Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 54
30
FRÉTTABLAÐIÐ
29. desember 2011 FIMMTUDAGUR
krossgáta
LÁRÉTT
2. erindi, 6. samtök, 8. merki, 9. hár,
ll. leita að, 12. flugfar, 14. fet, 16.
tveir eins, 17. gljúfur, 18. segi upp, 20.
drykkur, 21. atlaga.
LÓÐRÉTT
1. glufa, 3. skammstöfun, 4. gunga, 5.
skjön, 7. nakinn, 10. draup, 13. sarg,
15. bæli, 16. augnhár, 19. bókstafur.
LAUSN
?>i -6i '?jq '91
’SL '8jn -£L '>|B| '0L 'jaqs||B •£ '?>)s
’S 'paSSej ’tr 'qa ■£ 'jnej i :npGQl
s?J? 'IZ '31 'Ot '>|3J -81 '|!§
'11 'qq '9L 'f3J>|s ’Þl '8ne|j •z\ '?8 -u
'||n ‘6 '>|eq ‘8 'ee g 'sjan z -113UV1
V
«*?
Ar hinna glötuðu
tækifæra
Brynja Þorgeirsdóttir og Guðmundur Andri Thorsson setjast
á áramótarökstóla.
Meðai annars efnis:
Hvað bar hæst?
2011 með augum Ijósmyndara Fréttablaðsins.
Cátur og þrautir
Áramótamyndgátan og krossgátan.
Allt sem þú þarft
Þetta fer eins og við segjum!
BAKÞANKAR
Sigríðar
Víðis
Jónsdóttur
Sírenurnar vældu og þykkur reykjar-
mökkurinn fyllti allt. Ringulreiðin var
algjör og einhvers staðar inni í miðju eld-
hafinu var maðurinn hennar. Örfrétt birt-
ist á mbl.is um kvöldið, „54 féllu í Bagdad."
Hún sjálf var orðin að ekkju í írak, skrýtið
hvernig eitt andartak getur öllu breytt.
HINUM megin við ána Tígris hafði maður
verið tekinn að heiman þegar þetta var.
Tekinn af lífi. Þrjú börn orðið föðurlaus.
Önnur börn einnig misst pabba sinn eftir
svipað atvik í sama hverfi. Kona virt
fyrir'sér illa farið lík fjölskylduvinar
norðar í borginni. Barn verið pyntað.
Faðir verið skotinn. Þá látnu þekkti
ég ekki en hinum hef ég kynnst.
Sumu verður aldrei hægt að gleyma
en vonandi er hægt að læra að lifa
með því.
AF HVERJU að rifja upp látið fólk
og ljótar minningar á hátíð ljóss
og friðar? Af því að Íraksstríð-
inu er núna formlega „lokið",
segja þeir, og þeirra látnu ber að
minnast. Fólkið lést auk þess í
strfði sem var valkvæmt. Inn-
rásin í írak var ekki óundir-
búið viðbragð við ófyrirsjáan-
legum atburðum. Valdamiklir
leiðtogar tóku ákvörðun um að
inn skyldi farið og inn sendu
þeir hermenn. Árásin var val og
innrásardagurinn var valinn af árásarríkj-
unum - hann hefði eins getað verið mánuði
síðar, hálfu ári, heilu.
ÞRÁTT fyrir það var ráðist inn án nokk-
urrar formlegrar áætlunar um hvað taka
ætti við eftir Saddam. Gríðarlega umdeild
innrás - stórpólitískur og háalvarlegur
atburður - reyndist fúsk. Menn skelltu
skollaeyrum við varnaðarorðum, köstuðu
til höndunum.
ÁTTA árum síðar eru vel yfir hundrað þús-
und írakar látnir, sumir segja margfalt
fleiri. 4.486 bandarískir hermenn liggja í
valnum. Bandarískir skattborgarar sitja
uppi með reikninga sem eru svo háir að
þá skilur varla nokkur maður. Fyrrum
þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna
hefur viðurkennt að „taktísk mistök" hafi
verið gerð. Fyrrum ritari Bandaríkjahers
hefur fullyrt að í varnarmálaráðuneytinu
hafi menn séð fyrir sér að þar sem írak
yrði „frelsisstríð" yrði verkefnið „tiltölu-
lega einfalt og viöraðanlegt". Enn fremur
að sjónarhorn ráðamanna hafi verið nánast
guðspekilegt: „Að þetta færi eins og þeir
segðu að þetta færi.“
SORRÝ strákar, það varð ekki að veru-
leika. Átta árum eftir innrás eru seinustu
bandarísku herdeildirnar loks farnar heim
en útlitið í írak er skuggalegt og nákvæm-
lega engin ástæða til bjartsýni.
myndasögur
Pondus
Eftir Frode 0verli
Gelgjan EftirJerry Scott&Jim Borgman
Handan við hornið
EftirTony Lopes
v'N
SVONA JAFBT! AF
HVFRJU ÞARFTU AS VFRA
SVONA LFNGIÞARNA
INNI?! ÞASJFR FINS GOTT
AS ÞU $FRT FKKIAS
LFIKA ÞFR.AFTUR NIFS
PLASTONOINA!
Etnail! info (? sjion<tjWns. cow
Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman