Fréttablaðið - 29.12.2011, Page 60
36
FRÉTTABLAÐIÐ
29. desember 2011 FIMMTUDAGUR
HÆTTUR VIÐ
Ewan McGregor er hættur við að
leikstýra frumraun sinni um skútu-
keppni sem fór fram árið 1968.
Ástæðan er einföld; einhver annar
leikstjóri var þegar byrjaður á sömu
hugmynd. McGregor hefur hins vegar
ekki útilokað að hann muni
setjast í leikstjórastólinn
ef eitthvað spennandi
bjóðist.
bíó
Hraðslcreiðir bílar í sjöunda sinn
Hver hefði trúað því, þegar kvikmyndin
The Fast and the Furious var frumsýnd
fyrir tíu árum, að framhaldsmyndirnar
yrðu hugsanlega sjö. En það virðist
ætla að verða að veruleika enda sló
fimmta myndin algjörlega í gegn, bæði
hjá gagnrýnendum og hjá áhorfendum.
Vin Diesel hefur staðfest að sagan fyrir
sjöttu myndina hafi verið það umfangs-
mikil að nauðsynlegt var að klippa hana
í tvennt og gera úr henni tvær myndir.
Þar með fetar Fast and the Furious-
flokkurinn í fótspor bæði Twilight-serí-
unnar og Harry Potter-myndanna en
lokakaflar þeirra beggja voru klipptir
í tvennt. Handritið að lokamyndunum
tveim er skrifað samtímis en hins vegar
liggur ekki yfir hvort myndirnar verða
gerðar hlið við hlið. Talið er líklegt
að persónum Evu Mendes og Dwayne
Johnson muni bregða fyrir í næstu
myndum. „í ljósi þess hversu vel síðasta
mynd og mörgum persónum hefur verið
bætt við varð okkur ljóst að efnið kæm-
ist ekki fyrir í einni mynd,“ er haft eftir
Vin Diesel sem bætir því við að þeir
ætli að víkka út sjóndeildarhringinn.
Paul Walker, annar aðalleikara mynd-
anna, bætir því við að hasarinn sé ekki
það eina sem hafi lokkað fólk í kvik-
myndahús. „Því myndin fjallar líka um
gildi fjölskyldunnar og vináttu." Það er
því ljóst að aðdáendur hraðskreiðra bíla
hafa nóg að hlakka til. - fgg
BENSfNIÐ f BOTN Vin Diesel og félagar ætla að
stiga bensínið í botn og keyra á bæði sjöttu og
sjöundu mynd.
við prentum
BÆKLINGA
Cruise á toppnum
Eftir fremur magra tíð með kvikmyndum á borð við Lions for
Lambs, Knight and Day og Valkyrie er Tom Cruise kom-
inn aftur á toppinn. Fjórða Missiomlmpossible-myndin sló
í gegn um jólahelgina og rakaði inn rúmlega 29 milljón-
um dollara. Sherlock Holmes: A Game of Shadows náði
ágætis árangri og hafnaði í öðru sæti,
með miðasölu upp á 20 milljónir doll-
ara en hins vegar reyndist bandaríska
útgáfan af Körlum sem hata konur von-
brigði helgarinnar en myndin náð ein-
göngu þriðja sætinu og miðasölu upp á
rúmar tólf milljónir dollara.
Æv.intýri Tinna náði heldur ekki
miklu flugi í Bandaríkjunum,
komst eingöngu í fimmta sæti
listans með 9,7 milljónir í miða-
sölu en leikstjóri myndarinnar,
Steven Spielberg, missir varla
svefn yfir þeim árangri. Því
Tinna-myndin hefur malað
gull utan Ameríku og selt
miða fyrir tæpar 240 millj-
ónir dollara. - fgg
IEFSTA SÆTIÐ Tom Cruise er
kominn á flug með fjórðu Mis-
sion: Impossible-myndinni og var
vinsælastur um jólin vestanhafs.
• Bækur
• Tímarit
• Fyrir skrifstofuna
• Bæklingar
• Kynningarefni
• Fjölpóstur
• Dagblöð
• Stafræn prentun
• Allskonar!
Suðurhraun 1 Garðabæ Sími: 59 50 300 www.isafold.is
DRIVE STENDUR UPP ÚR
BEST Drive eftir Nicolas Winding Refn með Ryan Gosling i aðalhlutverki er besta
kvikmynd ársins að mati Empire, Total Film og Rolling Stone. F17281211 drive
Kvikmyndaspekúlantar eru
farnir að gera upp árið 2011
og veija bestu myndir árs-
ins. Drive eftir danska leik-
stjórann Nicholas Winding
Refn virðist vera fremst
meðal jafningja.
Kvikmyndarýnar Empire, Total
Film og Rolling Stone hafa allir
sett hasarmyndina Drive í efsta
sætið hjá sér yfir kvikmyndir
ársins 2011. í umsögn Total Film
kemur meðal annars fram að
„gagnkynhneigðir karlmenn hafi
orðið hálf samkynhneigðir yfir
Ryan Gosling". Honum hafi tekist
að láta satínjakka og tannstöngla
líta út fyrir að vera svala fylgi-
hluti.
Drive segir frá hinum nafn-
lausa ökumanni sem Gosling
leikur. Hann sinnir áhættuakstri
fyrir Hollywood-kvikmyndir á
daginn en ekur flóttabifreiðum
fyrir glæpamenn á kvöldin. Hann
hefur mjög einfaldar lífsreglur:
hann vinnur aldrei fyrir sama
aðilann tvisvar og gefur ræn-
ingjunum aðeins fimm mínútur
til að athafna sig. Hann vingast
óvart við nágrannakonu sína og
son hennar en þegar eiginmaður
hennar losnar úr fangelsi fer af
stað óvænt og fremur blóðdrifin
atburðarás.
Drive er hugarfóstur framleið-
andans Marc Platt sem keypti
kvikmyndaréttinn að bók James
Sallis, The Driver. Platt sagði að
honum fyndist aðalsögupersón-
an í bókinni minna sig á hetjurn-
ar sínar úr barnæsku, þá Clint
Eastwood og Steve McQueen. Platt
hafði strax mjög sterka skoðun á
því hver ætti að leika aðalhlut-
verkið, efstur á blaði hjá honum
Ryan Gosling. Stjarnan fékk síðan
að vera með í ráðum þegar ráðinn
var leikstjóri og í huga leikarans
kom aðeins einn til greina, hinn
danski Nicolas Winding Refn. En
kvikmynd hans, Bronson, hafði
vakið mikla athygli meðal elít-
unnar í Hollywood. Refn var mik-
ill aðdáandi sjónvarpsþáttanna
Breaking Bad og Bryan Cranston
var því einn af fyrstu leikurunum
sem hann fékk um borð. Refn lýsir
því síðan sem ást við fyrstu sýn
þegar hann hitti Carey Mulligan.
„Ég vissi strax að ég hefði fundið
aðalleikkonuna okkar.“
Drive var ódýr í framleiðslu
þrátt fyrir að hafa í fyrstu verið
hugsuð sem miðasölusprengja, hún
kostaði eingöngu þrettán millj-
ónir dollara. Sökum þess hversu
lítið fjármagn tökuliðið hafði á
milli handanna var ákveðið að
taka hana í Los Angeles og Refn
valdi tökustaðina á rúntinum með
Gosling. Leikstjórinn fór fram á
það við aðalleikarana og handrits-
höfundinn Hossein Amini að þau
byggju hjá honum meðan á tökun-
um stæði til að hægt væri að vinna
í handritinu þegar stund gæfist
milli stríða. Gosling lék sjálfur
í mörgum af helstu ökuatriðum
myndarinnar eftir að hafa farið
á námskeið hjá áhættuökuþórum
og nánast engum tölvutæknibrell-
um var beitt; Refn vildi lágmarka
slíka tækni til að eyðileggja ekki
áferðina.
Að endingu varð mönnum ljóst
að Drive var alls ekki svokallaður
„blockbuster" og var því ákveðið
að markaðssetja hana sem
„independent". Myndin sló fyrst
í gegn á Cannes-kvikmyndahátíð-
inni þar sem áhorfendur risu úr
sætum til að hylla hana og Refn
fékk Gullpálmann fyrir bestu leik-
stjórn. Myndin hefur að endingu
orðið að költ-fyrirbæri og gert
það að verkum að 2011 er ár Ryan
Gosling. freyrgigja@frettabladid.is
Sherlock og barnapían
Tvær nýjar kvikmyndir verða
frumsýndar um helgina, annars
vegar önnur myndin um Sherlock
Holmes með Robert Downey Jr.
í hlutverki spæjarans og hins
vegar gamanmynd með Jonah
Hill í aðalhlutverki.
En fyrst Holmes. Þetta er önnur
kvikmyndin sem Guy Ritchie leik-
stýrir um þessa frægustu pers-
ónu Arthurs Conan Doyle. Fyrri
myndin sló rækilega í gegn og því
nokkuð sjálfgefið að Robert Dow-
ney Jr. og Jude Law, sem leikur
Watson lækni, myndu endurtaka
leikinn. Noomi Rapace er ágæt-
is viðbót í leikarahópinn og þá
leikur Jared Harris erkióvininn
snjalla, Moriarty. Myndin segir
frá því þegar austurríski krón-
prinsinn finnst látinn og Holmes
tekur að rannsaka það sem morð
þrátt fyrir að flestir séu þess full-
vissir að hann hafi framið sjálfs-
morð. Rannsóknin leiðir hann á
slóð bróður síns og spákonunnar
Sim og honum verður í kjölfarið
endanlega ljóst að ekki er allt sem
sýnist. Myndin hefur fengið mis-
jafnar viðtökur og þykir ekki hafa
náð þeim hæðum sem búist var
við. Samkvæmt rottentomatoes.
com eru 59 prósent gagnrýnenda
sátt við hana.
Gamanmyndin The Sitter bygg-
ir á kunnuglegu stefi en
hún fjallar um iðjuleys-
ingjann Noah Griffith
sem Jonah Hill leik-
ur. Hann ákveður hins
f AÐALHLUT-
VERKUM Jonah Hill
leikur iðjuleysingja
í gamanmyndinni
The Sitter en
Jude Law og
Robert Downey
eru Dr. Watson
og Sherlock
Holmes í annað
sinn.
vegar að gera móður sinni smá
greiða og taka að sér barnapíu-
starf en klúðrar því á ákaflega
eftirminnilegan hátt. Myndin
hefur fengið fremur dræmar við-
tökur en aðeins 25 prósent gagn-
rýnenda voru sátt við hana sam-
kvæmt rottentomatoes.com.