Aðventfréttir - 01.03.1992, Síða 7
tökin staðið fyrir ýmsum uppá-
komum í Hafnarfirði, ýmist í formi
námskeiða eins og t.d. bindindis-
námskeið, streitunámskeið, mat-
reiðslunámskeið eða útbreiðslu-
starf af öðru tagi. Og ekki má
gleyma að geta þess innsöfnunar-
starfs sem aðventistar úr hinum
ýmsu söfnuðum okkar hafa unnið
af trúmennsku í áratugi.
í meira en hálfa öld hefur reglulegt
safnaðarstarf í Hafnarfirði legið
niðri. Og í dag, um 70 árum eftir að
Salem samkomuhúsið var selt, er
aftur hafist handa um reglubundið
safnaðarstarf með stofnun nýs
safnaðar í Hafnarfirði. í janúar á
síðasta ári hófst Biblíunámskeið
hér í Hafnarfirði, einmitt í þessum
sal hér við Strandgötuna. Um 130
manns innrituðust í námskeiðið
sem lauk tveimur mánuðum síðar.
Þá var haldið áfram með minni hóp
áhugasamra einstaklinga um
nokkra vikna skeið í Víðistaða-
kirkju. Eftir sumarhlé var svo tekið
til við reglubundnar samkomur að
nýju hér í Hafnarfirði, en frá 7.
september s.l. höfum við fengið
inni með samkomur okkar að
Hjallahrauni 9, í húsnæði björgun-
Margrét Guðmundsdóttir
flytur frumsamið Ijóð.
arsveitarinnar Fiskakletts. Frá upp-
hafi hefur eldri barnadeildin haft
afnot af lítilli kaffistofu netaverk-
stæðis Jóns Holbergssonar sem er
í næsta húsi. Þessi húsakynni höf-
um við til og með 4. apríl n.k. en 11.
apríl flytjum við samkomur okkar í
Félagsmiðstöðina Vitinn, Strand-
götu 1, Hafnarfirði.
Krásir á borðum á stofnunarhátíð.
Það er innileg bæn okkar allra að
aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði
eflist og styrkist dag frá degi í vitn-
isburði sínum á meðal íbúa þessa
bæjarfélags og nágrannabyggða-
laganna. Megi þetta litla ljós sem
hér er tendrað í dag lýsa mörgum
einstaklingum leiðina til hjálpræðis
og eilífs lífs.
Skírnarsamkomur í Reykjavík
Þann 9. maí s.l. fór fram skírn í
Aðventkirkjunni í Reykjavík er þeir
Halldór Þ. Ólafsson, Guðmundur
Bergmann Bergþórsson og Jón
Jónsson gerðu sáttmála við frels-
ara sinn. Halldór, sem býr í Hvera-
gerði, var skírður af Þresti B. Stein-
þórssyni og sameinaðist hann
Árnessöfnuði. Þeir Guðmundur og
Jón voru skírðir af Steinþóri Þórð-
arsyni en báðir höfðu þeir fyrst
kynnst boðskapnum í Opinberun-
arbókarnámskeiði Steinþórs á Holi-
day Inn s.l. vetur. Guðmundur sam-
einaðist Hafnarfjarðarsöfnuði en
Jón Reykjavíkursöfnuði.
Þá fór fram skírn í Aðventkirkj-
unni í Reykjavík þ. 4 júlí s.l. er Einar
Sigurbjartur Jónsson tók skírn og
framkvæmdi Steinþór Þórðarson
einnig þá athöfn. Einar sameinaðist
Haf narf j arðarsöf nuði.
Aðventfréttir óska Halldóri, Guð-
mundi, Jóni og Einari innilega til
hamingju með ákvörðun sína og
Guðs blessunar í göngu sinni með
frelsara sínum.
Skímarþegar frá vinstri: Jðn, Guðmundur og Halldór.
Einar og Steinþór.
Aðventfréttír 3.1992
7