Heimilisritið - 01.01.1947, Síða 17
í fyrstu geta vinir yðar verið
fullir samúðar og hluttekningar.
En ef þér takið upp á því að segja
ævisögu yðar hverjum og einum,
sem vill hlusta á yður, þá skulið
þér vera viðbúnar því, að sá tími
komi, er enginn vill hlusta á yður.
Temjið yður að skilja
og virða aðra.
Ef til vill látið þér það yður
engu varða, þótt frænka frú Potts
hafi útskrifazt frá menntaskólan-
um í Toonerville með fyrstu á-
gætiseinkunn, eða þá að litli dreng-
urinn hennar Susie hafi orðið að
berjast áfram hjálparlaus í átta
mánuði. En ef þér farið að hug-
leiða mál eins og þessi, komizt þér
að raun um, að þau hreyfa strengi
í brjósti yðar. Yður getur fundizt
þetta hálfgerð hræsni fyrst í stað,
en ef þér gerið yður að skyldu að
vera ekki steinrunnar gagnvart
öðrum munið þér fljótlega komast
að raun um, að á bak við þetta er
djúpur hljómgrunnur í eðli yðar
og að hluttekning yðar í tilfinn-
ingalífi annarra gerir yður sjálfa
hamingjusamari.
Ég þekkti eitt sinn unga konu,
ungfrú X skulum við kalla hana.
Hún varð vinsælasta unga stúlkan,
sem ég hef kynnzt, einmitt af því
að hún eignaðist þann eiginleika
í ríkum mæli að geta sett, sig í
spor annarra.
Fyrst þegar ég hafði spurnir af
henni var hún hræsnisfull og sjálfs-
elsk. Samkvæmt ráðleggingum frá
sálfræðingi, sem hún þekkti, ein-
setti hún sér að láta aðra virða sig
meira en áður.
Seinna spurði ég hana, hvernig
hún hefði farið að þessu, og hún
svaraði: „Þú nærð engum árangri
í þessum efnum með því einungis
að neyða sjálfa þig til að veita
lífskjörum annarra athygli, þegar
þú ert innan um annað fólk. Þú
verður að halda áfram að hugsa
um fólkið og hagi þess, eftir að þú
ert farin frá því“.
Ég gerði mér ekki fyllilega grein
fyrir, hvað hún átti við í þessu
sambandi, fyrr en ég sá hana næst.
Hún heilsaði mér mjög vingjarn-
lega og sagði svo: „Mér varð hugs-
að til þín í gær, þegar ég var að
lesa bók eina og'rakst á kafla, sem
ég veit að þér hefði þótt mikils
um vert að lesa“.
Mér hlýnaði í hjarta við að
heyra, að ungfrú X hefði hugsað
til mín er hún var að lesa bókina.
Venjið yður á að hafa vini yðar
i huga, þegar þér lesið í bók, horf-
ið á kvikmynd, hlustið á tónleika
eða eruð á skemmtigöngu. Reynið
að koma auga á eitthvað það, sem
þeim myndi þykja gaman að og
segið þeim síðan frá því, næst þeg-
ar þér sjáið það, sendið þvi línu
eða úrklipþu. Það er einföld en
áhrifamikil leið til að láta í Ijós
vináttu sína,
HEIMILISRITIÐ
I
15