Heimilisritið - 01.01.1947, Page 7
ÞÚ SKILUR hvers vegna hann
var hrifinn af henni og elskaði
hana. Hann langaði til að verða
rithöfundur og í borginni var eng-
inn, sem hann gat talað við um
það áhugamál sitt. Hún skildi
löngun hans, löngunina til þess að
skrifa, og ást hans á bókum. Og
ekki einungis skildi hún hann,
heldur virti hann og örvaði. Allt,
sem hann hafði þráð að segja •—
segja upphátt — í fjölda ára, fékk
nú útrás. Allar hugmyndirnar, sem
honum voru svo kærar, gat hann
skýrt fyrir. skilningsgóðum áheyr-
enda, og það var mikils virði fyrir
hann.
EITT KVÖLD, eftir að hann
hafði heimsótt hana í hálfan mán-
uð og lesið fyrir hana það sem
hann hafði skrifað, vissi hann, að
hann myndi aldrei geta gert neitt
af því, sem hann langaði til, án
hennar. Hann tilbað hana. Hann
var tuttugu og fjögra ára — og
hann vissi að aldursmunur þeirra
skipti engu, hún varð að verða
•'íians. Hún hafði sagt honum að
kalla sig Valerie; nafnið fannst
honum eins fagurt og hún sjálf. Og
nú stóð hann upp af dívaninum og
sagði „Valerie“. Ef til vill á því
augnabliki — þó líklega miklu
fyrr — vissi hún, hvað hafði skeð.
Hún svaraði honum ekki, aðeins
leit upp, og það var enginn léttir í
augnaráðinu. Hann kraup þá niður
á gólfið við hlið hennar og tók í
hönd hennar.
„Valerie", sagði hann, „ég elska
þig“-
Hann lét höfuðið síga hægt nið-
ur, en hún tók um kinnar hans og
lyfti höfði hans. Hann stóð upp
og hún kyssti hann fyrirmannlega
á ennið. „En þú mátt það ekki,
Rinn“, sagði hún. „Þú mátt það
ekki, aldrei“.
„En ég geri það, Valerie“.
„Það er ekki hægt, Rinn. Það er
brjálæði jafnvel að hugsa um það.
Ég veit ekki hvers vegna ég var
svo heimsk að láta þetta ná svona
langt. Það er mér að kenna. Ég
hef komið mjög óheiðarlega fram
við þig“.
„Valerie, þú mátt ekki tala þann-
ig. Þessar tvær vikur hafa verið
þær fegurstu, sem ég hef lifað,
tvær vikur, sem ég aldrei gleymi.
Og ég vildi ekki hafa þær öðruvísi
en þær voru, vegna þess að ég elska
þig. Ég varð að segja þér það, jafn-
vel þótt þú vildir ekki heyra það,
vegna þess að ég gat ekki þagað
yfir því lengur“
„Rinn, þú getur ekki elskað
mig“.
„Segðu þetta ekki, Valerie —
eins og það væri allt búið. Það
getur ekki tekið enda. Ég elska þig.
Ég þarfnast þín og vil ekki lifa án
þín“.
Varir hans nálguðust.
„Rinn, þetta er ekki hægt — það
HEIMILISRITIÐ
5