Aðventfréttir - 01.05.1999, Blaðsíða 12
FRA
AÐVENTUKVCD
KÓRSINS
Kórinn söng jólalög og önnur lög.
við gítarundirleik og þar fyrir utan söng
kórinn 9 lög, bæði jólalög og önnur lög.
Allir sungu nokkra almenna jóla-
sálma á undan dagskrá kórsins og stund-
in endaði með Heims um ból.
Að því loknu var öllum viðstöddum
boðið að þiggja heitt súkkulaði og
smákökur í hliðarsal kirkjunnar og all-
flestir sáu sér fært að þiggja það.
Við viljum þakka Krystynu Cortes
sérstaklega fyrir hennar framlag til þessa
kvölds. Hún lék undir öll tónlistaratrið-
in og stjórnaði kórnum og ef hennar ná-
vistar nyti ekki við værum við öll í Að-
ventkirkjunni, bæði kórinn og allir aðr-
ir, svo miklu fátækari hvað alla tónlist
snertir.
Ykkur sem komuð og hlýdduð á, vilj-
um við þakka fyrir komuna og megi góð-
ur Guð gefa ykkur öllum gleðileg jól og
gæfu og farsæld á nýju árþúsundi.
Fyrir hönd kórsins, Sirrý
ARNAÐ HEILLA
Kór Aðventkirkjunnar hélt Að-
ventukvöld sunnudaginn 5. desember
s.l. í Aðventkirkjunni í Reykjavík. Mið-
að við veður og færð var kvöldið vel
sótt, en versnandi veður á sunnudegin-
um setti strik í reikninginn hjá mörgum.
Þó var á að giska milli 70 og 100 manns
í kirkjunni.
Frá sjónarmiði okkar kórfélaga var
Aðventukvöldið mjög vel heppnað.
Tónlistaratriðin voru fjölbreytt og tók-
ust mjög vel. Við fengum að hlýða á
flautudúett spilaðan af Hörpu Theodórs-
dóttur og Brendu Beck, Sigrún Jónsdótt-
ir spilaði á fiðlu, Nanna Maria Cortes
söng einsöng, 6 karlar úr kórnum sungu
saman og einnig sungu 3 dömur úr kórn-
um, við hlýddum á ljóð sem var lesið
Sigrún Jónsdóttir lék á fiðlu.
Guðrún Ólafsdóttir og Grétar
Örn Erlingsson gengu í hjónaband 1.
október s.l. í bænum Köge í Dan-
mörku. Sr. Bjorn Ottesen gaf þau
saman. Á myndinni er einnig dóttir
þeirra Agnes Grétarsdóttir. Þau eru
búsett í Kaupmannahöfn.
Alexandrea Rán fæddist 9. nóv-
ember s.l. Hún er dóttir Guðnýjar
Guðmarsdóttur og Herwig Syen. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Aðventfréttir óska þeim
innilega til
hamingju og blessunar
Guðs í framtíðinni.
AÐALFUNDUR SAMTAKA
SJÖUNDA DAGS
AÐVENTISTA
verður haldinn 24.-27. febrúar
árið 2000.
Fundurinn hefst kl. 18:00 fimmtu-
daginn 24. febrúar n.k.
Aðalfundur kýs formann, fjár-
málastjóra og stjórn Samtak-
anna. Aðalfundur leggur einnig
drög að stefnuskrá safnaðarins
fyrir næstu þrjú árin.