Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 29. desember 2011 sboðun 25 Eru ráðamenn þjóðarinnar veruleikafirrtir ? Fjármál Vílbelm Jónsson fjárfestir og fv. atvinnurekandi Það er uppgangur í útflutnings- greinum okkar svo sem álút- flutningi sem hefur aldrei verið meiri, ásamt hagstæðu verði, einn- ig í sjávarútveginum sem er rang- Iega skipt. Atvinnustiginu hefur verið haldið uppi með lántökum síðustu 20 ár ef ekki lengur, svo sem hjá sveitarfélögum, fyrirtækj- um og heimilum sem eru skuldsett upp í rjáfur. Okkur stendur ekki lengur til boða að halda byggingar- iðnaðinum í gangi með skulda- söfnun, sem er búin að vera mikið lengur en 2007 bólan og við getum síðan ekki borgað. Því miður er allt sem bendir til að fyrirhyggjuleysið viðgangist áfram, með tilheyrandi eyðslu og sinnuleysi, sem er einungis til þess fallið að auka til muna á erfiðleika almennings og heimila. Ef fram fer sem horfir munu þúsundir heimila flosna upp á næstu árum vegna fjárhagserfiðleika með til- heyrandi erfiðleikum fyrir þjóð- ina. Verðtrygging var tekin upp 1979, fljótlega eftir það fór allt á hvolf með kollsteypu og verð- bólgu upp á tugi prósenta allan níunda áratuginn. Ef við berum ekki gæfu til að koma verðtrygg- ingunni í betra horf eigum við ekki möguleika á að koma hagkerfinu í lag, ekki væri óeðlilegt að bæði skuldari og lánveitandi bæru 50% áhættu af verðtryggingu, sem myndi stuðla að því að hafa hemil á verðbólgunni. Það er kominn tími til að þjóðin axli ábyrgð og átti sig á að ráða- menn virðast vera takmarkaðir ef ekki siðblindir, sem hefur sýnt sig í gegnum árin með byggingum og mannvirkjum sem við höfð- um aldrei efni á. Svo sem hring- leikahúsið í Öskjuhlíðinni, Héð- insfjarðargöng, Landeyjahöfn, Tónlistarhúsið Hörpu, Orkuveitu- húsið og varðskipið Þór sem við getum ekki einu sinni rekið. Nýtt Háskólasjúkrahús er á döfinni með sína traustu kostnaðaráætlun að ógleymdum Vaðlaheiðargöngum í sárabætur fyrir álver á Bakka. Það stendur til að byrja að byggja nýtt fangelsi á Hólms- heiði, þó að búið sé að benda ráða- mönnum á mun ódýrari leið, eins og að flytja nýlegar gámabúðir frá Reyðarfirði sem Alcoa á, að Litla-Hrauni. En þessar vinnu- búðir eru víst ekki nógu fínar eða boðlegar föngum þar sem flottræ- filshátturinn er alger. Að minnsta kosti sækjast háttvirtur fangelsis- stjóri og aðrir ráðamenn eftir því að stórt og flott fangelsi verði byggt, með stórum turni og fang- elsisgarði í anda Ameríku með tilheyrandi lúðraþyt ef einhver fangi skyldi verða leiður og vilja útskrifa sig sjálfur. Með auknu fangelsisplássi væri hægt að kalla inn nýja sakamenn til refsingar sem myndi gera kleift að ná sekt- argreiðslum í ríkiskassann upp á fleiri hundruð milljónir ef ekki milljarða, þar sem sektirnar yrðu greiddar til að sleppa við afplánun. Það er með ólíkindum að Lands- virkjun skuli þurfa 11% arðsemi "^Þúkemstptoa! FUDGE uviace ...cnþúgefejrlíkapantodtíma FUDGCG^ WlftOE Gr FUDGE •*“” Rakarastofan Klapparstíg fuðge S: 5513010 þegar arðsemi hefur aðeins verið 2% og lífeyrissjóðir hafa viljað 3,5% og hefur þótt mikið. Þessi arðsemiskrafa virkar helst sem lélegur pólitískur kattarþvottur til að verja að ekki náðist samkomu- lag um raforkuverð fyrir álverið að Bakka við Húsavík, að minnsta kosti væri ekki óeðlilegt að þessi 11% arðsemiskrafa yrði líka leið- andi fyrir raforkusölu til Norður- áls í Helguvík og aðra stóriðju- kaupendur. Reyndar er ekki ósennilegt að raforkuverðið sé of lágt til álbræðslu Alcoa á Reyðarfirði miðað við afkomu Kárahnjúka- virkjunar, þar sem raforkuverð er tengt álverði sem hefur verið mjög hátt síðustu ár. Gefur það til kynna vafasamt orkuverð þó for- stjóri Landsvirkjunar telji ekkert athugavert við fyrri raforkusamn- ing! Þjóðartekjur koma aldrei til með að standa undir þessari óráð- síu sem virðist viðgangast hvert sem litið er, t.d. með því að vitna í Ríkisendurskoðun sem gerir alvarlega athugasemd við inn- kaup Ríkislögreglustjóra vegna löggæslustofnana og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir í versta falli óheppilega hafa verið staðið að! Eðlilegast væri að núverandi F>ví miður virðist allt hagkerfið í landinu vera gegnumsýkt og einkennast af spillingu og óráðsíu hvert sem litið er... flokksforingjar færu frá eins og Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde gerðu eftir að þau voru búin að ferðast um allan heim að reyna að fullvissa umheiminn um að allt væri í himnalagi á íslandi í aðdraganda á hruninu, við ættum nóg af peningum og þetta væri bara allt einn misskilningur. Það er búið að viðgangast hér i áraraðir óábyrg og galin fjármála- stjórnun, sem Sjálfstæðisflokkur- inn ber höfuðábyrgð á, til dæmis með afskriftum, kúlulánum, kvótabraski, kennitöluflakki og hruni fjármálakerfisins. Flokkur- inn er gjörsamlega í afneitun með að bera ábyrgð þó þjóðin sé nánast komin að fótum fram. Því miður virðist allt hagkerfið í landinu vera gegnumsýkt og einkennast af spillingu og óráðsíu hvert sem litið er þannig að manni dettur helst til hugar að líkja því við Simbabve. Fimmtudagur nema Skeifan 29. des. Dalvegur og Skútuvogur 30. des. Dalvegur og Skútuvogur Föstudagur nema Skeifan Laugardagur 31. des. Sunnudagur l.jan. Mánudagur 2. jan. L Opið eftir talningu í eftirtöldum Vínbúðum Skeifan Austurstræti, Borgartún, Mosfellsbær, Stekkjarbakki, Akureyri, Selfoss og Reykjanesbær Lokað Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is VINBUÐIN Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.