti því að vera
nokkurn tímann í friðarviðræðum
við Palestínumenn. Ótrúlega margir.
Kannskiekkiyfirhelmingurþjóðarinn-
ar en samt ótrúlega margir.“
Friðarhreyfingin og prófíll 21
Eins og sjá má af þessum orðum er
Tom svartsýnn á að það takist að leysa
deilur ísraels- og Palestínumanna. En
þótt sá hluti ísraelsku þjóðarinnar,
sem ekki hefur til að bera einlægan
friðarvilja, sé ef til vill fullstór er þar
þrátt fyrir allt nokkuð öflug friðar-
hreyfing. Tom greinir frá því að raun-
ar séu mörg friðarsamtök í landinu,
en mjög sé misjafnt hversu langt
þau vilji ganga; sum vilji aðeins skila
hluta hernumdu svæðanna til baka en
önnur vilji skila þeim öllum og að auki
hleypa palestínskum flóttamönnum
inn í ísrael. Aðspurður segir Tom ekki
vera til nein trúarleg friðarsamtök,
enda séu mjög fáir bæði heittrúaðir
og friðarsinnaðir. Almennt séu friðar-
samtökin hins vegar vinstrisinnuð.
Meðal þess sem ísraelska friðarhreyf-
ingin hefur tekið sér fyrir hendur er
að ráðleggja fólki um þýðingu þess að
neita að ganga í herinn. Ein af leiðun-
um til þess er að koma þannig fram í
viðtölum í aðdraganda herkvaðningar
að það falli undir það sem nefnt er
„prófíll 21“. Þá getur fólk komist hjá
því að ganga í herinn, en sá böggull
fylgir skammrifi að það getur þá einnig
verið útilokað frá ýmsu námi, til dæm-
is í læknisfræði. Hið sama á við um
ýmis störf, en það að hafa ekki verið
í hernum háir fólki á vinnumarkaði.
Tom nefnir að ísraelskir Arabar ganga
ekki í herinn, en það hefur augljós
áhrif á atvinnumöguleika þeirra.
Um áðurnefndan prófíl segir Tom:
„Meðal þess sem hægt er að gera er
að fullyrða í svona viðtali að maður
sé samkynhneigður eða mígi ennþá
undir. Þá fær maður prófíl 21, en það
merkir að maður sé geðveikur eða ekki
með öllum mjalla. Vilji maður grein-
ast með þennan prófíl getur verið gott
að láta detta í umræðunni: „Já, veistu,
svo er ég líka hommi.“ Það væri líka
hægt að segja: „Ég get ekki verið fjarri
hundinum mínum í meira en tvo
sólarhringa." En svo eru líka aðrir sem
segjast einfaldlega vera friðarsinnar
og að þeir muni ekki ganga í herinn.
Það getur komið mönnum í fangelsi."
Fjölskylda og vinir
Sú hugsun læðist nú að blaðamönn-
um að Tom hafi verið nokkuð hepp-
inn að komast hjá fangavist, en eins
36
Dagfari • nóvember 2007