Fréttablaðið - 29.12.2011, Page 26
2 MARKAÐURINN
29. DESEMBER 2011 FIMMTUDAGUR
Skúli er viðskiptamaður ársins
Hann keypti hiut í fjármálafyrirtæki, stofnaði flugfélag og á stóran hlut í eldsneytisframleiðanda sem á sér engan sinn líkan í heiminum.
Hann heitir Skúli Mogensen, er eigandi Títan fjárfestingafélags og var valinn viðskiptamaður ársins af fjölskipaðri dómnefnd Markaðarins.
VIÐSKIPTAMAÐUR ÁRSINS
Þórður Snær Júlíusson skrifar
thordur@frettabladid.is
Dómnefnd Markaðar-
ins hefur valið Skúla
Mogensen, eiganda
Títan fjárfestinga-
félags, sem við-
skiptamann ársins 2011. Skúli
var mjög áberandi í íslensku
viðskiptalífi á árinu sem var að
líða. Hann leiddi meðal annars
hóp sem eignaðist MP banka,
stofnaði lágfargjaldaflugfélag
og er stærsti hluthafi í einu verk-
smiðjunni í heiminum sem fram-
leiðir eldsneyti úr koltvísýrings-
blæstri.
Skúli vakti fyrst athygli á 10.
áratugnum þegar hann tók þátt
í uppbyggingu hugbúnaðarfyrir-
tækisins OZ. Eftir að fyrirtækið
lenti í höndum stærsta kröfuhafa
síns árið 2002 eignaðist Skúli
Oz aftur og flutti fyrirtækið
til Kanada. Hann seldi það svo
til farsímarisans Nokia haust-
ið 2008, nánast á sama tíma og
efnahagshrunið skall á íslandi.
Frá síðari hluta árs 2009 hefur
Skúli, í gegnum fjárfestinga-
félagið Títan, fjárfest fyrir millj-
arða á íslandi. Stærstu fjárfest-
ingarnar áttu sér þó stað á síð-
asta ári, 2011.
í apríl síðastliðnum fór Skúli
fyrir hópi fjárfesta sem lögðu
MP banka til 5,5 milljarða króna
í nýtt eigið fé og eignuðust í kjöl-
farið bankann að fullu. Skúli
lagði sjálfur fram tæpan millj-
arð króna og var lykilmaður í því
að mynda þann hóp sem á end-
anum eignaðist bankann. Hann á
17,5% í MP banka í dag og situr
í stjórn hans.
Hann kom síðan mörgum í
opna skjöldu í nóvember þegar
tilkynnt var um stofnun nýs ís-
lensks flugfélags, WOW Air, sem
er í meirihlutaeigu Skúla. Með-
eigendur hans eru Baldur Bald-
ursson og Matthías Imsland,
fyrrum forstjóri Iceland Ex-
press. WOW Air ætlar að hefja
flug til og frá íslandi l.júní næst-
komandi. Til að byrja með ætlar
félagið að fljúga til tólf áfanga-
staða í Evrópu.
Títan er einnig á meðal
stærstu eigenda Carbon Recycl-
ing International (CRI) með um
fimmtungshlut. CRI hefur byggt
verksmiðju við orkuver HS Orku
AÐRIR SEM VORU NEFNDIR
í Svartsengi sem framleiðir vist-
vænt eldsneyti úr koltvísýrings-
útblæstri og orku frá jarðvarma.
Eldsneytinu, metanóli, er síðan
blandað saman við bensín. Til-
kynnt var um að framleiðsla á
eldsneytinu væri hafin um miðj-
an nóvember síðastliðinn.
Verksmiðjan er með fram-
leiðslugetu til íblöndunar sem
annar þriðjungi árlegrar bensín-
notkunar á íslandi. Hún er
þannig hönnuð að hægt er að
þrefalda hana að stærð og anna
þannig eftirspurn eftir vist-
vænu metanóli til blöndunar við
allt bensín hér á landi. Á meðal
annarra fyrirtækja sem Skúli á,
í gegnum Títan, eru Datamarket,
Securitas og tæplega helmings-
hlutur í tölvuleikjaframleiðand-
anum CAOZ.
Skúli var líka á meðal þeirra
sem lögðu Thor Data Center til
400 milljónir króna í nýtt hlutafé
sumarið 2010. Við það eignaðist
hann 33% hlut í fyrirtækinu.
Thor Data Center var svo selt
til Skýrr í nóvember 2011. Kaup-
verðið var ekki gefið upp. Hann
átti einnig hlut í Tindum verð-
bréfum en Auður Capital keypti
fyrirtækið í nóvember síðast-
liðnum og sameinaði starfsemi
þess sinni undir merkjum Auðar.
Annar þeirra sem fengu næst-
flest atkvæði dómnefndar var
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group. Mikil viðsnún-
ingur hefur orðið í rekstri Ice-
landair Group eftir að félagið
fór í gegnum fjárhagslega endur-
skipulagningu á árinu 2010. í henni
var hlutafé aukið, skuldum breytt
í nýtt hlutafé og vaxtaberandi
skuldir lækkaðar með færslu og
sölu á eignum sem voru ekki hluti
af kjarnastarfsemi Icelandair.
Samtals lækkuðu vaxtaberandi
skuldir félagsins um tæpa 14 millj-
arða króna við þessa aðgerð.
Icelandair hagnaðist um 4,6
milljarða króna á fyrstu níu mán-
uðum ársins þrátt fyrir að elds-
neytisverð hafi hækkað mikið á
tímabilinu. Velta Icelandair Group
ÁRNIVILHJÁLMSSON BJÖRGÓLFUR
Stjórnarformaður JÓHANNSSON
HB granda. Forstjóri lcelandair
group.
var 76,9 milljarðar króna á fyrstu
þremur ársfjórðungunum og jókst
um 11% frá árinu áður.
Á meðal þeirra ummæla sem
dómnefndarmeðlimir létu falla
um Björgólf var að hann bæri
ábyrgð á „glæsilegri endurkomu
Icelandair". Annar sagði Björgólf
eiga titilinn skilinn fyrir „góða
sókn og vörn í ferðaþjónustu".
Hinn sem fékk næstflest at-
kvæði er Árni Vilhjálmsson,
stjórnarformaður HB Granda.
Hann er einn stærsti eigandi Vog-
unar ehf. sem er stærsti einstaki
eigandi HB Granda með 40,1%
hlut. Auk þess á Árni 0,28% hlut í
eigin nafni. Árni verður áttræður
á komandi ári. Á meðal ummæla
um Árna voru að „félagið hans
hefur hækkað vel í verði og skap-
ar verðmætar gjaldeyristekjur".
Á fyrri hluta ársins 2011 hagn-
aðist HB Grandi um heila 15,7
milljónir evra, eða um 2,5 millj-
arða króna. Heildareignir félags-
ins voru um 50 milljarðar króna í
lok júní síðastliðins og eiginfjár-
hlutfallið 49%.
SKÚLI MOGENSEN Nýjasta v
WOW Air sem var stofnað i
hans þar eru Baldur Bald
fyrrum forstjóri lceland E:
WI
•4
Ts v*/
V- 0
§
w
m*
wm
Andri Már Ingólfsson, forstjóri Primera Travel Group. „Hann hefur aðlagast
aðstæðum afburðavel, haldið áfram að byggja upp og stendur nú með að
því virðist mjög öflugt félag í höndum."
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr. „Félagið er komið í mjög góð mál og á leið
á markað."
Ámi Hauksson og Hallbjörn Karlsson, fjárfestar. „Hafa sagst eingöngu kaupa í fyrir-
tækjum hverra verð ertalsvert undirþeirra mati á virði fyrirtækisins. Fylgdu
reglunni sinni og hafa þegar stórgrætt á hlut sinum i Búvöllum I gegnum
kaupin á Högum. Eins mætti nefna viðskiptafélaga þeirra Sigurbjörn Þorkels-
son sem tók þátt í kaupunum"og „Þessi kaup sýna kannskihið ótrúlega, að
til eru kaupahéðnar sem geta farið hlæjandi út úr bankanum. Bankinn seldi
bréfin á undirvirði og héltsvo uppteknum hætti idesember."
Ólafur Ólafsson, fjárfestir. „Skuldauppgjör hans hlýtur að tryggja honum
þennan titil."
Bima Einarsdóttir, bankastjóri islandsbanka. „Bankinn hefurskilað mikilli
arðsemi."
Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs íslands. „ Framtakssjóðurinn
eru bestu viðskiptin og kaupin/salan á lcelandair og Vestia þau best
heppnuðu."
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors. „Fyrir öfíuga uppbyggingu á
flottu fyrirtæki sem líklega útskrifast úr hópi sprotafyrirtækja á yfirstand-
andi ári og þjónustar nú meira en 1.000 skóla i þremur Evrópulöndum með
veflausnum sem skrá, miðla og hvetja námsframvindu grunnskólanema."
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. „Fyrir að leggja áherslu á arðsemi
númer eitt, tvö og þrjú írekstri Landsvirkjunar."
GERIR EKKI UPP A MILLI BARNANNA SINNA
SKULI MOGENSEN
„[ fyrsta lagi er (sland of lítið land til að vera
með mjög þrönga fjárfestingarstefnu. i öðru
lagi þá eiga flest okkar fyrirtæki það sameig-
inlegt að við lítum á þau sem nýsköpunar-
fyrirtæki. Þau eru tiltölulega ung að árum
og með mikla vaxtarmöguleika. Það á jafnt
við um MP banka, WOW Air og tæknifyrir-
tækin. Þau eiga framtíðina fyrir sér. Ég er að
horfa fyrst og fremst á það. Fyrirtæki sem
hafa sannað sig að vissu leyti en eru enn
með mikla vaxtarmöguleika," segir Skúli
Mogensen, viðskiptamaður ársins að mati
dómnefndar Markaðarins, um ástæður þess
að hann fjárfesti í jafn óllkum fyrirtækjum
og hann gerir.
Skúli telur island vera einstakt og eigi
gríðarlega möguleika til vaxtar, þó svo að landsmenn
átti sig kannski ekki alltaf á þvl. „Hér er mikið af undir-
liggjandi verðmætum. Endurnýjanlegum auði eins og
sjávarútveginum, orkunni, ferðaiðnaðinum eða mann-
auðinum. Ekki mörg lönd eiga slík auðæfi. Hjá þeim
löndum sem eiga þau, til dæmis Noregur og Kanada, er
hægt að sjá mikla umskiptingu á tiltölulega skömmum
tíma eftir að þau fóru að nýta hann. Það er fyrst og
fremst auðlindum, aðallega ollu, að þakka að þau lönd
standa jafnt sterkt og þau gera."
Að sögn Skúla hefur margt breyst til hins betra á
íslandi frá þvl að hann starfrækti OZ hér I upphafi
aldarinnar. Ýmislegt sé þó enn að. „Mér finnst pólitískur
óstöðugleiki þvælast fyrir of mörgu. Þó að einstakir
stjórnmála- og ráðamenn séu allir af vilja gerðir þá gerir
óeiningin sem ríkir á milli stjórnarflokkanna, og meira
að segja innan þeirra, það að verkum að það er hálfgerð
pattstaða I landinu. Þessi óeining er einnig sýnileg hjá
stjórnarandstöðunni. Þetta stefnuleysi er
sérstaklega áberandi, leynist engum og
þvælist mikið fyrir. Þótt margt hafi áunn-
ist á undanförnum þá ættum við að vera
mun lengra komin I enduruppbyggingunni.
Skattastefna stjórnvalda og upphlaup I
ýmsum málum eru til að mynda ekki að
auka áhuga erlendra aðila á islandi. Það
er synd því þeir ættu tvímælalaust að hafa
mikinn áhuga á að koma hingað inn."
Spurður um hvaða fjárfesting hafi staðið
upp úr á árinu segist Skúli ekki geta gert
upp á milli barnanna sinna. „Það eru for-
réttindi að fá tækifæri til að koma að svona
fjölbreyttum fyrirtækjum með frábæru fólki.
Það er fyrst og fremst starfsfólk þeirra sem
ber hitann og þungann af rekstri fyrirtækjanna. Kaupin
í MP banka voru þó mjög minnisstæð og ég er mjög
ánægður með hvernig tókst til þar. Nýjasta verkefnið,
WOW Air, er líka virkilega spennandi og það verður
mjög gaman að fylgja því eftir á komandi ári. Svo má
ekki gleyma fyrirtæki eins og Carbon Recycling sem er
framúrskarandi fyrirtæki og hefur þegar sannað að það
er á heimsmælikvarða. Securitas gengur líka eins og í
sögu og frumsýningin á teiknimyndinni Thor, sem CAOZ
gerði, var náttúrulega stórkostleg."
Skúli á ekki von á því að Títan verði jafn fyrirferðarmikið
í nýfjárfestingum á næsta ári og hann var á því sem nú er
að líða. „Ég held að við séum búnir að sá okkar fræjum I
bili. Nú er stefnan sú að styðja enn betur við bakið á þeim
fjárfestingum sem við höfum þegar ráðist í. Ég útiloka
auðvitað ekkert, en fókusinn verður á að fylgja núverandi
verkefnum úr grasi. Ég er mjög bjartsýnn á framtíð þeirra
fyrirtækja. Og íslands I heild sinni."
2.-3.
SÆTI
Björgólfur Jóhannsson
og Árni Vilhjálmsson
FRÉTTABLAÐIÐ/VALU