Aðventfréttir - 01.03.1992, Side 1
55. Árg. - 3. tbl. 1992
HEIMSÓKN ROBERTS S. FOLKENBERG TIL ÍSLANDS
Nýlega ferðaðist formaður aðal-
samtaka Sjöunda dag aðventista, Ro-
bert S. Folkenberg, um í Stór-
Evrópudeildinni og kom þá við hér á
landi dagana 29.- 31. maí s.l. eins og
flestum innan safnaðarins hér er
kunnugt um. Með Folkenberg í för
voru tveir kaupsýslumenn, leikmenn
innan safnaðarins, að nafni Tem Su-
arez og Terry Moreland.
Föstudaginn 29. maí heimsóttu
þessir menn, í fylgd undirritaðs,
biskup íslands, herra Ólaf Skúlason
og forseta Islands, Vigdísi Finnboga-
dóttur. Bæði biskupinn og forsetinn
tóku við árituðu eintaki af nýútgefinni
sálmabók safnaðarins, sem var vel
tilfallin gjöf í tilefni árs söngsins.
Seinna þennan dag heimsóttu
gestirnir stofnanir safnaðarins, bæði
Suðurhlíðarskóla og hina verðandi
menningarmiðstöð þar og Hlíðar-
dalsskóla.
Á hvíldardeginum prédikaði Fol-
kenberg fyrir húsfylli í kirkjunni í
Reykjavík að viðstöddum biskupi ís-
lands. Efni hans var: „réttlæti fyrir
trú". Safnaðarmeðlimir Suðurnesja-
safnaðar, Árnessafnaðar og Hafnar-
fjarðarsafnaðar voru þátttakendur í
guðsþjónustunni og féllu samkomur
því niður í viðkomandi söfnuðum.
Allt þetta fólk tók einnig þátt í
„lukkupotti" í Suðurhlíðarskóla síð-
degis þennan dag þar sem Folken-
berg sagði stuttlega frá starfi safnað-
arins á ýmsum stöðum í heiminum.
Á sunnudagsmorgni þ. 31. maí
héldu gestirnir áfram ferð sinni en
þeir komu við í Ungverjalandi, Pól-
landi, Danmörku, Svíþjóð og Finn-
landi áður en þeir snéru aftur til Ban-
daríkjanna.
Við munum lengi búa að góðum og
uppörvandi boðskap formanns Aðal-
samtakanna og óskum honum vel-
farnaðar og Guðs blessunar í hinu á-
byrgðarmikla starfi hans.
Eric Guðmundsson
NÝR SÖFNUÐUR í HAFNARFIRÐI
Hvíldardaginn 21. mars var há-
tíðis- og fagnaðardagur í sögu safn-
aðarins á Islandi. Þann dag var nýr
söfnuður stofnaður í Hafnarfirði.
Hátíðarsamkoma var haldin í
Álfafelli, íþróttahúsinu við Strand-
götu, Hafnarfirði og voru þar
komnir saman um 150 einstakling-
ar.
Eric Guðmundsson, formaður
Samtakanna, ávarpaði samkomu-
gesti. Lilja Guðsteinsdóttir sagði
frá sögu safnaðarins í Hafnarfirði
og er ávarp hennar birt hér í blað-
inu. Steinþór Þórðarson, safnaðar-
prestur hins nýja safnaðar flutti
hugvekju þar sem hann undirstrik-
aði hversu ríkur þáttur boðun er í
safnaðarlífi okkar.
Tónlist setti sterkan svip á sam-
komuna og margar góðar gjafir
bárust hinum nýja söfnuði frá
Samtökunum og systursöfnuðun-
um. Tekin voru upp samskot í
byggingasjóð nýja safnaðarins og
gáfu samkomugestir alls rúm
47.000 kr. Söfnuðurinn færir gef-
endum sínar bestu þakkir.
Hápunktur samkomunnar var
þegar 26 einstaklingar stigu fram og
skráðu sig sem stofnmeðlimi nýja
safnaðarins, þar af voru 7 sem ekki
enn hafa tekið skírn en áforma það
í náinni framtíð.
Hinn nýji söfnuður hefur ekki sitt
eigið húsnæði til að koma saman í,
en til að byrja með verða samkom-
ur haldnar á hvíldardögum kl. 10:00
í félagsheimilinu Vitanum, Strand-
götu 1. Þangað eru allir velkomnir.
Þröstur B. Steinþórsson.
Margmenni á stofnunarhátíð í Hafnarfirði.