Aðventfréttir - 01.02.1992, Síða 8

Aðventfréttir - 01.02.1992, Síða 8
AÐALFUNDUR VESTUR-NORRÆNA SAMBANDSINS METUR NÚVERANDISTÖÐU SAMBANDSINS OG LEGGUR FRAMTÍÐARÁFORM himmerlandsgAredn, DANMÖRK - Auka-aðalfundur Vestur- norræna sambandsins var haldinn að Himmerlandsgárden 16. og 17. febrúar 1992. Tilgangur fundarins var aðallega sá að gera fulltrúum grein fyrir Qárhags- stöðu starfsins í Danmörku og Noregi eftirhinalvarlegu flárhagsleguáföll sem safnaðarstarfið hefur orðið fyrir vegna stjómarákvarðana og rekstrastöðu sumra af stofnumun Sambandsins. Það sem olli mestu tapi var gjaldþrot Nutana verksmiðjanna bæði í Danmörku og Noregi. Nutana var hluti samtakanna "Nordisk Filantropisk Selskab" - NFS, en innan þeirra samtaka voru einnig Skodsborg heilsuhælið og Sjúkraþjálfunarskólinn í Skodsborg. Vegna slæmrar rekstrarafkomu Nutana voru tekin lán sem Skodsborg heilsuhælið ábyrgðist. Þannig hefur þetta virta heilsuhæli í Danmörku nú orðið fórnarlamb fjárhagsstöðu NFS eftir gjaldþrot Nutana verksmiðjanna. Við upphaf fundarins gerðu stjómendurVestur-norrænasambandsins fimdinum grein fyrir því að persónuleg framtíðarstaða þeirra væri alfarið í höndum fundarins. Fulltrúamir óskuðu eftir því að fimdarskráin innifæli einnig umræður um framtíðarskipulag Sambandsins. Rolf H. Kvinge, formaður, og Jóhann E. Jóhannsson, fjármálastjóri, gerðu fundinum grein fyrir stöðu mála í hreinskilni og á opinskáan hátt. Stjómendum Sambandsins var gefið tækifæritil þessað skýraákvarðanir sínar og núverandi stöðu mála þannig að safh- aðarfólkið fengi sem ýtarlegastar upplýsingar um þær kringumstæður sem leiddu til þessarar mjög svo alvarlegu fjárhagsstöðu Vestur-norræna sambandsins. Stjómendumir skýrðu frá því að hluti vandans væri arfleifð fyrri tíma ákvarðana og að einnig hafi núverandi fjárhagsástandþjóðfélagsinsí Danmörku og Noregi haft mikil áhrif. Einnig er greinilegt að ýmsum persónum og stjómum hafa orðið á mistök gegnum árin. Það stjómskipulag sem söfhuðurinn býr við og sú aðferð ákvörðunartöku sem notuð er innan safnaðarins dreifir ábyrgðinni mj ög víða en Sambandið rekur milli 20 og 3 0 stofhanir þar á meðal skóla og heilsustofhanir. Á meðan á umræðum stóð kom það greinilega í Ijós að ýmsar breytingar á persónum í forystu Sambandsins væm óumflýjanlegar og skýr merld vom einnig gefin þess efnis að breytingar þyrftu að verðaástjómskipulagiþess. "Söfhuðumir í Daxunörku ogNoregi hafastarfað saman stjómskipulagslega séð í 60 ár. Samstarf í gerð áforma, samnýting og sameiginleg Qármögnunhefurhaftblessanir í förmeð sér. En á hinn bóginn hefur safnaðarmeðlimum ekki fjölgað undanfarin ár. Einnig hefur sá tími og sú orka sem leiðtogar Sambandsins hafa þurft að leggja í stjómun og eftirlit með stofhumnn gefið þeim lítið svigrúm til þess að helga sig öðrum atriðum, sér í lagi boðunarhlutverki safhaðarins. Sumir hafa velt því fyrir sér hvort tími sé til þess kominn að varpa fram spumingunni: Er til betri leið?”, sagði Jan Paulson, formaður Stór-Evrópudeildarinnar, sem var viðstaddur aðalfundinn á Himmerlandsgárden. Fulltrúar fundarins vörpuðu fram þeirri hugmynd að Sambandinu yrði skipt í tvennt þannig að söfnuðimir í Danmörku og Noregi ynnu hver fyrir sig. Skref í átt að skiptingu Sambandsins munu verða til athugunar næstu mánuði. Aðalfundir hina ýmsu samtaka Sambandsins sem ftam miuiu fara næstkomandi vor munu hafa mögulega skiptingu á Sambandinu á sinni fundarskrá. Eftir ýtarlegar umræður og nákvæma athugun kom fram tillaga um breytingar á leiðtogum Sambandsins og var hún samþykkt af fulltrúum fundarins. Fram kom á fundinum að þessar aðgerðir drægju ekki í efa persónuleg heilindi og ráðvendni safnaðarleiðtoganna. Eftirfarandi aðilar voru kosnir til að vera stjómendur Sambandsins til bráðabirgða þangað til endanleg tillaga um skiptingu Sambandsins yrði lögð ftam: Helge Andersen, formaður, en hann hefur í mörg ár þjónað sem formaður Samtaka safiiaðannaí Vestur-Danmörku og einnig sem formaðurNígeríusambandsins. Hann tekur við formennsku Vestur-norræna sambandsins eftir að hafa verið í forsvari fyrir Þróunarsamvinnustofhiminni innan Sambandsins (ADRA). Jóhann E. Jóhannsson var beðinn um að taka að sér ritara-fjármálastjóraembætti Sam- bandsins. Aðalfundurinn á Himmerlands- gárden þakkaði Rolf H. Kvinge, ftáfarandi formanni, og John Pedersen, ftáfarandi ritara, fyrir helgun þeirra í starfi og þá elju og atorku sem þefr lögðu í starf sitt á undangengnu mjög erfiðu tímabili í sögu Vestur-norræna sambandsins. Eftir fundinn sagði Jan Paulsen eftirfarandi: "Ákvarðanirþærogtillögur um skiptingu Vestur-norræna sambandsins sem ftam hafa komið á þessum fundi ættu ekki að túlkast sem vísbending þess að upplausnarandi hafi gripið um sig innan andlegrar fjölskyldu sem er orðin vonsvikin og þreytt á sambúðinni. Frekar ætti að skilja þessi skref, ef afþeim verður, sem vísbendingu um þörf fyrir sjómendur starfsins í Danmörku og Noregi að helga sig algjörlega uppfyllingu andlegra þarfa safhaðanna í hvom landi fyrir sig og því að efla boðunarstarf safiiaðarins. Sú breyting sem lagt er til að verði er tilraun tilþessað komast nær þörfum safhaðanna í hvom landi fyrir sig og finna virkari og betri leið til þess að nýta fjármuni safhaðarins." JanPaulsen sagðiað lokum: "Hlutverk safhaðarins er að ljúka verki Guðs. Ef til er betri aðferð til þess að koma þessu verki í ftamkvæmd en sú sem við höfum nýtt hingað til ættum við að láta einskis ófteistað að uppgötva hana." ANR3/92 ACappella... ** ^ ...svart á hvítu Snælda ACappella er nú fáanleg hjá skrifstofu Samtakanna, Suðurhlíð 36. Verð er Kr. 900 og rennur allur ágóði til tækjakaupa ACappella. Snælduna er einnig hægt að fá heimsenda með því að hafa samband við Janna (92-12477) eða Guðmund (92-11066), og bætist þá við sendingarkostnaður. 8 AöventfrétUr 2,1992

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.