Fréttablaðið - 29.12.2011, Síða 4

Fréttablaðið - 29.12.2011, Síða 4
GENGIÐ 28.12.2011 4 FRÉTTABLAÐIÐ 29. desember 2011 FIMMTUDACUR VINNSLA Um 1000 ársverk urðu tíl vegna makrílveiða, fleiri en í álverum Alcan og Alcoa samanlagt. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIBRIKSSON Makríllinn skapar 1.000 störf: Veiðar skila um 25 milljörðum SJÁVARÚTVECUR Makrílveiðar skil- uðu þjóðarbúinu ríflega 25 millj- örðum króna á síðasta ári, sem er um fimm prósent af útflutnings- tekjum íslands. Meira en 1.000 ársverk urðu til vegna veiðanna, samkvæmt samantekt sjávarút- vegsráðuneytisins. Um 200 ársverk hafa orðið til á sjó við veiðar á makríl og annað eins á landi við vinnslu. Þá reikn- ar ráðuneytið með 600 afleidd- um störfum vegna veiðanna. Til samanburðar vinna um 900 manns í álverum Alcoa á Reyðar- firði og Alcan í Straumsvík, sam- kvæmt samantekt ráðuneytisins. Um 90 prósent aflans fara til manneldis. Það er veruleg breyt- ing frá því sem áður var, en fram til ársins 2009 fóru um 80 prósent aflans í bræðslu. - bj SAMFÉLAGSMÁL Helmingi fleiri fengu aðstoð Helmingi fleiri leituðu aðstoðar Fjölskylduhjálpar á Suðurnesjum fyrir þessi jól en fyrir þau síðustu. Um 700fjölskyldurfengu aðstoð nú. Þetta segir Anna Ólafsdóttir hjá Fjölskylduhjálpinni á vef Víkurfrétta. Uthlutun fyrir áramótin verður I dag milli klukkan eitt og fjögur síðdegis. Úthlutað var hjá Fjölskylduhjálp I Reykjavík i gær vegna fjölda beiðna. Bakari ferekki af Bergstaðastræti 13 þótt húsaleigusamningurinn sé útrunninn: Bernhöftsbakarí verður opið enn um sinn VIÐSKIPTI „Ég held bara áfram að vera hérna í rólegheitunum,“ segir Sigurður Már Guð- jónsson, bakarameistari í Bernhöftsbakaríi, sem ætlar ekki að flytja starfsemina úr Bergstaðastræti 13 þótt leigusamningurinn renni út um áramótin. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu í nóvember hafa eigandi Bergstaðastrætis 13 og eigendur Bernhöftsbakarís hvorki náð saman um nýjan leigusamning né kaupa bakarísins á húsnæðinu sem verið hefur starfsstöð þess í 28 ár. Sigurður Már segir ekkert hafa gerst í málinu að undanförnu enda talist menn ekki við. Vilji eigandinn fá hann út þurfi hann að fá samþykkta útburðarbeiðni. „Þetta eru eflaust miklar lögfræðilegar flækjur. Svo er nú dómskerfið allt á hvolfi," segir bakara- meistarinn sem kveðst eiga von á að þurfa að fara út í fyrsta lagi á vormánuðum. Guðmundur Már Ástþórsson, einn þriggja eigenda Mótamanna ehf. sem eiga Berg- staðastræti 13, segir að þar sem leigusamn- ingurinn sé runninn út og ekki hafi verið óskað eftir endurnýjun samningsins eða kaup á húsnæðinu þá gefur það auga leið að Bernhöftsbakarí hljóti að vera að fara. Ekki sé hægt að segja til um hvenær það verði. „Við munum einfaldlega fylgja öllum lögum og reglum í þessu máli sem og öðrum,“ segir Guðmundur um framhaldið. -gar BERNHÖFTSBAKARl Eftir 78 ára sögu í Bergstaðastræti og þar af 28 ár á númer 13 er framtíð Bernhöftsbakarís í götunni í algerri óvissu. fréttablaðið/píetur Púsundir mæta til að syrgja leiðtogann Mikið var haft við þegar útför Kim Jong-il var gerð í Norður-Kóreu í gær. Lík- fylgdin tók hálfan þriðja tíma og hermenn skutu 21 sinni úr rifflum sínum. Sonur hins látna, arftaki eins fátækasta ríkis heims, var í áberandi hlutverki. NORÐUR-KÓREA Arftakinn Kim Jong-un var í fararbroddi syrgj- enda við útför föður síns í Pjong- jang, höfuðborg Norður-Kóreu. Hann gekk við líkbifreiðina, með aðra hönd á bílnum en notaði hina til að heilsa fólki. Líkfylgdin tók hálfan þriðja tíma og að henni lokinni skutu her- menn 21 sinni úr rifflum sínum. Nýi leiðtoginn stóð síðan og heils- aði meðan fylkingar hermanna gengu gæsagang framhjá honum. Ekki vantaði leikrænu tilþrifin í athöfnina, ef marka má útsend- ingu norður-kóreska ríkissjón- varpsins. „Hvernig getur það verið að himnarnir gráti ekki?“ heyrðist hágrátandi hermaður spyrja. „Fólkið grætur allt tárum úr blóði." Af sumum myndunum að dæma er þó ekki annað að sjá en himnarnir hafi heldur ekki staðist mátið og hellt úr skýjum yfir syrgjendurna. Arftakinn hefur treyst völd sín síðustu daga með því að bæta við sig embættum og titlum, bæði innan flokksins og í yfirstjórn hersins. Ungur aldur hans og lítil reynsla gerir þó að verkum að nokkur óvissa ríkir um framtíð- arstöðu hans í valdakerfinu. Hann hafði enda ekki haft tuttugu ár til að búa sig undir hlutverkið, eins og faðir hans, heldur aðeins tvö ár. Hann tekur við einu fátækasta og einangraðasta ríki veraldar. Auk þess að þurfa að finna leiðir til að tryggja íbúum landsins dag- lega fæðu og aðrar helstu lífsnauð- synjar þarf hann að takast á við harða gagnrýni og þrýsting frá Hvernig getur það verið að himnarnir gráti ekki? HÁGRÁTANDI HERMAÐUR I PJONGJANG I GÆR öllum helstu ríkjum heims vegna kjarnorkuvopna, sem faðir hans var búinn að koma sér upp í ein- hverri mynd. Athygli sérfræðinga í málefnum Norður-Kóreu beinist samt mjög að innsta hring valdakjarnans í kringum Kim, og var grannt fylgst með því hverjir væru áberandi nálægt honum í athöfninni í gær. Þar er helst nefndur Jang Song- thaek, mágur Kim Jong-il, en hann er varaformaður varnarmála- nefndar ríkisins og mun líklega gegna lykilhlutverki við að koma nýja leiðtoganum inn í embættið. gudsteinn@frettabladid.is HÁGRÁTANDI Norður-kóreski herinn syrgði hinn látna leiðtoga með miklum tilþrifum. NORDICPHOTOS/AFP ARFTAKINN FREMSTUR Kim Jong-un gekk fremstur í flokki hægra megin við hlið líkbifreiðarinnar. nordic photos/afp Breytingar hjá Kópavogsbæ: Leikskólagjöld hælcka um 7% KÓPAVOGUR Átta tíma vistun með fullu fæði hjá leikskólum Kópavogs hækka um áramótin um 6,9 prósent, eða um 1.736 krónur. Að því er kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ hafa rekstrargjöld leikskólanna hins vegar hækkað mun meira að undanförnu vegna verðlags- hækkana og launahækkana. „Hefði þeim öllum verið beint til foreldra hefði leikskólagjald- ið hækkað um 13 til 14 prósent.“ Miðað við aukinn rekstrar- kostnað lækki því greiðsluhlut- fall foreldra í heildarkostnað- inum. í ár sé hlutfallið um 19 prósent en verði 15 prósent á næsta ári. .gar Verðlaun fyrir vísindi: Kristján hlaut Ásuverðlaunin vIsindi Heimspekingurinn Krist- ján Kristjánsson hlaut verðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guð- mundsdóttur Wright í gær. Verð- launin voru afhent við athöfn í Þjóð- minjasafninu. Ása stofn- aði til þess- ara verðlauna til minningar um eiginmann sinn, ættingja og aðra vensla- kristján menn. kristjánsson Þessi viðurkenning hefur í rúm 40 ár verið veitt íslendingi, sem unnið hefur veigamikið vísinda- legt afrek á íslandi eða fyrir ísland. Verðlaunin eru heiðursskjal, silfurpeningur og peningagjöf. -Þi Viltu lifa lífinu lifandi? Komdu þá í ZUMBA hjá Heilsuborg Dansaðu þig í form með einföldum Zumba sporum eða skelltu þér í ZumbaToning (Nýtt) Ný námskeið hefjast 10. janúar j Skráðu þig núna í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is HGILSUBORG Faxafeni 14 • www.heilsuborg.is VEÐURSPA Elísabet Margeirsdóttir MEIRI SNIÓR Það verður snjókoma með köflum víða um land í dag en á morgun dregur úr ofankomu um tíma en annað kvöld gengur í stífa suðaustanátt með úrkomu og hlánar vlða um sunnan og vestanvert landið. Horfur á skúrum eða slydduéljum sunnan og vestan til á gamlársdag. Á MORGUI 10-18 m/s S- og SV-til. HEIMURINN Alicante 11° Basel 1° Berlín 7° Billund 4° Frankfurt 6° Friedrichshafen -2° Gautaborg 5° Kaupmannahöfn 5° Las Palmas 19° London 9° Mallorca 16° New York 4° Orlando 18° Ósló 1° París 1° San Francisco 13° Stokkhólmur 4° Vindhraði er i m/s. Hitastig eru i °C. Gildistfmi korta er um hádegi. AUGLYSINCADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS - AUGLYSINCASTJÓRI: Jón LaufdalpnHifKttabhdidis ALMENNAR SlMI 512-5401: Einar DavuSsson Bnor.dowtfesonf@365.is. Guðmundur Sletnsson gudmurtdursSS65.is, Hjötdls Zoéga hlorxhslslKitabladid.is. Hlynur Steingnmsson hlynurs@365.rs, Laila Awad /oi/o@365.fe. Öm Geireson om.geirsson@J65fe AiLT SlMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir/m/i@365fe, Brynja Gunnarsdóttir brynjag<§365Js. Snorri Snorrason snorris@365Js SÉR8LÖÐ SlMI 512-5016: Benedikt JOnsson benedikt/l§365.is. Sigriður Sigurbjömsdóttir sigridurdagny@365.is, firar Hansen namm@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SfMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is. Viðar Pétursson vip@365Js WÓNUSTUAUGLÝSINGAR sfMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttirsiguriaug(al365.is, Arna Kristinsdóttir omarut§365Js, Cuðný Gunn!augsdóttirr/unny@365.rs, Sigrún Guðmundsdóttirsigrunh§365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einarskulason@365.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.