Aðventfréttir - 01.02.1992, Side 3

Aðventfréttir - 01.02.1992, Side 3
FRÁ STARFINU Námskeið í Þorlákshöfn Mánudaginn 10. febrúar hófst aámskeið í Opinberunarbók Jóhannesar í Kiwanishúsinu, Þorlákshöfn. Boðsmiðum var dreift í hús viku áður í Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka og í sveitinni milli Þorlákshafnar og Hveragerðis. Námskeiðið er haldið eitt kvöld í viku og eru áformuð tíu kvöld til að byija með. Fyrstakvöldið sóttu 23 námskeiðið og var áhugi mikill. Dagana 13. til 16. febrúar síðastliðinn var haldið námskeið um streitustjóm í safnaðarheimili okkar í Vestmanna- eyjum. Undirritaður var fyrirlesari og kom til Eyja á fimmtudeginum með flugi. Nokkrir aðrir komu einnig ofan af landi til þess að takaþátt í námskeiðinu en gátu ekki komist fyrr en á föstudeginum vegna vinnu. Þeir fengu að kenna svolítið á þjóðbraut Vestmannaeyinga, "Heijólfi"! Veðrið var "týpískt" Herjólfsveður, austan 10 vindstig. Það virtist vera gott veður áður en lagt var af stað þar sem skipið hreyfðist ekkert í höfhinni, svo kojur vom látnar eiga sig. Það var ekki fyrr komið út fyrir höfhina að fólkið leit á hvert á annað og spurði: "Verðurþettasvonaallaleiðina?!" Og viti menn, það var rétt. Austan bræla og æla alla leið! Mikið var gott að geta flogið á undan og tekið síðan á móti gestunum á bryggjunni í Vest- mannaeyjum! Á námskeiðinu var fjallað um ýmsa þætti lífsins sem magna streituna í lífi okkar, svo sem tjáskipti, starfsleiða, skapgerð, reiði, breytingar í lífinu og Hjónamót mun verða haldið dagana 1. - 3. maí 1992. Að vandamun verðamikið um ffæðslu og umræður um áhugaverð efhi en einnig lögð áhersla á að við hreinlega njótum þess að vera saman í hvíld og leik og útiverustundum. Aðal fyrirlesarar á mótinu munum verða Lilja Guðsteinsdóttir og Steinþór Þórðarson. Undirritaður er fyrirlesari á námskeiðumnn, en hjálpar jafhffamt til á námskeiðinu í Holiday Inn í Reykjavík. Biðjum fyrir þátttakendum á þessum námskeiðum að þeir mættu leita sannleikans afölluhjartaog verafusir að fylgja Drottni símrni og ffelsara. Einnig er nauðsynlegt að biðja fyrir þeim sem standa að þessum námskeiðum, að Guð leiði þá í orði og verki. grundvallar heilbrigðislögmál. Tvennt vakti sérstaklega athygli þátttakenda. Fyrst, að rannsóknir benda til þess að hver einstaklingur hefur ákveðna takmarkaða lífsorku við fæðingu. Enginn veit hve mikla orku hann hefur fyrr en hún er uppurin. Þegar við keyrum okkur áffam með of miklu álagi er tekið út af þessum reikningi og hrömun á sér stað. Þess vegna er það ekki skynsamlegt að ofkeyra sig, né að nota vanabindandi efhi. Annað sem vakti athygli var að hlátur og glaðværð stuðlar að ff amleiðslu endorfín efna í líkamanum sem styrkja ónæmiskerfi líkamans og auka vellíðan. Þegar einstaklingi líður illa er gott að gera eða lesa eitthvað fyndið til þess að hlæja. Það getur jafhvel dregið úr sárum verkjum. Það er nauðsynlegt að íhuga vel líf sitt öðm hvom, athuga gildismat sitt og forgangsröð. Hvað er það sem ræður ferðinni? Þetta er meðal annars gert á námskeiðinu tun streitustjóm. Þeir sem það sóttu í Vestmannaeyjum munu seint gleyma þeirri reynslu. ÞBS Hugmyndin er sú sama og venjulega að hjón sæki mótið án bama og geti þannig notið þess að fullu sem ffam fer. Nauðsynlegt er að þátttakendur skrái sig á skrifstofu Samtakanna í s. 91-679260 fyrir 1. apríl n.k. þar eð ffamkvæmd mótsins mun ráðast af því hvort næg þátttaka verður fyrir þann tíma. EG Skátamót Útilegu-skátamót verður haldið helgina 10.-12. júlí uppi á heiði í námunda við Geitafell. Spennandi dagskrá. Láttu foringja þinn vita um þátttöku þína sem fyrst. Davíð West Æskulýðsmót á íslandi Æskulýðsmót verður á Varmalandi 3.-5. júlí 1992. Mótsgesturinn verður David Spearing frá Suður Englandi. Eldhúsaðstaða er á staðnum en komið með eigin mat. Komið með svefhpoka með ykkur. Dýnur em á staðnum fyrir fyrstu 25 sem staðfestaþátttöku. Gisting í tvær nætur kostar 1.200 krónur. Þar að auki er ferðakostnaðurinn í Borgarfjörð. Eigum við að sameinast um að panta rútu og fara hjá Strút og um Kaldadal á leiðinni heim á sunnudeginum? Staðfestið á skrifstofu Samtakanna s. 679260 eða heima hjá Davíð West s. 36655. Davíð West Æskulýðsmót í Ungverjalandi Ljúfur hópur fimmtán íslenskra ungmenna hefur staðfest hug sinn varðandi þátttöku í alþjóðlega æskulýðsmótinu sem haldið verður í Ungverjalandi á vegum Stór-Evrópu- deildaiWar 28. júlí -1. ágúst. Af öllum Íátttakendum frá okkar deild munu slendingar ferðast lengst til að komast á mótið, en ungmenni hvaðanæva að úr heiminum hafa sótt um að verða á mótinu og til að mynda er búist við góðum hópi ffá Brasilíu auk annarra landa í Suður- Ameríku. Þetta er vitanlegaeinstakt tækifæri til að kynnast aðventæsku víða að úr heiminum, og þó sér í lagi ffá þeim löndum sem fyrir stuttu voru að baki hins svokallaða “jám-tjalds.” Auk samkoma, tónlistar, ffæðslu og umræðuhópa verður tækifæri til að vitna um trú sína á skemmtilegan hátt fyrir almenningi í Búdapest. Að sjálfsögðu verða kynnisferðir um borgina og nærsveitir en að mótinu loknu fara menn sínar eigin leiðir og skoða sig um í Evrópu. Við óskum öllum góðrar ferðar í sumar og hlökkum til að heyra og sjá þegar menn koma affur heim til íslands, reynslunni ríkari. Davíð West ÞBS Yertu hress - ekkert stress Streitunámskeið í Vestmannaeyjum Hjónamót 1. - 3. maí Aðventfréttir 2,1992 3

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.