Aðventfréttir - 01.01.1992, Blaðsíða 1

Aðventfréttir - 01.01.1992, Blaðsíða 1
SÁLMABÓKIN Man einhver eftir aðalflindi þar sem tilvonandi útgáfa sálmabókar var ekki á dagskrá - mál málanna, sem allir vilja að sé framkvæmt en af mörgum ástæðum hefur aldrei náð fram að ganga? Að lokum var svo komið að fáir vildu tala um bókina góðu, nema þá í góðlátlegu gríni með bros á vör. Gamla, góða, svarta sálmabókin, "Sálmaroglofsöngvar" vargefinút 1954 til bráðabirgða, meðan verið varað gefa út alvöru sálmabók með nótum og öllu tilheyrandi. Nú er svarta sálma-bókin uppnotuð og spjöldin öll að losna af, tími hennar er liðinn. En ekld skulumviðörvænta. Nýja sálmabókin er að koma út! Já, í alvöru. Þetta er dagsatt. Það erbúið að setja alla sálmana, búið að prófarkalesa bókina ótal sinnum, það er meira að segja búið að filmuvinna alla bókina og þegar þið fáið þetta blað í hendumar reikna ég fastlega með þvi að filmumar verði allar komnar til prentsmiðju safnaðarins í Finnlandi þar sem bókin verður prentuð. í janúar 1990 varhafísthanda við bókina upp á nýtt, ákveðið var að tölvusetja alla bókina og varþess vegna nauðsynlegt að byija frá gmnni. Stuðst var við alla þá miklu vinnu sem búið var að gera og auðveldaði það okkur starfið. Frá því fyrst var farið að huga að útgáfu sálmabókar hafa ótal margir einstaklingarhjálpað til og fómað mildum tíma og mildlli orku af fúsu geði. Þeir munu nú um síðir sjá árangurerfíðis síns. Hvað mun svo nýja bókin heita? Hvað verðurhún stór? Verðurhún með nótum? Margar spumingar heyrast og það verður góður dagur þegar bókin verður kynnL Áfonnað er að halda upp á útgáfudaginn með mikilli og góðri sönghátíð. Munþetta verða auglýst nánar í söfnuðunum þegar bókin kemur til landsins. Á meðan við bíðum örlítið lengur er rétt að geta þess að nýja sálmabókin munbera heitið "Sálmarog lofsöngvar". Kunnulegt nafn ekki satt? í bókinni verða 462 sálmar, þar sem hver sálmur er raddsettur í fjórum röddum og textinn settur milli nótnalfna. Verður bókin um 500 blaðsíður að stærð. Hvað mun svo nýja sálmabókin koma til með að kosta? Einhvers staðará bilinu ljögur til fímm þúsund krónur. Til að byija með verður lögð áhersla á að selja einstaklingum bókina en verðið er haft lágt í trausti þess að margar bækur seljist á skömmum tíma. Verður það mikill lofgjörðar og fagnaðardagur þegar hver og einn safnaðarmeðlimur getur átt sína bók og hægt verður að syngja alla gömlu góðu sálmana ásamt fjölmörgum nýjum sem ekld hafa verið til áður með íslenskum texta. Erþað okkar sannfæring að þessi bókmuni færa söfnuðinum miklablessun og vera Guði til dýrðar. ÞBS BIBLÍULEXÍUR 4. ÁRSFJÓRÐUNG 1992 Hjónin Ron og Karen Flowers sem era fjölskylduráðgjafarhjáAðalsamtökunum eru í sameiningu höfundar hvíldardagsskólalexíunnar fyrir 4 ársfjórðungsþessaárs. EfniðerLjóðaljóð Salómons. Um þessar mundi r leggja þau síðustu hönd á handrit bókar um sama efni þar sem efninu eru gerð enn betri skil en hægt er að gera í sjálfri lexíunni. Bókin mun verða gefín út af Review and Herald. Hægt verður að panta eintak af þessari bókgegnum pöntunarþjónustuna á skrifstofu Samtakanna, Suðurhlíð 36. NUTANA SELT Eftir margra mánaða samninga- lotu hefiir Nutana-Danmörk og Nutana- Noregur verið selt og Nutana-Finnland hætt starfsemi sinni. í fjölmörg ár hafa þessar verksmiðjur verið leiðandi í framleiðsluheilsu matvælaen undanfarið hefur reksturinn reynst erfiður og samkeppnin harðnað. Megin ástæða fyrir versnandi afkomu fyrirtækjanna var skortur á nýju fjánnagni til þess að auka starfsemina og efla markaðsátak, auk þess vantaði lykil menn til þess að stjóma fyrirtækjunum. Um mánaðamótin nóvember- desember voiu þessi þijú fyrirtæld seld eða þeim lokað. Vegnaþessarabreytinga sagði Jan Paulsen, formaður Stór Evrópudeildar safnaðarins, að "á undanfömum þremur til fjómm ámm hefúr rekstur þessara fyrirtækja dregið umtalsverða fjármuni til sín frá söfnuðinum í Danmörku, Noregi og Finnlandi. Til þess að skýra söfnuðinum frá þessum breytingum og þeim sem þær munu hafa á söfnuðinn, hafa verið boðaðir auka-aðalfundir safnaðarins í Danmörku, Noregi og Finnlandi, snemma á þessu ári.". Jan Paulsen sagði einnig að "söfnuðum okkar á Norðurlöndum er mjög ákaft um að halda áfram starfí sínu að bera samfélagi sínu andlegan vitnisburð. Meðþvíað styrkja stöðu sína og beina fjánnagni og kröftum í nýjan farveg mun söfnuðurinn halda áfram sLirfi sínu viðþau foigangsverkefni sem Drottin gaf honum að vinna, nánar tiltekið, að vera verkfæri hans í heimsboðun.” Fréttatilkynning frá TED

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.