Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 62
FRÉTTABLAÐIÐ
<
Fólk
Æ folk@frettabladid.is
38
ÁRfyllir breski hjartaknúsarinn Jude Law,
“J S sem nálgast fimmtugsaldurinn óðfluga.
29. desember 2011 FIMMTUDACUR
DYGGIR AÐDÁENDUR GÆTU FENGIÐ SJOKK
Hjaltalín mun flytja mikið
af nýju efni á tónleikum á
Faktorý í kvöld. Upptökur
fyrir þriðju breiðskífu
sveitarinnar hefjast í janú-
ar. Nýja efnið er töluvert
ólíkt því sem sveitin hefur
gert áður, og lýsa hljóm-
sveitarmeðlimir því sem
dekkri útgáfu af Hjaltalín.
„Við erum mjög spennt fyrir
þessu,“ segir Viktor Orri Árnason,
fíðluleikari og Hjaltalínmeðlimur.
Hjaltalín kemur fram á tónleik-
um á Faktorý í kvöld, en sveitin
hefur staðið í ströngu undanfarið
við æfingar á nýju efni, sem tón-
leikagestum gefst færi á að heyra
í kvöld. „Við ætlum eiginlega að
reyna að spila sem flest ný lög sem
verða á næstu plötu. En svo verð-
um við að taka eitthvað eldra til að
minna fólk á að viö erum ekki búin
að gleyma hinum lögunum."
Hjaltalín stefnir á stúdíó strax í
janúarbyrjun til að hefja upptökur
fyrir næstu plötu, sem hljómsveit-
armeðlimir vonast til að komi út
einhvern tíma á árinu. Viktor segir
sveitina breyta aðeins um stefnu
með nýja efninu og hlakkar til að
heyra viðbrögð fólks. „Við förum
í svolítið nýja átt sem er töluvert
dekkri en áður. Þeir sem eru dyggir
aðdáendur Hjaltalíns munu kannski
fá smá sjokk, eðlilega, en við erum
rosalega ánægð með þetta efni, þótt
það verði ekki komið í fullkomna
mynd fyrr en á nýju plötunni."
Önnur plata Hjaltalíns, Term-
inal, kom út fyrir tveimur árum
og fékk feykilega góðar viðtökur.
í kjölfarið var sveitin áberandi og
spilaði á fjölda tónleika, bæði hér
heima og erlendis. Á líðandi ári
hefur ekki heyrst jafn mikið frá
henni, enda hafa meðlimir sveitar-
innar verið búsettir í ólíkum lönd-
um og sinnt eigin verkefnum. „Við
höfum verið dreifð, hvert í sinni
vinnu og tónlistarheimi. En við
erum svo heppin að búa við þessar
aðstæður sem netið gefur okkur,
við erum alltaf að ræða saman,
deila hugmyndum og jafnvel taka
upp demó sem við sendum á milli,“
segir Viktor og bætir við að þetta
fyrirkomulag hafi í raun orðið til
þess að nýju lögin séu unnin í meiri
samvinnu af öllum meðlimum en
áður. „Það skrýtna sem hefur gerst
er að þótt við séum ekki í sama
landi semjum við miklu meira
saman en áður. Við tökum öll mun
meiri þátt í öllu ferlinu, sem hefur
verið virkilega skemmtilegt.“
Þótt Hjaltalín hafi ekki látið
mikið á sér bera árið 2011 hafa
hinir sjö meðlimir sveitarinnar
verið mjög virkir í tónlistarlíf-
inu. Viktor segir alla reynsluna
sem þau hafi aflað sér undanfarin
tvö ár hafa áhrif á nýju lagasmíð-
arnar. „Þessar mismunandi áttir
sem við fórum í hafa klárlega haft
mikil áhrif. Högni hefur unnið
mikið með GusGus, Hjörtur gaf
út plötu og Sigríður og Guðmund-
ur Óskar spiluðu mikið saman. Svo
erum við hin í námi og ég sjálfur
í mínu tónlistarnámi úti í Berlín
í allt öðrum tónlistarheimi. Þetta
nýtist allt ótrúlega vel þegar við
komum saman, því við höfum
mjög sterkar mismunandi hug-
myndir sem stangast oft á. Á end-
anum verður svo tónlist til sem er
vonandi eitthvað nýtt. Við erum
svolítið að leita og prófa okkur
áfram og finnst þetta spennandi
og skemmtilegt."
Tónleikarnir á Faktorý hefjast
klukkan 22 og aðgangseyrir er
1.500 krónur. bergthora@frettabladid.is
Utsalan hafín
afsláttur
aí öfíum vörum
Kringlunni
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 29. desember
~í Tónleikar
20.00 Þrítugustu jólatónleikar Mótettu-
kórs Hallgrfmskirkju verða haldnir í Hall-
grlmskirkju. Þóra Einarsdóttir sópran-
söngkona verður gestasöngvari með
kórnum. Miðaverð er kr. 3.900.
20.00 Hljóm-
sveitin Low Roar
heldur útgáfu-
tónleika sfna
í salnum Gin
& Tonic á Kex
Hostel. Aðgangur
er ókeypis.
21.00 Jónína
G. Aradóttir
heldur tónleika á veitingarstaðnum 73
í Reykjavík.
• : Leiklist
20.00 Nemendaleikhús Listaháskóla
(slands sýnir verkið Jarðskjálftar í
London eftir Mike Bartlett I leikstjór'n
Halldórs E. Laxness. Svningar verða I
Leikhúsi Listaháskóla Islands að Sölv-
hólsgötu 13. Miðaverð er kr. 1.500.
-f Sýningar
20.00 Verkið On Misunderstanding
eftir Margréti Bjarnadóttur danslista-
mann verður sýnt í Kassanum, Þjóðleik-
húsinu. Miðaverð er kr. 2.500,
'jSýningarspiall
20.00 I tilefni loka sýninganna
Samræmi og Hamskipti verður Ólöf K.
Sigurðardóttir sýningastjóri með sýn-
ingastjóraspjall í Hafnarborg.
'i Uppákomur
20.00 JólaBingó á Dönsku kránni.
Bingóspjaldið á kr. 300 og sérstakt
happadrættis-bingóspjald á kr. 500.
Magni spilar að bingói loknu og fram
eftir kvöldi.
Tónlist
21.00 Jólagrautur Memfismafíunnar
verður á Café Rosenberg.
22.00 Andrea Gylfadóttir kemur fram
með Bitladrengjunum bliðu á tónleik-
um á ObLaDÍ, Frakkastig 8. Aðgangur er
ókeypis.
Listamannaspjall
20.00 Snorri Ásmundsson verður með
gjörning og listamannaspjall I Flóru,
Listagilinu á Akureyri.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.