Vísbending


Vísbending - 02.02.2007, Page 4

Vísbending - 02.02.2007, Page 4
VISBENDING Jón Sigurðsson hagfræðingur, fyrrverandi bankastjóri NIB Gylfaminning N'okkrir jyrrverandi nemendur Gylfa Þ. Gíslasonar afhentu Háskóla Is- lands málverk af Gylfa 2. febrúar. 1 tilefni afþví skrifaðiJón Sigurðsson hagfrteðing- ur meðjýlgjandi grein sem er að stofni til hluti afávarpi hans þegar myndin var ajhent. Gylfi Þ. Gíslason var einn þeirra manna sem mestan svip settu á íslenskt þjóðlíf á síð- ara helmingi tuttugustu aldar. Kornungur kom hann heim til starfa að loknu háskóla- námi sumarið 1939 og réðst þá þegar sem kennari við Viðskiptaháskóla Islands, und- anfara Viðskipta- og hagfræðideildar Há- skóla Islands er tók til starfa árið 1940. Gylfi var þá fyrstur manna ráðinn fastur kennari í viðskipta- og hagfræði við Háskólann sem dósent, en síðar pró- fessor frá árinu 1946. Doktorsprófi lauk hann ffá háskólanum í Frankiurt árið 1954. Gylfi lét ungur til sín taka á vettvangi landsmála. Hann var kosinn á þing fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjavík 1946 og sat á þingi samfleytt í 32 ár. Menntamálaráðherra var hann samfellt í fimmtán ár, 1956-1971, og af þeim tíma jafhframt viðskiptaráðherra í tólf ár, 1958-1971, en óslitinn árafjöldi þessa ráðherradóms mun reyndar vera eins- dæmi í báðum ráðuneytum. Þegar Gylfi lét af ráðherrastörfum sneri hann sér aftur að háskólakennslu og rannsóknum samhliða þingstörfum. Hann tók á ný við prófessors- embætti 1972 og gegndi því til ársins 1987, en fræðaiðkun og ritstörfum hélt hann áfram til æviloka. Hann var einn helsti braut- ryðjandi í hagffæðikennslu og rannsóknum hér á landi og lét sér alla tíð annt um innra skipulag og starfsemi Viðskipta- og hagffæði- deildar. Gylfi var um margt boðberi nýrra tíma í íslenskum stjórnmálum. Hann gerðist snemma öflugur talsmaður nútímalegrar jafhaðarstefhu sem heldur ffam kostum markaðsbúskapar í stað miðstýringar í efha- hagsmálum, en leggur jafhffamt áherslu á að hagkerfið sé hluti af stærri samfélagsheild þar sem verkefhi hins opinbera er að try'ggja heilbrigt réttarfar, nausta stjórn fjármála og peningamála og síðast en ekki síst félagslegt öryggi og velferð alls almennings, en það skiptir líka máli fyrir árangur efnahagsstarf- seminnar. Kjarninn í þessari sýn á samfélagið er að jafnrétti og hagkvæmni séu ekki endi- lega andstæður og að viðskiptaffelsi og opið þjóðfélag sé hvort tveggja forsenda jafnréttis. Gylfa verður lengi minnst sem forysm- manns í Viðreisnarstjórninni 1959-1971. Viðreisnarstjórnin kippti íslensku hagkerfi upp úr fari haffabúskapar og millifærslna og felldi að mesm niður gjaldeyrisskömmt- un, fjölgengi gjaldmiðla og margvísleg höff á innflutning varnings. Hún lagði um leið niður flókið kerfi útflutningsbóta og inn- flutningsgjalda sem hafði að mildu leyti rofið samhengið milli erlends markaðsverðs og innlends verðlags. Gengisskráning krón- unnar var einfolduð og gengið fellt. Þessar róttæku ráðstafanir felldu íslensk efhahags- mál að þeirri skipan sem algengust var á Vest- urlöndum og lögðu gmnn að blómlegu hagvaxtarskeiði hér á landi. Gylfi hafði mótandi áhrif á þessar aðgerðir allar og naut þar hagffæðiþekking- ar sinnar. Starfa hans í Viðreisnarstjórninni verður Hka minnst vegna forystu hans um gerð samningsins um inngöngu Islands ÍEFTA. Gylfi var glögg- sfy'ggn á aðalatriðin í íslenskum efhahags- málum og skildi flestum fyrr og bemr þær veilur í íslenskum þjóðarbúskap sem fólust í hömlulausri sókn í takmarkaða fiskstofha á íslandsmiðum og landbúnaðarstefnu sem byggðist á umfangsmiklum ffamleiðslu- styrkjum og útflutningsbómm á landbún- aðarafurðir. Hann var forspár um það að hvort tveggja hlyti að leiða til ofljárfestingar og óhagkvæmni í rekstri þessara ffumgreina þjóðarbúsins. Um leið var í þessari stefnu fólgin hætta á því að gengið yrði of nærri gæðum náttúrunnar til sjós og lands. Grein- ing Gylfa á þessum vanda og hugmyndir hans um það hvernig við honum skyldi snúist voru - og eru - umdeildar, en enginn gat efast um heilindi Gylfa í þessum málum ffekar en í öðm. Og enn er verk að vinna á þessum vettvangi. Með árunum hefur kom- ið æ betur í ljós að Gylfi var bæði ffamsýnn og heilráður um þessi efni. Þjóðin á þessum öndvegismanni ís- lenskra mennta margt að þakka. Eg hygg að mörgum muni fara líkt og mér að þeir viti ekki glöggt hver verka Gylfa beri að þakka mest eða hver standi hjarta þeirra næst - því að svo margt gerði hann vel. E9 Aðrir sálmar Viðskiptavinir Sumir eru þannig að þeir halda við- skiptum og vináttu aðskildum en hitt er þó algengara að menn sem eiga samleið vegna vinnu verði kunningjar og síðar vinir í sumum dlvikum. Kunn- ingsskapur eflir gagnkvæmt traust og getur þannig gert gott viðskiptasamband sterkara. Ef upp úr viðskiptunum raknar vill oft fara á sömu lund með vináttuna. Alþekktur er vandinn sem fjölskyldufyr- irtæki lenda off í. Eftir að höfuð ættar- innar fellur frá geta afkomendurnir ekki komið sér saman um það hver eigi að verða fremstur meðal jafningja, off með hörmulegum afleiðingum fyrir bæði fjölskylduna og fyrirtækið. Þó að menn verði ekki vinir ætti gagnkvæmt traust og virðing að vera grundvallarviðhorf í viðskiptum. Fyrir nokkrum árum virtust nokkrir ungir Islendingar í viðskiptum ætla að temja sér þá viðskiptahætti að öllum viðskiptum ætti að ljúka með því að snúa á viðsemjandann. Þá fyrst töldu þeir að viðskiptunum væri lokið. Þessir viðskiptahættir geta gengið til skamms tíma en reynast ekki vel til frambúðar. Jafnvel þeir sem eru í þannig stöðu að erfitt er að komast hjá því að eiga við þá viðskipti veikja sig með því að temja sér að skilja eftir óbragð í munni viðsemjand- ans. Orðstír deyr aldrei og það á ekki síð- ur við um slæman orðstír en góðan. Sagt er að menn eigi að vera vingjarnlegir við þá sem þeir skipta við á leiðinni upp vegna þess þeir eigi eftir að hitta þá aftur á niðurleiðinni. Það er óheppilegt fyrir viðskipti almennt ef almenningur trúir því að þeir sem þau stunda séu eintóm- ir glæpamenn. Það er ekki glæpsamlegt að verða gjaldþrota en þeir sem gera sér Ieik að því að hlaupa ffá skuldum gjald- þrota fyrirtækja skaða orðspor sitt. Eitt gjaldþrot getur verið óheppni en í næsta skipti fer að sjást ákveðið mynstur. Lík- lega ætla fáir sér að vera óheiðarlegir. Þeir breyta einfaldlega um viðmið frá því sem almennt gildir. Þannig geta þeir hegðað sér strangheiðarlega að eigin mati þó að þeir umgangist eigur annarra eins og þeir ættu þær sjálfir. „Ég átti þetta inni“ var fleyg setning eins þeirra sem „lenti í“ fjár- drætti. bj Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson Utgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 512 7575. Myndsendir: 561 8646. Netfang: visbending@talnakonnun.is. Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda. 4 VÍSBENDING • 4 TBL. 2007

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.