Heimilisritið - 01.01.1947, Qupperneq 8

Heimilisritið - 01.01.1947, Qupperneq 8
er brjálæði, ég segi þér það — brjálæði“. Þegar varir hans snertu varir hennar, fann hann að þær vöru heitar og mjúkar, og hún sagði ekkert, þegar hann þrýsti þær. Líkami hennar lét undan þrá henn- ar. Hún læsti handleggjunum ut- an um hann og þrýsti honum fast að sér, gagntekin af innibyrgðum tilfinningum og geðshræringu, löngun, einstæðingsskap og hryggð, sem gerði vart við sig í fögnuðin- um yfir þessum eina ástríðufulla kossi á mildri vetrarnótt, frá manni, sem hún hafði aðeins þekkt í tvær vikur......En þegar stund ástríð- unnar var liðin, reyndi hún að gera sér ljóst fánýti þessara atlota. ,:Rinn“, sagði hún, „ég held að ég gæti elskað þig, ef ég væri ekki svona gömul og þú værir ekki svona ungur. Og það kæmi mér meira að segja ekkert á óvart, þótt ég væri þegar dálítið hrifin af þér. En þetta er ómögulegt. Ég veit það. Ég segi það ekki til þess að særa þig, það vil ég sízt gera. En þetta er hvorugu okkar til góðs. Við erum að vaða út í myrkur og reyk, og munum bæði bíða tjón af því, ef við höldum áfram. Lík- lega væri bezt að við sæjumst ekki oftar“. MÓÐIR RINNS var fíngerð kona. Hann hafði erft þreytulegu augun hennar. „Ég man eftir þessum morgni“, myndi hún segja. Þegar hann kom niður til morgunverðar var hann svo undarlegur. Ég hafði aldrei séð hann þannig fyrr. Það var eins og allar plágur veraldar hefðu lagzt á hann.'Hann vildi ekki segja mér, hvað amaði að, og sennilega hefði ég aldrei frétt það, ef frú Lansing Woodside hefði ekki hringt til mín“. Walters kaupmaður hefði sagt: „Hann var svo utan við sig, að ég var að hugsa um að reka hann. Ekki svo að skilja, að ég hefði nokkurntíma gert það. Ég vissi, að eitthvað var öðruvísi en það átti að vera. Hann virtist ekki hafa hugsun á neinu. Svo dag einn í miðri viku bað hann um hálftíma frí til þess að skrifa bréf, sem hann setti síðan í póst“. „Rinn, bréfið þitt var mjög elskulegt, og ég er hreykin af því að vita, að til skuli vera maður, sem hugsar svona mikið um mig. Mig langar líka til þess að sjá þig. En það verður allt að ve^ eins og það var áður. Það er bezt fyrir okkur bæði. Þín Valerie". Hún stóð fyrir framan arininn og talaði: „Við getum haldið kunn- ingsskap okkar áfram. Þegar öllu er á botninn hvolft, er mér sama hvað borgin hugsar og segir. Mér er sama, hvað allir aðrir en þeir, sem 9 HEIMILISRITEÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.