Aðventfréttir - 01.03.1992, Blaðsíða 12
FRÉTTAMOLAR
TIRANA, ALBANÍU
Hvorki slæmt veður né sjón-
varpsútsending frá fyrsta fundi ný-
kosins þings hamlaði 2500 Albön-
um að vera viðstaddir fyrsta kvöld
opinberra samkoma 6. apríl s.l. í
ráðstefnuhöllinni í Tírana. David
Currie, útbreiðsluprédikari Stór-
Evrópudeildarinnar var aðalræðu-
maður en einnig var myndasýning
um náttúruna, vísindi og fornleifa-
fræði í tengslum við Biblíuna.
Áratugum saman hafa trúar-
brögð verið bönnuð í Albaníu sem
hefur þannig verið eina land heims
sem lýst hefur algeru trúleysi.
Kirkjur og samkomuhús voru lok-
uð, prestar fangelsaðir og að hafa
Biblíu í fórum sínum gat kostað
fangelsisdóm. Við lok ársins 1990
sameinaðist Albanía öðrum Aust-
ur-Evrópulöndum í því að leyfa
lýðræði, fjölflokkakerfi og trúfrelsi.
Er undirbúningur fyrir sam-
komuherferðina hófst í janúar s.l.
komu í ljós mjög jákvæð viðbrögð
framámanna í Tírana sem haft var
samband við. „Margir þeirra sem
við höfðum samband við ráðlögðu
okkur að halda samkomurnar í
bestu ráðstefnuhöll landsins. Hún
tekur 2500 manns í sæti. Eftir viku
tíma munu samkomurnar verða
fluttar í Alþjóða menningamiðstöð-
ina sem er nálægt hinu áður fræga
Ehver Hoxha safni. Þetta er mikil-
fenglegt í okkar huga“, sagði David
Currie við byrjum herferðarinnar.
Báðir salir voru þar til nýlega
tengdir kommúnistaflokknum. í
dag er orð Guðs boðað trúuðum
jafnt sem vatrúuðum í húsakynn-
um sem áður voru háborg trúleys-
isins.
Sex manna starfshópur stóð að
samkomuhaldinu. Þeir eru m.a.:
Rolf Kvinge, áður formaður Vestur-
Norræna Sambandsins, Mark Fox,
prestur frá Florida í Bandaríkjunum
og Kerri Stout, söngkona, einnig frá
Florída. Þau síðastnefndu stóðu að
sérstöku samkomuhaldi fyrir ungt
fólk. Eftir samkomuhaldið í Tírana
hóf hópurinn samkomuhald í
Durres borg.
Eftir komu sína til Tírana sagði
David Currie: „Við erum snortnir af
hinum mörgu beiðnum sem við
fáum hér um að deila hinum kristna
boðskap vonarinnar með albönsku
þjóðinni. Fólk stöðvar okkur á göt-
um úti og biður um Biblíur. Við
tókum 1000 Nýja testamenti á Al-
bönsku með okkur þegar við kom-
um hingað."
Starf Aðventista í Albaníu hófst
um miðbik þriðja áratugar þessar
aldar er Daniel Lewis, sem var
lyfjafræðingur hóf boðunarstarf.
Hann var fæddur í Albaníu en hafði
flust til Bandaríkjanna 1901 þá sjö
ára að aldri. Hann fluttist frá
Boston í Bandaríkjunum kom sér
fyrir í Korce borg í Suðaustur Al-
baníu skömmu fyrir aðra heims-
styrjöld. Þá greindi Review and
Herald blaðið frá því að lítill hópur
aðventista kæmi saman til til-
beiðslu í Albaníu.
Annað starf er einnig unnið á
vegum aðventista í Albaníu. Nú er
verið að leggja síðustu hönd á
teikningar af menningarmiðstöð á
vegum aðventista í Tírana. Þar er
áformað að bjóða upp á almenna
fræðslu og fræðslu varðandi heilsu
og félagsleg og andleg mál. Þróun-
arsamvinnustofnum Aðventista
(ADRA) heldur áfram skipulagn-
ingu hjálparstarfs í Albaníu sem er
fátækasta þjóð Evrópu. (ANR)
TÍUND OG
KRISTNIBOÐSGJAFIR
Stórkostlegar fréttir! Árangur
heimsboðunarátaks og útbreiðslu-
starfs um heim allan kemur glögg-
lega í ljós í aukningu á tíund og
gjöfum auk skírna. Umreiknað í US$
var heildaraukning tíundar á milli
áranna 1990 og 1991 24,4%. Á sama
tíma jukust gjafir til kristniboðs
12.3%. Þökkum Guði fyrir fórnar-
lund og hugsjón safnaðarmeðlima
um allan heim.
ÞBS
SAFNAÐARSTARF í MIÐ-
AUSTURLÖNDUM
Það er einn S. D. aðventisti fyrir
hverja 772 einstaklinga í heiminum.
I Mið-Austurlöndum er þetta hlut-
fall einn á móti 50.500. En nú er
einhver breyting að varða þar á.
örasti vöxtur safnaðarins síðastlið-
in tíu ár, miðað við hlutfall einstak-
linga í þjóðfélaginu, er í einu landi
Mið-Austurlanda. 814% vöxtur
safnaðarins er stórkostlegur sér-
staklega þegar haft er í huga að
landið er yfir 90% múlímar. Leið-
togar okkar settu sér sem markmið
að stofna 6 nýja söfnuði fyrir árið
1995. Þetta verkefni var stutt af
safnaðarmeðlimum í landinu ásamt
trúsystkynum í öðrum löndum. Nú
hafa áform verið lögð fram um
stofnun 6 safnaða í viðbót, í sex
borgum þar sem við höfum ekkert
starf núna. Þegar hefur fjármagn
safnast fyrir starf í tveimur þessara
borga. Fljótlega munu 24 einstak-
lingar vera komnir á sinn stað og ég
trúi því að árið 1995 munu 12 nýjir
hópar trúsystkyna vitna um frels-
ara sinn í þessu landi tækifæranna.
ÞBS.
BIBLIULESTRARBOK FYRIR ÞA SEM GETA NYTT SER ENSKU.
Til er afar handhæg biblíulestrarhandbók á ensku hjá bókaforlaginu: "Studying Together, A
Ready-Reference Bible Handbook" eftir Mark Finley.
Bókin inniheldur eftirfarandi:
* Biblíulestra yfir 42 efni.
Kafla um hagnýtan kristindóm.
* Upplýsingar um önnur trúfélög.
Bókin, sem er í handhægu broti, gefur stutt, greinargóð og hagnýt svör sem koma að
góðu gagni í daglegu lífi og samræðum við aðra. Þetta er bók sem erfitt er að vera án.
Bókin, sem er 196 bls. fæst í tvenns konar bandi:
Pappírskilja - kr. 750,00 - Leðurlíki kr. 1.200,00
12
Aðventfréttir 3.1992