Bræðrabandið - 01.01.1974, Qupperneq 2
BIs. 2 - BRÆÐRABANDIÐ - 1. tbl
Postulinn segir fyrir um það, að á síðustu tímum muni koma
"örðugar tiðir". Málin munu ekki verða viðráðanlegri, heimurinn mun
ekki verða betri staður til að búa í, heldur munu allir hlutir þvert
á móti fara versnandi. Heimurinn á eftir að horfast í augu við
enn meiri vandamál og það er ekki á færi neins manns að sjá það
fyrir.
I'etta beinir huga okkar æ betur að því, að til er annar
auður, sem er tryggari en hinn veraldlegi. Kristur talaði um að
safna sér fjársjóði á himni. Við þurfum að gera okkur æ betur grein
fyrir því, að okkar mesti auður er í orði Guðs. í>ar lærum við um
hjálpræðið 1 Jesú Kristi og öðlumst sanna mynd af okkar tíma,
ékomnum atburðum og er stærstur þeirra endurkoma freisarans. Býrari
auð er ekki hægt að eignast, betra skjól er ekki hægt að fá í
þessum syndanna heimi. Stærsta spurningin fyrir okkur á því herrans
ári 1974 er ekki sú, hvort við fáum áfram olíu frá Rdssum eða hve
hátt verðið verður, heldur hitt, hvort við höfum veitt Kristi
inngöngu í líf okkar og hvort við höfum lifandi samfélag við
himininn. Ef svo er munum við sýna það meö lifandi áhuga fyrir
frelsun sálna og með því að gefa milefni Drottins af tíma okkar,
hæfileikum og efnum. Af ávöxtum þeirra skulu þér þekkja þá, sagði
frelsarinn. Játning trúarinnar er nauðsynleg, en Jakob postuli
taldi að verkin þyrftu að fylgja, ef trúin ætti að vera lifandi.
Tímarnir gefa ekkert tilefni til deyfðar eða svefnhöfgi.
Samferðafélk okkar þarf á því að halda, að við séum lifandi og
áhugasöm. Við þurfum á því að halda á þessu ári að hafa inni-
lega trúarreynslu með Guði. Hvemig væri að við stigjum fram í
trú og bæðum Guð að sýna okkur hvað við gætúm gert fyrir aðra?
Við höfum sennilega öll þörf á þv£ að reyna Guö meira en við gerum.
í>að þýðinggarmesta fyrir okkur við upphaf þessa árs er að undir-
búa hjörtu okkar fyrin komu Drottins og vinna sálir fyrir guðsríki.
Með því er ekki t\undi^búning við hentugleika, heldur undir-
búning N Ú N A. "við
Lfettum við öll á þessu ári vaxa í þekkingu ekkar á Guði.
S.B.
AUGLfSING
Basar systrafélagsins Alfa í Reykjavík verður haldinn 31. raarz.
Systumar eru hvattar til að senda muni tímanlega og hjálpa
svo til við afgreiðsluna, þegar þar að kemur.
Stjérnin.