Aðventfréttir - 01.03.1992, Page 3
FRETTIR AÐ UTAN - FRETTIR AÐ UTAN - FRETTIR AÐ UTAN
FYRSTA SKÍRNIN í ALBANÍU
18. apríl var sögulegur dagur fyr-
ir starf aðventista í Albaníu. Frá því
að land þetta bannaði öll trúar-
brögð í byrjun seinni heimsstyrj-
aldar og lýsti sig land algers trú-
leysis hefur ekkert skipulagt starf
farið fram á vegum aðventsafnað-
arins þar. í apríl fór samt fram
skírnarhátíð í Albaníu, þar sem átta
persónur sameinuðust söfnuðin-
um.
Fyrsti einstaklingurinn sem tók
skírn þennan dag var Meropi Gjika,
en hún hafði beðið þessa dags í 51
ár. Hún er nú 87 ára að aldri. Mer-
opi kynntist boðskapnum fyrir til-
stilli Daniels Lewis en hafði ekki
tekið skírn vegna þess að Daniel
hafði ekki réttindi til þess að skíra.
En hún taldi sig meðlim safnaðar-
ins og í meira en 40 ár hefur hún
haldið tíund til haga fyrir starfið.
Eftir skírnarathöfnina sagði Mer-
opi: „Ég þakka Guði fyrir þennan
dag, fyrir það að draumur minn
varð að veruleika“. Á meðal þeirra
sem einnig tóku skírn þennan dag
voru dóttir Meropiu, Margerita og
barnabarn, Esther. Esther starfar
nú sem ritari aðventsafnaðarins í
Albaníu.
Skírnarathöfnin var einnig sér-
stök vegna Aferidita Hasan og son-
ar hennar, Sokol. Þau mæðginin
skírust saman og einnig Violeta
Mita, sem sagðist hafa þráð það í
mörg ár að mega skírast. Tvær
ungar konur, Lisena Gjebrea og
Mimoza Poska, sem eru úr múslím-
skri fjölskyldu, tóku einnig skírn.
Þá var skírnarathöfnin einnig
sérstök reynsla fyrir frú Floru
Sabatino - Lewis, ekkju Daniels
Lewis og dóttur þeirra Esther og
fjölskyldu. Þau búa í Korce og þrá
að koma á fót einum af hinum
fyrstu aðventsöfnuðum Albaníu
þar. Áður en skírnin átti sér stað
vitnuðu skírnarþegarnir um hina
miklu trúmennsku Daniels og Floru
Lewis en hinn brennandi áhugi
þeirra fyrir boðun boðskaparins
var óslökkvandi þrátt fyrir harðvít-
uga andstöðu og ofsóknir. Sæðið
sem sáð var á fjórða og fimmta ára-
tugnum vegna þrotlauss starfs
Daniels hefur nú borið ávöxt.
David Currie, sem framkvæmdi
Tíundarpeningar Meropiar: Afrakstur
trúmennsku í47 ár.
Mynd: R. Dabrowski.
skírnina, sagði m.a.: „Það er okkur
mikið gleðiefni að starf aðventsafn-
aðarins hefur nú öðlast fótfestu í
Albaníu. Þetta er frumkjarni safn-
aðar í Tirana. Sjö ungmenni í viðbót
munu taka skírn innan skamms.“
Skírnarathöfnin fór fram í þeim
húsakynnum sem áður var safn
nefnt til heiðurs Enver Hoxha, ein-
ræðisherra. Nú eru þessi húsa-
kynni nýtt sem alþjóðleg æsku-
lýðsmiðstöð. Hoxha lýsti öll
trúarbrögð ólögleg og sem komm-
únískur einræðisherra stóð hann
fyrir hinum harkalegustu trúarof-
sóknum okkar tíma.
Einn þeirra sem báru vitnisburð
við skírnina í Tírana sagði eftirfar-
andi: „Öll þessi ár hefur trúin lifað
hið innra með einstaklingum í
hjörtum þeirra. Engin mannleg á-
hrif hafa megnað að þurrka hana út
og stöðva sigurgöngu sannleik-
ans.“
Sannarlega, fagnaðarerindið mun
sigra, einnig í Albaníu!
Skímarþegar í Tírana. Meropi er fjórða frá vinstri. Mynd: R. Dabrowski.
SKOLASLIT ■ NEWBOLD COLLEGE
7. júní s.l. voru skólaslit Newboldskólans en skólaárið 1991/
2 var 90. rekstrarár skólans. Einnig fór fram nafngjafarathöfn á
þrem af byggingum skólans þennan dag í tilefni afmælisársins.
Bókasafn skólans var nefnt Graham Library eftir Dr. Roy Gra-
ham, fyrrverandi rektor skólans. Húsakynni prestadeildar
skólans voru nefnd Murdock Hall eftir Dr. William G.C. Murdock
einnig fyrrverandi rektor skólans. (William var bróðir Lamonds
Murdock sem var söfnuðinum á Islandi að góðu kunnur). Ný
vist skólans var nefnd Schuil House eftir Dr. Philip Schuil, ein-
hverjum merkasta kennara sem prestadeild Newboldskólans
hefur átt. Allir þessir menn eru nú látnir, en ekkjur þeirra voru
viðstaddara athöfnina.
Einn þeirra nemenda sem lauk prófi með BA í guðfræði frá
Newbold í vor var Lilja Ármannsdóttir. Aðventfréttir óska henni
innilega til hamingju með árangurinn og Guðs blessunar.
Þeirsem útskrifuðust með BA í guðfrœði frá Newboldskólan-
um 1992. Lilja Ármannsdóttir er önnur f.v. í fremstu röð.
Aöventfréttir 3.1992
3